Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „sameiginleg sj������������������var������������������tvegsstefna ESB“

723 svör fundust
Stofnanir

Ver Evrópusambandið meiru fé til kynningarmála en Coca-Cola?

17.1.2014

Víða heyrist sú fullyrðing að Evrópusambandið verji meiri fjármunum í kynningar á sér en gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola. Hún á rætur að rekja til skýrslu bresku samtakanna Open Europe frá árinu 2008. Höfundar skýrslunnar halda því fram að kostnaðarliðir sambandsins af ýmsu tagi séu í raun hluti af kynningarsta...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Hver er hagvöxtur á Íslandi miðað við evrusvæðið og hvaða áhrif hefði upptaka evru á hagvöxtinn?

13.7.2026

Hér er einnig að finna svar við spurningunni: Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á íslenskan vinnumarkað og arðsemi fyrirtækja? Langt fram eftir 20. öld réðst gangur íslensks efnahagslífs að mestu leyti af því hvernig áraði í sjávarútvegi. Í góðærum var uppgangur en þegar afli brást eða verð féll á erlendum...

EES-samningurinn

Hvað er bókun 35 og hvaða máli skiptir hún?

14.10.2026

Í umræðum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sumarið 2026 kom fram sú skoðun að EES-samningurinn tryggði nægilega hagsmuni Íslands í samskiptum við ESB og því væri engin þörf á fullri aðild. Með EES hefðum við allt sem við þyrftum, jafnvel fyrir lítið sem ekkert. Einnig heyrðist að EES hefði ákveðna kosti umfr...

Sjávarútvegur

Hvað stendur í bókun 9 við EES-samninginn?

23.11.2012

Bókanir við EES-samninginn nýtast til túlkunar á ákvæðum samningsins og eru mikilvægur þáttur í því að tryggja einsleita framkvæmd samningsins á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Fjallað er um eðli bókana við EES-samninginn í svari við spurningunni Hvað er átt við með bókunum og viðaukum í sambandi við EES-samninginn...

Ýmislegt

Er rétt að vegna ESB-reglna megi ég aðeins fara með tvö börn á aldrinum 5 til 7 ára í sund?

23.9.2011

Stutta svarið er nei: Þetta er ekki rétt. – Evrópusambandið hefur hvorki sett lög né reglur um hversu mörg börn mega vera í fylgd eins fullorðins einstaklings í sundferð. Setning slíkra reglna er alfarið á ábyrgð aðildarríkjanna. Í íslenskri reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sem tók gildi árið 2011 s...

Ýmislegt

Hvernig eru lögin á Íslandi í sambandi við litmerkibyssur og hvernig eru þau á Norðurlöndunum og hjá Evrópusambandinu?

28.6.2013

Stutta svarið Á Íslandi gilda reglur um litmerkibyssur (e. paintball guns eða markers) sem settar voru af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 26. júní árið 2000. Reglurnar taka meðal annars til þess hvar megi nota litmerkibyssur, hverjir megi nota þær og hvernig vörslu þeirra skuli háttað. Á hinum Norðurlöndunum er að...

Umhverfis- og orkumál

Yrðu veiðar á lóu og spóa leyfðar hér á landi í kjölfar inngöngu í ESB?

28.11.2011

Nei, veiðar á lóu og spóa yrðu ekki sjálfkrafa leyfðar þótt Ísland yrði aðili að ESB. Báðar tegundirnar eru á lista yfir þær tegundir sem aðildarríkjunum er heimilt að leyfa veiðar á og eru taldar upp í viðauka við svonefnda fuglatilskipun. Aðildarríkjunum er ætíð heimilt að kveða á um strangari verndarákvæði en t...

EES-samningurinn

Hver er aðkoma Íslands að mótun vinnumarkaðslöggjöfar ESB og hvernig mundi hún breytast við aðild?

9.3.2012

Aðild Íslands að ESB mundi veita íslenskum stjórnvöldum betri aðkomu að ákvarðanatökuferli sambandsins um málefni vinnumarkaðarins. EES-samningurinn tryggir fyrst og fremst samstarf á milli embættismanna EFTA/EES-ríkjanna og framkvæmdastjórnarinnar. Með aðild að ESB fengju Íslendingar fulltrúa í ráðinu og á Evrópu...

Ýmislegt

Er rétt að ekki sé leyfilegt að vera á stærri dekkjum en 35" í ESB?

3.5.2013

Það er fátt sem bendir til þess að stórir hjólbarðar, sem ætlaðir eru til aksturs utan vega eða í einhvers konar torfæru, verði bannaðir ef til aðildar Íslands að Evrópusambandinu kemur. Tvær ástæður eru fyrir þessu. Sú fyrri er að engar sameiginlegar reglur virðast gilda um stærðartakmarkanir á hjólbörðum innan s...

EES-samningurinn

Geta tilskipanir ESB tekið gildi á Íslandi án þess að vera samþykktar af hérlendum yfirvöldum?

19.11.2014

Í 7. grein EES-samningsins er kveðið á um skyldu Íslands og annarra EFTA/EES-ríkja til að taka afleidda löggjöf Evrópusambandsins, reglugerðir og tilskipanir, upp í landsrétt sinn á þeim sviðum sem EES-samningurinn nær til. Engar gerðir Evrópusambandsins verða þó skuldbindandi að íslenskum rétti nema með samþykki ...

Umhverfis- og orkumál

Hvað segir meirihluti utanríkismálanefndar um auðlindir Íslands í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB?

1.7.2026

Í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu (18. maí 2026) er sérstaklega fjallað um auðlindir. Það er gert í þremur köflum. Fyrst er almennur kafli, svo er fjallað um orku- og auðlindamál og þriðji kaflinn er um sjávarútvegsmál. ...

Aðildarviðræður Íslands

Gæti samninganefnd Íslands samið um að hingað yrði ekki flutt inn lambakjöt frá Evrópu gengi Ísland í Evrópusambandið?

22.3.2013

Ólíklegt er að Ísland gæti samið um varanlega undanþágu frá því að heimila innflutning á lambakjöti þar sem það er andstætt meginreglu Evrópuréttar um frjálsa vöruflutninga. – Í nýlegum bráðabirgðaniðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA kemur fram að núgildandi bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti frá aðildarrík...

Landbúnaður

Er það satt sem sagt er að við inngöngu í ESB mundi matvælaverð að líkindum lækka um 18-25%?

26.4.2013

Nei, matvælaverð er ekki líklegt til að lækka svo mikið við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ef litið er til beinna áhrifa af ódýrari innflutningi búvara frá aðildarríkjum ESB, vegna niðurfellingar tolla við aðild, má gróflega áætla að búvörur gætu lækkað um á bilinu 7 til 15%. Það mundi þýða um það bil 3,5 til ...

Stofnanir

Hvaða leiðir eru hentugastar fyrir Evrópusambandið til að ná fram málum í andstöðu við einstök smáríki innan sambandsins?

28.9.2012

Sáttmálum Evrópusambandsins og skilmálum aðildarsamninga einstakra ríkja er aldrei hægt að breyta nema með samþykki allra aðildarríkjanna og með fullgildingu samkvæmt stjórnskipunarreglum hvers og eins ríkis. Með setningu afleiddrar löggjafar, svo sem reglugerðar eða tilskipunar, er hins vegar vel mögulegt að mál ...

Stofnanir

Hverjar eru helstu breytingarnar sem urðu á stofnunum Evrópusambandsins við aðild Króatíu?

5.7.2013

Helstu breytingarnar sem urðu á stofnunum Evrópusambandsins við aðild Króatíu eru þær að atkvæðavægi í ráði Evópusambandsins hefur breyst, Evrópuþingmönnum fjölgaði um tólf, framkvæmdastjóri frá Króatíu hefur verið skipaður og skipting á heildarhlutafé Seðlabanka Evrópu hefur verið endurmetin. Upptaka evru og aðil...

Fleiri niðurstöður