Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „and-lýðræðisleg þróun“
282 svör fundustHvað á Krugman við þegar hann segir í nýlegri grein að 'það að festa gengi krónunnar við gengi evru hefði ekki hjálpað við að draga úr skuldavandanum og hefði valdið mun meira atvinnuleysi'?
19.1.2012Krugman á líklega við að gengisfelling krónunnar hafi viðhaldið tekjum íslenskra heimila betur, miðað við skuldabyrði þeirra, heldur en ef krónan hefði verið á fastgengi við evruna. Gengisfelling krónunnar hafi þannig stuðlað að því að hægt var að koma í veg fyrir skuldahjöðnun og enn meiri efnahagsvanda á Íslandi...
Hvað er embættismannakvóti Evrópusambandsins og hvaða reglur gilda um hann?
30.11.2012Í spurningunni felst líklega skírskotun til umræðna sem áttu sér stað á Alþingi í byrjun nóvember þegar Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins spurði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra hver embættismannakvóti Íslands yrði við hugsanlega inngöngu í Evrópusambandið. Staðreyndin er þó sú að engar reglu...
Hvernig eru ákvarðanir um beitingu refsiaðgerða teknar á vettvangi Evrópusambandsins?
30.8.2013Valdheimildir Evrópusambandsins til að grípa til refsiaðgerða eru skilgreindar í 29. grein sáttmálans um Evrópusambandið og í 75. og 215. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins. Það er ráð Evrópusambandsins sem tekur ákvarðanir um beitingu refsiaðgerða og aukinn meirihluta fulltrúa ráðsins þarf fyrir þe...
Að hverju voru Króatar spurðir í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðild að ESB?
24.2.2012Króatar kusu um aðild að Evrópusambandinu þann 22. janúar 2012. Á kjörseðlinum stóð: „Ert þú hlynntur aðild lýðveldisins Króatíu að Evrópusambandinu? Með - Á móti“. Kosningaþátttaka var í kringum 43% og þar af voru 67% kjósenda samþykkir aðild. Stefnt er að formlegri inngöngu Króatíu í sambandið þann 1. júlí 2013,...
Hafa einhver ríki afturkallað umsókn að ESB áður en aðildarferlinu lýkur?
15.3.2013Til þessa hefur ekkert umsóknarríki formlega slitið aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir að hið eiginlega aðildarferli hófst. Öllum aðildarviðræðum hefur verið lokið með undirritun aðildarsamnings, burt séð frá því hvort ríkin hafi síðan ákveðið að gerast aðili að sambandinu eða ekki. Nokkur dæmi eru þó um að...
Hvað eru IPA-styrkir og hverjir geta sótt um þá?
17.8.2012Evrópusambandið veitir ríkjum sem hafa sótt um aðild að sambandinu stuðning samkvæmt svokallaðri IPA-áætlun (e. Instrument for Pre-accession Assistance eða fjármögnunarleið við foraðildarstuðning). IPA-áætluninni var komið á fót til að styðja við umsóknarríki bæði í formi fjárhagsstuðnings og í gegnum tvíhliða sam...
Hafa öll aðildarríki ESB kosið í lýðræðislegri kosningu um aðild að ESB?
25.5.2012Stutta svarið Þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að Evrópusambandinu hafa verið haldnar í 15 ríkjum. Aðild hefur einnig farið í þjóðaratkvæði í Bretlandi, Grænlandi, Álandseyjum og Noregi (í tvígang). Ekki voru haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur í stofnríkjunum sex né í Grikklandi, Spáni, Portúgal, Kýpur, Búlgaríu og...
Er rétt að vegna ESB-reglna megi ég aðeins fara með tvö börn á aldrinum 5 til 7 ára í sund?
23.9.2011Stutta svarið er nei: Þetta er ekki rétt. – Evrópusambandið hefur hvorki sett lög né reglur um hversu mörg börn mega vera í fylgd eins fullorðins einstaklings í sundferð. Setning slíkra reglna er alfarið á ábyrgð aðildarríkjanna. Í íslenskri reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sem tók gildi árið 2011 s...
Hvað er átt við með heimskautalandbúnaði í umræðunni um ESB?
21.6.2011Orðin heimskautalandbúnaður eða norðurslóðalandbúnaður vísa til þeirrar sérlausnar sem Finnland og Svíþjóð sömdu um í viðræðum sínum við ESB árið 1994. Sérlausnin felst í því að Finnum og Svíum er heimilt að veita sérstaka styrki vegna landbúnaðar á norðurslóðum, það er norðan við 62. breiddargráðu, sem nemur 35% ...
Hvaða reglur gilda í ESB um helgunarsvæði raflína?
27.12.2011Samkvæmt upplýsingum frá stjórnarsviði orkumála hjá framkvæmdastjórninni eru engar reglur um nýtingu lands í Evrópurétti þar eð aðildarríkin fara ein með þá valdheimild. Allar reglur um nýtingu lands fyrir verkefni á sviði almennrar orkuvinnslu eða rafmagnsflutninga svo og réttindi landeigenda í þessu tilliti fall...
Hvað eru mörg konungdæmi í Evrópu?
26.7.2013Í Evrópu eru 12 konungdæmi. Þau eru Andorra, Belgía, Bretland, Danmörk, Holland, Liechtenstein, Lúxemborg, Mónakó, Noregur, Spánn, Svíþjóð og Vatíkanið. Í flestum löndunum ber þjóðhöfðinginn titilinn konungur eða drottning, í Lúxemborg nefnist hann stórhertogi, fursti í Mónakó, Liechtenstein og Andorra og svo páfi...
Seðlabanki Evrópu
9.3.2012Seðlabanki Evrópu (e. European Central Bank, ECB) hóf formlega störf 1. janúar 1999 þegar þriðja stigi Efnahags- og myntbandalagsins (e. Economic and Monetary Union, EMU) var hrundið í framkvæmd og gengi gjaldmiðla tilvonandi evruríkja var endanlega fest. Helsta hlutverk Seðlabanka Evrópu er að fara með stjórn ...
Hvernig mundi vinnumarkaðurinn á Íslandi breytast ef við göngum í ESB?
1.3.2013Kaflinn um félags- og atvinnumál heyrir undir EES-samninginn og því hefur Ísland að mestu tekið upp þá löggjöf Evrópusambandsins sem varðar vinnumarkaðinn. Möguleg aðild Íslands að sambandinu hefði því ekki í för með sér miklar breytingar á íslenskum vinnumarkaði. Helstu breytingar yrðu þær að íslensk stjórnvöld f...
Af hverju er Rússland ekki í Evrópusambandinu?
21.6.2013Rússland er ekki aðili að Evrópusambandinu og hefur aldrei sýnt því áhuga. Óvíst er að Rússland fengi inngöngu í sambandið ef það legði inn umsókn þar sem það uppfyllir ekki Kaupmannahafnarviðmiðin, inngönguskilyrði ESB. Staða mannréttinda í Rússlandi er bágborin, þrátt fyrir að landið hafi fullgilt Mannréttindasá...
Væri ekki sniðugt að sameina Evrópu í eitt lýðveldi?
24.8.2011Sameining Evrópu hefur oft verið á dagskrá í aldanna rás, oftast sem hugmynd en næst veruleikanum komst hún í Rómaveldi. Á síðari tímum má helst líta á Evrópusambandið sem tilraun til að stofna evrópskt stórríki og sumir halda því fram að það stefni í þá átt. En lítill áhugi virðist vera á slíku bæði hjá evrópskum...