Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „Evrópusambandið“
364 svör fundustVerða sterar leyfðir ef Ísland gengur í ESB?
31.1.2014Vefaukandi sterar (e. anabolic steroids) eru oft notaðir í læknisfræðilegum tilgangi. Spyrjandi á þó væntanlega ekki við slíka notkun, heldur ólöglega notkun þeirra. Verður spurningunni svarað út frá þeim formerkjum. Nánar má lesa um virkni vefaukandi stera í svari Vísindavefsins við spurningunni Hvernig verka vef...
Hvort mundu íslensk heimili og fyrirtæki greiða hærri eða lægri tolla vegna útflutnings með aðild að ESB?
2.12.2011Stutta svarið við þessari spurningu er að það yrðu engar sýnilegar breytingar á greiðslum útflutningstolla við aðild Íslands að ESB. Ástæðan er sú að útflutningur er almennt tollfrjáls bæði frá Íslandi og frá aðildarríkjum ESB til þriðju ríkja. Lengra svar Evrópusambandið er tollabandalag sem þýðir að aðilda...
Er atvinnuleysi á Spáni Evrópusambandinu að kenna og hverju breytir evran fyrir ástandið?
23.9.2011Aðild Spánar að Evrópusambandinu er ekki talin helsta orsök mikils atvinnuleysis í landinu, enda hefur lengi verið við djúpstæðan kerfisvanda að etja á spænskum vinnumarkaði. Þótt hagfræðingar séu almennt sammála um að atvinnuleysið væri eitthvað minna ef Spánn hefði yfir að ráða eigin gjaldmiðli er erfitt að segj...
Getið þið útskýrt styrkjakerfi ESB í stuttu máli?
27.1.2012Evrópusambandið styrkir allt á milli himins og jarðar – frá brúarsmíði til handverksnámskeiða. Styrkjasjóðir og -áætlanir sambandsins eru ótal margar og hefur landslaginu oft verið líkt við frumskóg þar sem varla er til sá einstaklingur sem hefur yfirsýn yfir alla þá möguleika sem í boði eru. Styrktarsjóðum og ...
Er það rétt að auglýsingar á borð við „Veljum íslenskt“ verði bannaðar ef við göngum í ESB?
15.11.2011Nei, Evrópusambandið mun ekki banna auglýsingar eins og spyrjandi nefnir. Ástæðan er sú að slíkar auglýsingar á vegum íslenska ríkisins væru nú þegar óheimilar því að þær mundu brjóta gegn reglunni um frjáls vöruviðskipti á Evrópska efnahagssvæðinu, sem Ísland tilheyrir nú þegar. Einkaaðilar eru hins vegar að jafn...
Hvernig mundu reglur um fjárfestingar borgara frá ESB-ríkjum á Íslandi breytast ef Ísland yrði aðili að ESB?
8.12.2011Það veltur á niðurstöðum samningaviðræðna Íslands við ESB hvernig reglur um fjárfestingar ESB-borgara á Íslandi mundu breytast með aðild Íslands að sambandinu. Líklegt má þó telja að innganga Íslands í ESB mundi leiða til þess að Ísland þyrfti að gangast undir regluverk sem heimilar ekki hömlur af okkar hálfu á fr...
Er rétt að evran verði að heita „euro“ í öllum aðildarríkjum ESB?
13.1.2012Þetta er að hluta til rétt. Hinn sameiginlegi gjaldmiðill Evrópusambandsins verður að heita „euro“ í opinberum skjölum sambandsins á öllum tungumálum aðildarríkjanna. Í öðrum skjölum, svo sem landslögum aðildarríkjanna, er ríkjunum heimilt að nota annan rithátt, í samræmi við málfræðireglur og hefðir viðkomandi tu...
Hefur ríki verið neitað um inngöngu í ESB?
19.4.2013Já, Bretlandi var í tvígang neitað um inngöngu í Evrópusambandið áður en landið fékk aðild árið 1973. Bretar höfðu ekki sýnt því áhuga að taka þátt í Evrópusamstarfinu þegar því var komið á fót en snérist seinna hugur og sóttu um aðild árið 1962. Vegna sterkra efnahagslegra tengsla við Bretland ákváðu Írland, Nore...
Ef Ísland yrði hluti af ESB yrðu íslensk stjórnvöld þá neydd til að lækka virðisaukaskatt svo að íslensk verslun stæðist samkeppni frá öðrum Evrópuríkjum?
19.10.2012Engar reglur eru til í Evrópusambandinu sem kveða á um hámarkshlutfall virðisaukaskatts (VSK). Íslenskum stjórnvöldum yrði því ekki gert að lækka hlutfall innlends virðisaukaskatts við aðild að Evrópusambandinu. Töluverð samræming hefur þó átt sér stað milli aðildarríkja ESB á sviði virðisaukaskatts, meðal annars ...
Fengu Norðmenn fullan aðildarsamning í bæði skiptin sem þeir sóttu um og höfnuðu aðild að ESB?
5.10.2012Stutta svarið Í stuttu máli er svarið já. Í tvö þeirra fjögurra skipta sem Noregur hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu var aðildarviðræðum lokið með undirritun aðildarsamnings. Fullmótaður aðildarsamningur var lagður í þjóðaratkvæði árin 1972 og 1994 og í báðum tilvikum var honum hafnað. Úrslit kosninganna...
Hvað er Borgarafrumkvæði Evrópu (ECI) og hvaða breytingar mun það hafa í för með sér?
15.7.2011Með Lissabon-sáttmálanum tóku gildi ákvæði um svonefnt Borgarafrumkvæði Evrópu (European Citizen Initiative; ECI). Samkvæmt þeim getur ein milljón ríkisborgara ESB frá í það minnsta sjö aðildarríkjum sambandsins óskað eftir því við framkvæmdastjórn þess að hún leggi fram, innan ramma valdheimilda sinna, hvers kona...
Verða jólin betri ef við göngum í ESB?
21.12.2012Undanfarna mánuði hefur Evrópuvefurinn staðið fyrir kynningum á vefnum í framhaldsskólum og jafnframt tekið á móti spurningum um Evrópumál frá nemendum. Markmið þessara heimsókna er fyrst og fremst að ræða við nemendur um mikilvægi hlutlægra upplýsinga í tengslum við Evrópusambandið og aðildarviðræðurnar og benda ...
Breytast reglur um vaxtabætur og barnabætur ef við göngum í ESB?
1.2.2013Nei, aðild að Evrópusambandinu hefur engin áhrif á íslenskar reglur um vaxta- og barnabætur. Breytingar á reglum um vaxtabætur og barnabætur yrðu eftir sem áður í höndum stjórnvalda á Íslandi. *** Vaxtabætur og barnabætur eru bætur greiddar af ríkinu til einstaklinga, sem eru skattskyldir á Íslandi, á grundv...
Af hverju er Ísland ekki aðili að Geimvísindastofnun Evrópu?
7.3.2013Íslendingar eiga ekki aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (e. European Space Agency, ESA) vegna þess að þeir hafa aldrei sóst eftir aðild. Í nóvember árið 2003 kom engu að síður hópur sérfræðinga frá ESA til Íslands til að kynna starfsemi samtakanna fyrir ráðamönnum og fulltrúum vísinda og rannsókna á Íslandi. Ekke...
Hefðbundin endurskoðunarmeðferð
28.9.2012Sáttmálum Evrópusambandsins er hægt að breyta eftir tveimur leiðum. Annars vegar í samræmi við hefðbundna endurskoðunarmeðferð og hins vegar með einfaldaðri endurskoðunarmeðferð (48. grein sáttmálans um Evrópusambandið, SESB). Hefðbundinni endurskoðunarmeðferð má lýsa með eftirfarandi hætti: Ríkisstjórn hvaða ...