Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „EES-samningurinn“
235 svör fundustEru vísitölutengd skuldabréf ekki afleiður og falla þar með undir lög um verðbréfaviðskipti?
16.12.2011Vísitölutenging skuldabréfa breytir þeim ekki í afleiður. Skuldabréf er ein tegund verðbréfa, og verðbréf og afleiður eru ólíkar tegundir fjármálagerninga. Lög um verðbréfaviðskipti ná ekki yfir lán sem veitt eru með þeim hætti að viðskiptavinur gefur út skuldabréf þar sem hann skuldbindur sig til að endurgreiða l...
Eru refa- og minkaveiðar ólöglegar samkvæmt reglum ESB?
14.12.2011Heimskautarefir (Vulpes lagopus, áður Alopex lagopus) eru friðaðir samkvæmt reglum Evrópusambandsins en í löndum sambandsins þar sem refir lifa, Svíþjóð og Finnlandi, eru þeir í útrýmingarhættu. Staða refsins í íslenskri náttúru er allt önnur því að ref hefur fjölgað á Íslandi undanfarna áratugi. Hvergi er hins ve...
Yrðu veiðar á lóu og spóa leyfðar hér á landi í kjölfar inngöngu í ESB?
28.11.2011Nei, veiðar á lóu og spóa yrðu ekki sjálfkrafa leyfðar þótt Ísland yrði aðili að ESB. Báðar tegundirnar eru á lista yfir þær tegundir sem aðildarríkjunum er heimilt að leyfa veiðar á og eru taldar upp í viðauka við svonefnda fuglatilskipun. Aðildarríkjunum er ætíð heimilt að kveða á um strangari verndarákvæði en t...
Ef Ísland gengur í ESB og tekur upp evru verða þá verð á fatnaði nákvæmlega þau sömu hér og í öðrum evruríkjum?
10.5.2013Stutta svarið er varla. Þótt ekki sé útilokað að verð á fatnaði yrðu í einhverjum tilfellum þau sömu hér og á meginlandi Evrópu, ef Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru, yrði það frekar undantekning en regla. Aðild að Evrópusambandinu og myntbandalagi Evrópu gæti haft margvísleg áhrif á efnahag landsins...
Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?
17.4.2026Stutta svarið Í aðildarviðræðum Íslands við ESB, sem hófust árið 2010, náðu íslensk stjórnvöld og ESB saman um að Ísland myndi hvorki ráðast í breytingar á opinberum stofnunum né lagabreytingum sem af aðild leiddu. Sögulegar ástæður eru fyrir því að fyrrum kommúnistaríki sem vildu ganga í ESB eftir fall kommúni...
Hver er stefna ESB gagnvart jafnrétti kynjanna?
28.9.2012Stutta svarið Meginreglan um jafna meðferð kvenna og karla hefur verið ein af grundvallarreglum Evrópusambandsins allt frá stofnun þess og nær aftur til ársins 1957 þegar reglan um sömu laun fyrir sömu vinnu varð hluti af Rómarsáttmálanum. Reglunni var þó ekki beitt fyrr en á áttunda áratugnum þegar ákvæðið um s...
Ég sat í veiðikofa um daginn eftir rólegan rjúpnadag og þá var fullyrt að við inngöngu í ESB mundu veiðar á rjúpu og svartfugli verða bannaðar. Er þetta rétt?
7.12.2011Hugsanleg innganga Íslands í ESB mun engu breyta um veiðar á rjúpu hér á landi. Öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins er heimilt að leyfa veiðar á rjúpu á yfirráðasvæði sínu en aðildarríki hafa leyfi til að kveða á um strangari verndarákvæði. Íslensk stjórnvöld gætu þess vegna áfram ákveðið hvort og hvenær veiðar ...
Hvaða áhrif hefur ESB haft á stöðu innflytjenda?
26.10.2011Aðildarríki Evrópusambandsins hafa alla tíð verið treg til að afsala sér valdi á sviði innflytjendamála og hefur reglusetning sambandsins á því sviði þar af leiðandi verið brotakennd. Sumar reglur ESB er varða innflytjendur eru til þess fallnar að koma í veg fyrir fólksflutninga til landa ESB en í öðrum tilvikum h...
Er eitthvað til í því að í Evrópusambandinu sé bannað að nota kaffi til að drepa snigla?
31.8.2012Í Evrópusambandinu gilda strangar reglur um svonefnd plöntuvarnarefni, sem eru meðal annars notuð til að vernda plöntur gegn skaðlegum lífverum, en þau má hvorki setja á markað né nota nema að fengnu markaðsleyfi í aðildarríkjum ESB. Það er því óheimilt að framleiða vöru sem inniheldur kaffi/kaffikorg/koffín og ma...
Um hvað snýst umræðan um áhrif ESB-aðildar á sjávarútvegsstefnu Íslands?
29.7.2011Umræðan um áhrif Evrópusambandsaðildar á sjávarútvegsstefnu Íslendinga snýst um sjö meginatriði: fullveldisrétt yfir ákvörðunum um veiðiheimildir, möguleg frávik Íslendinga frá sjávarútvegsstefnu ESB, fullt forræði yfir fiskimiðum Íslands, kvótahopp, ríkisstyrki, og ákvarðanatöku og stefnumótun á sviði sjávarútveg...
Hvernig samrýmist stefna Íslands og ESB í málefnum norðurslóða?
5.8.2011Á síðustu árum hafa norðurskautsríkin átta, Bandaríkin, Danmörk (vegna Grænlands), Finnland, Kanada, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Rússland öll mótað sér stefnu um málefni norðurslóða. Mikilvægi svæðisins á heimsvísu hefur farið ört vaxandi á síðustu árum og því eru það ekki aðeins norðurskautsríkin sem hafa sýnt þv...
Hvaða áhrif hefur ESB haft á réttindi minnihlutahópa?
27.4.2012Auk sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, þar sem ófrávíkjanleg grundvallarréttindi allra borgara sambandsins eru skilgreind, hefur ESB samþykkt fjölda tilskipana sem miða að því að koma í veg fyrir mismunun. Þar ber helst að nefna kynþáttatilskipunina og atvinnumálatilskipunina sem eru lagalega binda...
Verður einokun fárra fyrirtækja á fiskimiðum ekki aflétt með inngöngu í ESB?
23.11.2012Það er fátt sem bendir til þess að þau sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi sem nú fá úthlutað mestum árlegum aflaheimildum fengju minna fyrir sinn snúð komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er vegna þess að ákvarðanir um hlutdeild innlendra útgerða í árlegum landskvóta Íslands yrðu áfram í höndum íslensk...
Hvað eru stjórnmál?
8.7.2005Til eru ýmsar skilgreiningar á stjórnmálum, en samkvæmt flestum þeirra fjalla stjórnmál um ákvarðanatöku. Þó eru ekki allar ákvarðanir stjórnmál. Ákvarðanir einstaklinga sem fyrst og fremst varða þá sjálfa eru til dæmis ekki stjórnmál. Því er iðulega bætt við skilgreininguna að ákvörðunartakan varði tiltekinn hóp,...
Getið þið útskýrt styrkjakerfi ESB í stuttu máli?
27.1.2012Evrópusambandið styrkir allt á milli himins og jarðar – frá brúarsmíði til handverksnámskeiða. Styrkjasjóðir og -áætlanir sambandsins eru ótal margar og hefur landslaginu oft verið líkt við frumskóg þar sem varla er til sá einstaklingur sem hefur yfirsýn yfir alla þá möguleika sem í boði eru. Styrktarsjóðum og ...