Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB

Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?

Stutta svarið

Í aðildarviðræðum Íslands við ESB, sem hófust árið 2010, náðu íslensk stjórnvöld og ESB saman um að Ísland myndi hvorki ráðast í breytingar á opinberum stofnunum né lagabreytingum sem af aðild leiddu. Sögulegar ástæður eru fyrir því að fyrrum kommúnistaríki sem vildu ganga í ESB eftir fall kommúnismans þurftu að aðlaga sig að regluverki ESB áður en gengið var frá aðildarsamningi. Ísland er í allt annarri stöðu.

Lengra svar

Eftir fall kommúnismans 1989 höfðu fjölmörg ríki sem höfðu verið á yfirráðasvæði Sovétríkjanna mikinn áhuga á að gerast aðilar að ESB.[1] Á þessum tíma voru aðildarríki sambandsins 15 talsins og því ljóst að fyrir dyrum stóðu miklar breytingar sem þörfnuðust gríðarlegs undirbúnings. Á fundi leiðtogaráðsins í Kaupmannahöfn 1993 voru samþykkt grunnskilyrði sem ríki þurfa að uppfylla til að fá aðild að ESB. Þessi skilyrði, svokölluð Kaupmannahafnarviðmið eru eftirfarandi:

  • stöðugar stofnanir sem tryggja lýðræði, réttarríki, mannréttindi og virðingu fyrir og vernd minnihlutahópa;
  • virkt markaðshagkerfi og geta til að takast á við samkeppni og markaðsöfl innan ESB;
  • geta til að taka á sig og innleiða á skilvirkan hátt þær skyldur sem felast í aðild, þar á meðal að fylgja markmiðum stjórnmála-, efnahags- og myntbandalags.

Til að fyrrgreind fyrrum kommúnistaríki teldust uppfylla ofangreind skilyrði þurfti að fara fram mikil aðlögun þeirra að regluverki ESB. Það væri því ef til vill réttnefni að kalla aðildarviðræður þeirra við ESB aðlögunarviðræður.

Sögulegar ástæður eru fyrir því að fyrrum kommúnistaríki sem vildu ganga í ESB eftir fall kommúnismans þurftu að aðlaga sig að regluverki ESB. Myndin er tekin í Póllandi 1. maí 1985.

Sögulegar ástæður eru fyrir því að fyrrum kommúnistaríki sem vildu ganga í ESB eftir fall kommúnismans þurftu að aðlaga sig að regluverki ESB. Myndin er tekin í Póllandi 1. maí 1985.

Ísland er í allt annarri stöðu og óumdeilt að ekki er þörf á neinni aðlögun til að landið uppfylli Kaupmannahafnarviðmiðin. Íslensk þjóð aðhyllist lýðræðisleg gildi, vernd mannréttinda og markaðshagkerfi. Þá er Ísland aðili að EES-samningnum og Schengen-samstarfinu og því verulegur hluti regluverks ESB þegar innleiddur í íslenskan rétt. Þarf því ekki að koma á óvart að í aðildarviðræðum Íslands við ESB, sem hófust árið 2010, náðu íslensk stjórnvöld og ESB saman um að Ísland myndi hvorki ráðast í breytingar á opinberum stofnunum né lagabreytingar, sem af aðild leiddu, fyrr en að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.[2]

Tilvísanir:
  1. ^ Þessi ríki voru Pólland, Ungverjaland, Tékkland, Slóvakía, Slóvenía, Kýpur, Malta, Lettland, Litháen, Eistland, en þessi ríki gengu öll í ESB árið 2004. Búlgaría og Rúmenía gengu í Sambandið 2007 og Króatía 2013.
  2. ^ Sjá skýrslu utanríkisráðuneytisins frá apríl 2013, „Aðildarviðræður Íslands og ESB. Framvinda og staða“, bls. 8.

Myndir:

Yfirgripsmikilli spurningu Daníels Páls er hér svarað að hluta.

Höfundur

Margrét Einarsdóttir

prófessor við lagadeild HR

Útgáfudagur

17.4.2026

Spyrjandi

Daníel Páll Kjartansson

Tilvísun

Margrét Einarsdóttir. „Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?“ Evrópuvefurinn, 17. apríl 2026, sótt 18. apríl 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=88602.

Margrét Einarsdóttir. (2026, 17. apríl). Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=88602

Margrét Einarsdóttir. „Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður?“ Evrópuvefurinn. 17. apr. 2026. Vefsíða. 18. apr. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=88602>.

Chicago | APA | MLA