Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „EES I“
244 svör fundustHagstofa Evrópusambandsins
Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) er staðsett í Lúxemborg og var stofnuð árið 1953 á tímum Kola- og stálbandalagsins. Stofnunin er samstarfsvettvangur Evrópuþjóða í hagskýrslumálum og heldur stofnunin utan um margþættar hagtölur aðildarríkja ESB, umsóknarríkja ESB og EFTA-ríkjanna á fjölmörgum sviðum efnaha...
Hvað útskýrir ólíka nálgun Norðurlandanna gagnvart Evrópusambandinu?
Ófáar kenningar hafa verið smíðaðar til útskýringar á þeim ólíku leiðum sem Norðurlöndin hafa kosið sér í Evrópusamrunanum. Á meðal þess sem haldið hefur verið fram er að hagsmunir ráðandi atvinnuvega í löndunum hafi haft afgerandi áhrif á afstöðuna til aðildar að sambandinu. Aðrar kenningar útskýra ólíka nálgun N...
Hverjar eru nýjustu breytingarnar á stefnu Evrópusambandsins í tóbaksvarnarmálum?
Hátt hlutfall reykingamanna sem og fjöldi dauðsfalla af völdum reykinga hafa verið Evrópusambandinu hugleikin málefni. Sambandið hefur gripið til ýmissa aðgerða til að reyna að fækka reykingamönnum og voru nýjustu aðgerðirnar samþykktar 10. júlí 2013. Þær fela í sér breytingar á gildandi tilskipun um tóbaksvörur s...
Hversu langan tíma að meðaltali tóku aðildarviðræður ríkjanna í ESB?
Í eftirfarandi töflu eru teknar saman upplýsingar um aðildarviðræður allra þeirra ríkja sem hafa sótt um aðild að Evrópusambandinu og lokið viðræðum með undirritun aðildarsamnings. Á listanum er 21 aðildarríki Evrópusambandsins, það eru öll nema stofnríkin sex, auk Noregs, sem í tvígang hefur lokið aðildarviðræðum...
Hver er stefna ESB í umhverfismálum?
Stefna Evrópusambandsins í umhverfismálum miðar að því að vernda umhverfið og stuðla að sjálfbærri þróun. Stefnan byggir á fyrirbyggjandi aðgerðum gegn umhverfisspjöllum og styðst við mengunarbótaregluna sem segir að sá sem er ábyrgur fyrir mengun og umhverfisspjöllum skuli greiða kostnaðinn. Löggjöf ESB á sviði u...
Þurfa umsóknarríki sem fá IPA styrki frá ESB að uppfylla skilyrði um aðlögun að regluverki ESB?
Upphaflega spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Í hverju felst IPA-stuðningsáætlunin, þar sem við erum búin að sækja um IPA-styrki þurfum við þá ekki að fylgja eftir lögum Council Regulation (EC) No 1085/2006 sem kveða á um aðlögun að regluverki ESB, ef svo er hvernig myndi sú aðlögun eiga sér stað? Evrópusamb...
Gæti Evrópusambandið tekið upp á því að breyta umferðarlögum í aðildarríkjunum, til dæmis bannað hringtorg, bannað vinstri beygjur, sett 25 km hámarkshraða og breytt öllum umferðarskiltum?
Í stuttu máli er svarið nei. Evrópusambandið fer ekki með vald til að breyta umferðarreglum í aðildarríkjum sínum. Hins vegar getur Evrópusambandið mælt fyrir um ráðstafanir til að bæta umferðaröryggi sem heyrir undir stefnu sambandsins í samgöngumálum. Löggjöf ESB á því sviði hefur nánast undantekningarlaust veri...
Þurfa umsóknarríki að aðlagast regluverki ESB á meðan viðræðum stendur?
Stutta svarið Evrópusambandið fer iðulega fram á að umsóknarríki komi til móts við ákveðin viðmið (e. benchmarks) áður en viðræður um tiltekinn samningskafla hefjast eða þeim lýkur. Í því getur falist aðlögun að regluverki sambandsins. Aðildarviðræður Íslands við ESB á kjörtímabilinu 2009-2013 hófust í júlí 201...
Ef við værum fullgildur aðili að ESB og með evru, hver hefði hlutur okkar orðið í þeim „björgunarpökkum“ sem ESB-löndin hafa þurft að leggja saman í?
Aðildarríki Evrópusambandsins hafa gripið til ýmissa ráðstafana á síðustu misserum til að koma á fjármálastöðugleika innan sambandsins í kjölfar alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Þau aðildarlönd sem hingað til hafa lent í mestum skuldavanda, Grikkland, Írland og Portúgal, hafa fengið aðstoð frá öðrum ríkjum sambandsi...
Hvaða reglur gilda um verðtryggingu lána í ESB?
Í neytendalögum Evrópusambandsins felst öflug neytendavernd og eru meðal annars lagðar ákveðnar kvaðir á banka og fjármálastofnanir sem veita neytendum lán. Almennir skilmálar neytendalána í aðildarríkjunum hafa verið samræmdir í löggjöf ESB, þar á meðal eru helstu upplýsingar sem neytendur ættu að búa yfir við l...
Hvetur ESB til einkaframtaks með stuðningi við fyrirtæki?
Evrópusambandið leggur áherslu á að skapa hagstætt umhverfi á innri markaði fyrir einkaframtak og nýsköpun. Meðal annars tryggir löggjöf ESB smáfyrirtækjum aðgang að ríkisaðstoð og styrkjum, einkum í gegnum byggðastefnu Evrópusambandsins, en smá og meðalstór fyrirtæki eru 99% allra fyrirtækja í ESB og því afar m...
Hvaða afleiðingar yrðu af því að draga umsóknina að ESB til baka, þurfum við þá að borga ESB útlagðan kostnað?
Evrópusambandið kemur ekki beint að kostnaði Íslands við umsóknarferlið sjálft. Sambandið veitir umsóknarríkjum þó stuðning samkvæmt svokallaðri IPA-áætlun (e. Instrument for Pre-Accession Assistance). Markmið stuðningsins er að búa stjórnsýslu umsóknarríkis sem best undir umsóknarferlið og sömuleiðis inngönguna e...
Hafa einhver ríki afturkallað umsókn að ESB áður en aðildarferlinu lýkur?
Til þessa hefur ekkert umsóknarríki formlega slitið aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir að hið eiginlega aðildarferli hófst. Öllum aðildarviðræðum hefur verið lokið með undirritun aðildarsamnings, burt séð frá því hvort ríkin hafi síðan ákveðið að gerast aðili að sambandinu eða ekki. Nokkur dæmi eru þó um að...
Hafa oft verið haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur í tengslum við Evrópusambandið?
Stutta svarið Allt í allt er Evrópuvefnum kunnugt um að 44 ESB-tengdar þjóðaratkvæðagreiðslur hafi farið fram í samtals 24 löndum, aðildarríkjum ESB og öðrum Evrópuríkjum. Flestar ESB-tengdar þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar í Írlandi, 9 talsins, og í Danmörku, 7 talsins. Í átta aðildarríkjum hafa ald...
Hvernig styrki geta námsmenn fengið til að læra erlendis?
Íslenskum námsmönnum sem hyggja á nám erlendis standa margvíslegir styrkir til boða. Umfangsmestu alþjóðlegu áætlanirnar, sem Ísland tekur þátt í, veita háskólanemum styrki til stúdentaskipta við erlenda háskóla. Helstu stúdentaskiptaáætlanirnar eru Erasmus, sem styrkir skiptinám í aðildarríkjum Evrópusambandsins ...