Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „EU“

122 svör fundust
Ýmislegt 7.6.2013

Mundi spilling á Íslandi aukast eða minnka með inngöngu í Evrópusambandið?

Ekki er hægt að svara því afdráttarlaust hvort spilling á Íslandi mundi aukast eða minnka með aðild að Evrópusambandinu. Það er fyrst og fremst undir Íslendingum sjálfum komið, óháð aðild að Evrópusambandinu, hvernig til tekst að vinna gegn spillingu hér á landi. Stofnun Íslandsdeildar Transparency International-s...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi 21.6.2013

Af hverju er Rússland ekki í Evrópusambandinu?

Rússland er ekki aðili að Evrópusambandinu og hefur aldrei sýnt því áhuga. Óvíst er að Rússland fengi inngöngu í sambandið ef það legði inn umsókn þar sem það uppfyllir ekki Kaupmannahafnarviðmiðin, inngönguskilyrði ESB. Staða mannréttinda í Rússlandi er bágborin, þrátt fyrir að landið hafi fullgilt Mannréttindasá...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi 28.9.2012

Hver er stefna ESB gagnvart jafnrétti kynjanna?

Meginreglan um jafna meðferð kvenna og karla hefur verið ein af grundvallarreglum Evrópusambandsins allt frá stofnun þess og nær aftur til ársins 1957 þegar reglan um sömu laun fyrir sömu vinnu varð hluti af Rómarsáttmálanum. Reglunni var þó ekki beitt fyrr en á áttunda áratugnum þegar ákvæðið um sömu laun fyrir s...

Stækkunarstefna 18.7.2011

Hversu langt á Tyrkland í land með að uppfylla inngönguskilyrði ESB?

Tyrkland á töluvert langt í land með að uppfylla þau skilyrði sem Evrópusambandið setur fyrir inngöngu. Það er í höndum tyrkneskra yfirvalda hvenær þeim umbótum lýkur sem nauðsynlegar eru. Stefna ríkisins frá árinu 2007 hefur verið að Tyrkland muni uppfylla kröfur sambandsins varðandi lagalega innviði, reglur, lög...

Efnahags- og gjaldeyrismál 16.3.2012

Hvetur ESB til einkaframtaks með stuðningi við fyrirtæki?

Evrópusambandið leggur áherslu á að skapa hagstætt umhverfi á innri markaði fyrir einkaframtak og nýsköpun. Meðal annars tryggir löggjöf ESB smáfyrirtækjum aðgang að ríkisaðstoð og styrkjum, einkum í gegnum byggðastefnu Evrópusambandsins, en smá og meðalstór fyrirtæki eru 99% allra fyrirtækja í ESB og því afar m...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi 12.7.2013

Hver er stefna ESB í sambandi við launamun kynjanna?

Reglan um sömu laun fyrir sömu vinnu er ein af grundvallarreglum Evrópusambandsins og nær aftur til ársins 1957 þegar hún varð hluti af Rómarsáttmálanum. Allt frá því reglan var staðfest fyrir dómstól Evrópusambandsins á áttunda áratug síðustu aldar (mál 43/75) og fyrsta tilskipunin um launajafnrétti kynjanna (nr....

Umhverfis- og orkumál 18.10.2013

Hver er afstaða ESB í kjarnorkumálum og gagnvart nýtingu hennar?

Kjarnorka er notuð í mörgum aðildarríkjum Evrópusambandsins sem orkugjafi og hefur framkvæmdastjórn ESB strangt eftirlit með notkun hennar á grundvelli kjarnorkubandalagssáttmálans (e. Euratom Treaty). Hverju ríki er þó frjálst að ákveða hvort það noti kjarnorku. Um þriðjungur raforku innan ESB kemur frá kjarnorku...

Ýmislegt 14.6.2013

Hver eru opinber tungumál Evrópusambandsins?

Stutta svarið Í Evrópusambandinu eru þjóðtungur allra aðildarríkjanna 27, samtals 24 tungumál, skilgreindar sem opinber tungumál sambandsins. Þetta á að tryggja jafnræði íbúa aðildarríkjanna óháð því hvert móðurmál þeirra er. Í daglegum störfum innan stofnana og meðal starfsfólks sambandsins er að mestu stuðst...

Sögulegt efni 15.3.2013

Hafa einhver ríki afturkallað umsókn að ESB áður en aðildarferlinu lýkur?

Til þessa hefur ekkert umsóknarríki formlega slitið aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir að hið eiginlega aðildarferli hófst. Öllum aðildarviðræðum hefur verið lokið með undirritun aðildarsamnings, burt séð frá því hvort ríkin hafi síðan ákveðið að gerast aðili að sambandinu eða ekki. Nokkur dæmi eru þó um að...

Handbók og sagan 26.10.2012

Fastanefnd EFTA

Fastanefnd EFTA (e. Standing Committee of the EFTA States) er skipuð sendiherrum EFTA/EES-ríkjanna og er vettvangur pólitískrar umræðu þeirra á milli. Nefndin starfar á grundvelli sérstaks samnings milli EFTA-ríkjanna, en helsta hlutverk hennar er að samræma afstöðu EFTA/EES-ríkjanna gagnvart Evrópusambandinu fyri...

Schengen og frjáls för 16.8.2017

Hverjir semja reglurnar um flóttamenn?

Mikilvægustu reglurnar um flóttamenn eru alþjóðlegar og samræmdar í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna með svokölluðum flóttamannasamningi. Hann var undirritaður árið 1951 af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og við hann var bætt árið 1967. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1957. Hvert þjóðríki setur sín...

Stækkunarstefna 22.7.2011

Hver er afstaða til ESB-aðildar innan Tyrklands?

Afstaða Tyrkja til aðildar að Evrópusambandinu hefur verið mjög breytileg frá árinu 1999 þegar Tyrkland fékk formlega stöðu umsóknarríkis. Stuðningur við aðild meðal almennings var þannig mestur 73% árið 2004 en fór niður í 38% árið 2010. Fleiri stjórnmálaflokkar eru nú á móti aðild en þegar aðildarviðræður hófust...

Stofnanir 20.4.2012

Hefur eftirlitsstofnun EFTA jafnan rétt til meðalgöngu fyrir dómstól Evrópusambandsins og framkvæmdastjórn ESB fyrir EFTA-dómstólnum?

Árið 2010 kvað forseti dómstóls Evrópusambandsins upp þann úrskurð að eftirlitsstofnun EFTA hefði ekki rétt til meðalgöngu í málum sem rekin væru milli aðildarríkja ESB, milli stofnana ESB eða milli aðildarríkja annars vegar og stofnana sambandsins hins vegar. Þessi úrskurður hefur í för með sér að framkvæmdastjór...

Landbúnaður 12.7.2013

Hverjar eru nýjustu breytingarnar á landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins?

Í júní 2013 voru nýjustu endurbæturnar á sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins kynntar. Þar með lauk löngu viðræðuferli landbúnaðarráðherra sambandsins og írsk stjórnvöld önduðu léttar, enda mikill þrýstingur á þeim að klára viðræðurnar áður en formennskutímabili þeirra í ráðinu lyki. Nýju endurbæturna...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál 9.11.2012

Hvaða áhrif hefur endurkjör Barack Obama Bandaríkjaforseta á Evrópusambandið?

Það fór varla framhjá neinum að Barack Obama, frambjóðandi demókrataflokksins, var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna síðastliðinn þriðjudag, 6. nóvember. Í aðdraganda kosninganna hafði alþjóðleg könnun leitt í ljós að á heimsvísu hefði Obama hlotið yfirburðakosningu, eða 81% atkvæða gegn 19% atkvæða til stuðnings...

Fleiri niðurstöður