Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „EES-r������������������������������������������������������ki“
218 svör fundustEr einhverjum fulltrúa í samninganefnd Íslands gert að huga sérstaklega að réttindum minnihlutahópa?
Nei, engum fulltrúa í samninganefnd Íslands er gert að huga sérstaklega að réttindum minnihlutahópa. Samkvæmt erindisbréfi eiga þeir hins vegar að "gæta að hagsmunum þjóðarinnar í hvívetna". Í samninganefndinni eiga sæti formenn allra samningahópanna tíu ásamt aðalsamningamanni og sjö nefndarmönnum til viðbótar. R...
EFTA-dómstóllinn
Dómstóll Fríverslunarsamtaka Evrópu (e. European Free Trade Association, EFTA), oftast nefndur EFTA-dómstóllinn, hefur lögsögu yfir EFTA-ríkjum sem eiga aðild að EES-samningnum, Íslandi, Liechtenstein og Noregi. Hlutverk EFTA-dómstólsins er fyrst og fremst að tryggja samræmda túlkun og beitingu EES-samningsins og ...
Samræmist það evrópskum lögum að veita bara finnskum stúdentum afslátt á lestarmiðum í Finnlandi en ekki stúdentum frá öðrum ESB-löndum?
Ef evrópsku stúdentarnir sem um ræðir í spurningunni búa í Finnlandi og stunda nám sitt við finnskan háskóla hafa þeir sama rétt og finnskir stúdentar til að fá afslátt á lestarmiðum í Finnlandi. Ef stúdentarnir stunda hins vegar nám sitt annars staðar en í Finnlandi og eru ekki búsettir þar, hafa þeir ekki sama r...
Hver er réttarstaða innflytjanda í ESB sem er giftur Íslendingi?
Innflytjandi frá þriðja ríki sem er giftur ríkisborgara aðildarríkis ESB eða EES hefur samsvarandi rétt til frjálsrar farar og dvalar á Evrópska efnahagssvæðinu og maki, en réttur hans er þó háður rétti makans. Viðkomandi þarf alla jafna ekki að sækja um dvalarleyfi í aðildarríkjunum en til að dvelja lengur en þrj...
Hvað breytist varðandi réttindi á vinnumarkaði með inngöngu í ESB?
Regluverk Evrópusambandsins sem snýr að réttindum á vinnumarkaði byggist á grundvallarreglunni um frjálsa för launþega og samvinnu aðildarríkjanna í félags- og atvinnumálum. Þær reglur sem gilda um frjálsa för launafólks hafa þegar verið innleiddar í íslenska löggjöf á grundvelli EES-samningsins. Jafnframt hefur m...
Snúast fríverslunarsamningar um algjörlega frjáls viðskipti án tolla og hafta? Er EES-samningurinn fríverslunarsamningur?
Fríverslunarsamningar snúast fyrst og fremst um niðurfellingu tolla. Tollar eru hins vegar langt í frá einu hindranirnar í viðskiptum milli ríkja. EES-samningurinn er fríverslunarsamningur milli EFTA/EES-ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtenstein, og Evrópusambandsins. *** Oft er talað um fríverslunarsvæði (...
Hvað gerir eftirlitsstofnun EFTA? - Myndband
Eftirlitsstofnun EFTA hefur eftirlit með framkvæmd og beitingu EES-samningsins af hálfu EFTA/EES-ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs. Eftirlitið snýr bæði að því hvernig EES-reglur eru innleiddar í landsrétt ríkjanna og hvernig þeim er framfylgt af stjórnvöldum. Stofnuninni er þar að auki ætlað að fylgjast ...
Hvaða merkingu hefur það að biðja um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins?
Hinn 8. október 2013 féllst Hæstiréttur Íslands á að óska eftir ráðgefandi áliti frá EFTA-dómstólnum um það hvort verðtryggð lán til neytenda, sem tíðkast hafa á Íslandi, standist Evrópurétt. Innan EES eru tvær stofnanir sem fara með æðsta úrskurðarvald, það eru Evrópudómstóllinn og EFTA-dómstóllinn fyrir þau ...
Af hverju vill framkvæmdastjórn ESB gerast aðili að málarekstri eftirlitsstofnunar EFTA gegn Íslandi?
Krafa framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að hafa meðalgöngu í máli eftirlitsstofnunar EFTA gegn Íslandi í svonefndu Icesave-máli er í fullu samræmi við reglur og markmið EES-samstarfsins og þarf ekki að koma á óvart í ljósi málavaxta. Ákvörðunin ber þess vitni að framkvæmdastjórnin telur sig hafa hagsmuna að ...
Hversu margir íslenskir embættismenn starfa á vettvangi Evrópumála í tengslum við EES-samninginn? Hver yrði heildarfjölgun starfsmanna, ef Ísland gengi í ESB?
Stór hluti af vinnu íslenskrar stjórnsýslu tengist innleiðingu og framkvæmd á Evrópulöggjöf í gegnum aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Það má því segja að flestir embættismenn og starfsmenn íslenskra ráðuneyta og stjórnsýslunnar starfi að meira eða minna leyti á vettvangi Evrópumála í tengslum við EES-sam...
Mundi aðild Íslands að NAFTA ekki fela í sér framsal á fullveldi rétt eins og aðild að Evrópusambandinu?
Nei. NAFTA er ekki yfirþjóðleg samtök eins og Evrópusambandið heldur einungis hefðbundinn milliríkjasamningur um fríverslun. Aðild að NAFTA felur því ekki í sér fullveldisframsal til yfirþjóðlegra stofnana. *** NAFTA stendur fyrir North-American Free Trade Agreement eða Fríverslunarsamning Norður-Ameríku. N...
Hvernig mundu reglur um fjárfestingar borgara frá ESB-ríkjum á Íslandi breytast ef Ísland yrði aðili að ESB?
Það veltur á niðurstöðum samningaviðræðna Íslands við ESB hvernig reglur um fjárfestingar ESB-borgara á Íslandi mundu breytast með aðild Íslands að sambandinu. Líklegt má þó telja að innganga Íslands í ESB mundi leiða til þess að Ísland þyrfti að gangast undir regluverk sem heimilar ekki hömlur af okkar hálfu á fr...
Hver voru tíu vinsælustu svörin á Evrópuvefnum í apríl 2014?
Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru þetta tíu vinsælustu svör aprílmánaðar árið 2014 á Evrópuvefnum: Er mikið vesen að komast í ESB? Hverjir eru helstu sáttmálar ESB? Hverjar eru helstu stofnanir ESB Hvað táknar CE-merking á vörum, er það sérstakur evrópskur gæðastimpill? Hversu mikið af regluverki ESB hefu...
Hversu mikið af regluverki ESB hefur verið innleitt í EES-landinu Íslandi í samanburði við ESB-landið Svíþjóð?
Á grunni EES-samningsins hefur Ísland fært regluverk sitt að regluverki Evrópusambandsins. Hlutfall þeirrar löggjafar sem Ísland tekur upp í gegnum samninginn er umdeilt og hafa verið nefndar mjög misháar tölur í því sambandi. Í Svíþjóð er áætlað að 80% af öllum reglum sambandsins hafi verið innleiddar í sænska lö...
Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?
Já, Lettland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, eins og öll önnur aðildarríki Evrópusambandsins, og hefur verið það síðan það gekk í sambandið árið 2004. Lettland er meðal þeirra fyrrum Sovétríkja sem hafa leitað nánari tengsla við Vesturlönd eftir að hafa endurheimt sjálfstæðið sitt á ný í upphafi tíunda áratu...