Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „ESB-reglur“
597 svör fundustHvernig mundi verðbólga hafa áhrif á íslenskan efnahag ef Ísland væri aðili að ESB og notaði evru í stað krónu?
10.2.2012Áhrifin af verðbólgu yrðu í raun svipuð þeim sem nú eru til staðar með krónuna sem gjaldmiðil. Hins vegar yrði líklega erfiðara að mæta þeim áhrifum ef Íslendingar hefðu ekki lengur yfir eigin gjaldmiðli að ráða. Einmitt þess vegna er mikilvægt að verðbólga á Íslandi lækki, í sögulegu samhengi séð, gefi Íslendinga...
Hvernig breytist húsnæðislánamarkaður ef við göngum í ESB? Mun verðtryggingin hverfa og gætu Íslendingar þá tekið lán í evrópskum bönkum?
14.2.2012Ekki er líklegt að margt mundi breytast á íslenskum húsnæðislánamarkaði með aðild að Evrópusambandinu. Töluverðar breytingar gætu hins vegar orðið við aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópusambandsins og jafnvel í aðdraganda þess. Í flestum löndum á evrusvæðinu eru breytilegir vextir, bundnir til eins árs eða ...
Eru til dæmi um varanlegar undanþágur eins og já-sinnar vilja meina að við getum fengið í aðildarviðræðum við ESB?
28.2.2014Til eru nokkur dæmi um að nýju aðildarríki að Evrópusambandinu hafi í aðildarsamningi verið veitt varanleg undanþága frá tiltekinni réttarreglu sambandsins. Dæmin eru fá og vísbendingar eru um að þeim fari fækkandi. Algengara er að komið sé til móts við mikilvæga hagsmuni nýs aðildarríkis með tímabundnum undanþágu...
Hver var afstaðan til aðildar að ESB samkvæmt skoðanakönnunum í umsóknarríkjum árin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur, í þeim löndum sem þær voru haldnar?
9.11.2012Þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að Evrópusambandinu fóru fram í 15 af 27 núverandi aðildarríkjum sambandsins. Fjallað er um niðurstöður atkvæðagreiðslnanna í svari við spurningunni Hafa öll aðildarríki ESB kosið í lýðræðislegri kosningu um aðild að ESB? Góðar upplýsingar um afstöðuna til aðildar í umsóknarríkj...
Hverjar yrðu helstu breytingar fyrir Íslendinga, ef landið segði sig úr Schengen-samstarfinu?
31.8.2012Ef Ísland segði sig úr Schengen-samstarfinu þyrfti meðal annars að auka landamæraeftirlit til muna og aðgengi að evrópskri lögreglusamvinnu mundi skerðast verulega. Árlegur kostnaður við samstarfið mundi falla niður, en á móti kæmi annar kostnaður svo sem viðamiklar breytingar á innviðum Keflavíkurflugstöðvarinnar...
Vinnuhópur ráðgjafa í utanríkismálum
30.8.2013Vinnuhópur ráðgjafa í utanríkismálum (fr. Groupe des conseillers pour les relations extérieures, RELEX) starfar undir ráði Evrópusambandsins og fæst við lagaleg, stofnanaleg og fjárhagsleg atriði sem tengjast framkvæmd sameiginlegu stefnu sambandsins í utanríkis- og öryggismálum. Vinnuhópurinn samanstendur af 28 r...
Evrópska lögregluskrifstofan
4.9.2013Evrópska lögregluskrifstofan (e. European Police Office, EUROPOL) er löggæsla Evrópusambandsins. Hlutverk hennar er að aðstoða aðildarríkin við að uppræta alþjóðlega glæpastarfsemi. Lögregluskrifstofan vinnur einnig náið með löggæsluyfirvöldum í ríkjum sem ekki eru aðildarríki Evrópusambandsins, svo sem Kanada, Ás...
Hverjar yrðu helstu breytingar fyrir Íslendinga, ef landið segði sig úr Schengen-samstarfinu? - Myndband
5.9.2013Ef Ísland segði sig úr Schengen-samstarfinu þyrfti meðal annars að auka landamæraeftirlit til muna og aðgengi að evrópskri lögreglusamvinnu mundi skerðast verulega. Árlegur kostnaður við samstarfið mundi falla niður, en á móti kæmi annar kostnaður svo sem viðamiklar breytingar á innviðum Keflavíkurflugstöðvarinnar...
Evrópska stöðugleikakerfið
20.9.2013Evrópska stöðugleikakerfið (e. European Stability Mechanism, ESM) er varanlegur sjóður evruríkjanna. Hlutverks hans er að að stuðla að stöðugleika á evrusvæðinu og veita evruríkjum í efnahagsvanda fjárhagsaðstoð. Evruríkin 17 eru öll aðilar að sjóðnum. Hlutur evruríkjanna í ESM-sjóðnum er reiknaður út frá mannfjöl...
Hvað felst í því að fara með formennsku í ráðinu?
4.10.2013Aðildarríki Evrópusambandsins skiptast á að fara með formennsku í ráðinu í sex mánuði í senn. Samkvæmt ákvæði 16(9) sáttmálans um Evrópusambandið, í samræmi við 236. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins, fara fulltrúar aðildarríkjanna í ráðinu með formennsku í samsetningum ráðsins til skiptis, að undans...
Af hverju er Rússland ekki í Evrópusambandinu?
21.6.2013Rússland er ekki aðili að Evrópusambandinu og hefur aldrei sýnt því áhuga. Óvíst er að Rússland fengi inngöngu í sambandið ef það legði inn umsókn þar sem það uppfyllir ekki Kaupmannahafnarviðmiðin, inngönguskilyrði ESB. Staða mannréttinda í Rússlandi er bágborin, þrátt fyrir að landið hafi fullgilt Mannréttindasá...
Hverjar eru nýjustu breytingarnar á stefnu Evrópusambandsins í tóbaksvarnarmálum?
19.7.2013Hátt hlutfall reykingamanna sem og fjöldi dauðsfalla af völdum reykinga hafa verið Evrópusambandinu hugleikin málefni. Sambandið hefur gripið til ýmissa aðgerða til að reyna að fækka reykingamönnum og voru nýjustu aðgerðirnar samþykktar 10. júlí 2013. Þær fela í sér breytingar á gildandi tilskipun um tóbaksvörur s...
Af hverju er Rússland ekki í Evrópusambandinu? - Myndband
28.11.2013Rússland er ekki aðili að Evrópusambandinu og hefur aldrei sýnt því áhuga. Óvíst er að Rússland fengi yfirhöfuð inngöngu í sambandið ef það legði inn umsókn þar sem það uppfyllir ekki Kaupmannahafnarviðmiðin, inngönguskilyrði ESB. Staða mannréttinda í Rússlandi er sérstaklega bágborin, þrátt fyrir að hafa fullgilt...
Af hverju er Evrópusambandið að banna ryksugur sem eru 1600 vött eða meira?
11.9.2014Nýlegt bann Evrópusambandsins við markaðssetningu ryksugna sem eru 1600 vött eða meira er ávöxtur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um visthönnun vöru sem notar orku (nr. 2009/125). Markmið tilskipunarinnar er að efla vernd umhverfisins með því draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra vara sem nota orku. Til...
Hvað eru mörg konungdæmi í Evrópu?
26.7.2013Í Evrópu eru 12 konungdæmi. Þau eru Andorra, Belgía, Bretland, Danmörk, Holland, Liechtenstein, Lúxemborg, Mónakó, Noregur, Spánn, Svíþjóð og Vatíkanið. Í flestum löndunum ber þjóðhöfðinginn titilinn konungur eða drottning, í Lúxemborg nefnist hann stórhertogi, fursti í Mónakó, Liechtenstein og Andorra og svo páfi...