Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „r������������������ki utan ESB“

635 svör fundust
Sögulegt efni

Hafa þrjú voldugustu ríki Evrópusambandsins farið með friði síðan um aldamótin 1900?

30.11.2012

Margir hafa velt fyrir sér spurningum af þessum toga vegna þeirrar ákvörðunar norsku Nóbelsnefndarinnar að veita Evrópusambandinu friðarverðlaun ársins 2012. Vísað er í tilkynningu nefndarinnar í svarinu. Þar kemur fram til dæmis að árið 1945 höfðu Þýskaland og Frakkland háð þrjár styrjaldir á 70 árum, og má bæta ...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Í hvaða ESB-löndum er vændi leyfilegt og hefur ESB markað sér einhverja stefnu í vændismálum?

9.8.2013

Vændi er leyfilegt í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins í einhverri mynd. Reglur um vændið eru þó mjög mismunandi milli ríkja og hefur Evrópusambandið ekki gefið út samræmda stefnu um vændismál innan sambandsins. Öðru máli gegnir um þvingað vændi, svo sem mansal og barnavændi, en Evrópusambandið hefur með ýms...

Umhverfis- og orkumál

Hvernig vitum við að ESB mundi ekki bara ráðast á auðlindir okkar ef við göngum í ESB?

22.2.2013

Evrópusambandið og aðildarríkin fara sameiginlega með valdheimildir í orkumálum, sbr. 4. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (SSE), en valdmörkin eru nánar skilgreind í 194. grein SSE. Þar er kveðið á um að Evrópuþingið og ráðið skuli ákveða nauðsynlegar ráðstafanir til að ná markmiðum orkustefnu sam...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Hvernig er samskiptum ESB og Kína hagað?

13.1.2012

Samskipti ESB og Kína byggja á viðskipta- og samstarfssamningi frá árinu 1985. Framan af var megináhersla lögð á viðskiptasamstarf en í seinni tíð hafa mennta- og menningarmál, umhverfismál, mannréttindamál sem og utanríkis- og öryggismál orðið stærri hluti af samstarfinu. Evrópusambandið er stærsti viðskiptaaðili...

Sögulegt efni

Hvernig komust mannréttindi á dagskrá í ESB?

3.11.2011

Evrópusambandið hefur verið í stöðugri þróun frá því það var stofnað fyrir rúmlega hálfri öld með sáttmálanum um Efnahagsbandalag Evrópu. Eins og nafn sáttmálans ber með sér snerist samstarfið upphaflega um efnahagssamvinnu. Hugmyndin var að auka velmegun og hagsæld með því að sameina markaði aðildarríkjanna og ge...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Breytist staða fatlaðra við inngöngu í ESB?

5.4.2013

Staða fatlaðs fólks breytist ekki sjálfkrafa við aðild að Evrópusambandinu en aðild skapar hins vegar tækifæri til framþróunar í málefnum fatlaðra. Til að aðild að ESB skili jákvæðum áhrifum þurfa stjórnvöld á öllum stigum, stjórnsýsla, fagfólk og ekki síst hagsmunasamtök fatlaðs fólks að nýta sér þau tækifæri og ...

EES-samningurinn

Hvernig mundu atvinnulausir græða á ESB-aðild?

1.3.2013

Reglur Evrópusambandsins um samræmingu réttinda atvinnulausra í aðildarríkjunum hafa þegar verið innleiddar í íslensk lög á grundvelli EES-samningsins. Réttarstaða atvinnulausra mundi því ekki breytast við aðild Íslands að Evrópusambandinu. *** Réttur einstaklinga til frjálsrar farar, það er til að dvelja og...

Handbók og sagan

Samstarfsvettvangur ESB og nágrannaríkja þess í austri

14.6.2013

Samstarfsvettvangur Evrópusambandsins og nágrannaríkja þess í austri (e. Eastern Partnership) var stofnaður á fundi leiðtoga ESB og sex nágrannaríkja þess í Austur-Evrópu og Suður-Kákasus í Prag árið 2009. Samstarfinu er ætlað að efla efnahagslegt og stjórnmálalegt samband ESB og samstarfsríkjanna; Armeníu, Aserba...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Hvernig er samskiptum ESB og Rússlands háttað?

14.6.2013

Samskipti Rússlands og Evrópusambandsins grundvallast á samstarfssamningi frá árinu 1997. Hann hefur það að markmiði að efla viðskipti og stuðla almennt að farsælu sambandi milli Rússlands og ESB. Sambandið var eflt árið 2003 með stofnun fjögurra svonefndra sameiginlegra svæða. Leiðtogar Rússlands og ESB halda fun...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Er mikið vesen að komast í ESB?

16.4.2014

Þessi spurning barst upprunalega til Evrópuvefsins frá nemanda í Háskóla unga fólksins sem skildi ekki allt þetta umstang í kringum Evrópusambandið. Stutta svarið við spurningunni er einfaldlega: Já það er heilmikið vesen að komast í Evrópusambandið! Áður en ríki getur gerst aðili að ESB þarf að fara í gegnum f...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hver er stefna ESB gagnvart jafnrétti kynjanna?

28.9.2012

Stutta svarið Meginreglan um jafna meðferð kvenna og karla hefur verið ein af grundvallarreglum Evrópusambandsins allt frá stofnun þess og nær aftur til ársins 1957 þegar reglan um sömu laun fyrir sömu vinnu varð hluti af Rómarsáttmálanum. Reglunni var þó ekki beitt fyrr en á áttunda áratugnum þegar ákvæðið um s...

Sögulegt efni

Hvernig hefur Evrópusambandið breyst frá stofnun?

28.6.2011

Frá 1952 voru sex þjóðríki í bandalögunum sem leiddu síðar til Efnahagsbandalags Evrópu og Evrópusambandsins: Frakkland, Vestur-Þýskaland, Ítalía, Belgía, Holland og Lúxemborg, en Bretland, Danmörk og Írland bættust í hópinn árið 1973, Grikkland árið 1981, og Spánn og Portúgal árið 1986. Síðan Evrópusambandið (ESB...

Stofnanir

Hversu margir embættismenn vinna fyrir ESB og hve margir fyrir aðildarríkin sjálf?

6.9.2011

Í umræðum um Evrópusambandið er algengt að nota fjölda starfsmanna ESB sem mælikvarða á skrifræði í sambandinu. Þetta gera bæði andstæðingar og stuðningsmenn ESB í aðildarríkjunum og vilja þar með ýmist færa rök fyrir því að stjórnsýsla sambandsins sé afkastalítil eða skilvirk, væntanlega í samanburði við aðildarr...

Neytendamál

Er matvara dýrari hér en í löndum ESB og er líklegt að eitthvað breytist ef Ísland gengur í ESB?

1.7.2026

Um þetta er fjallað í svörum Hagfræðistofnunar við nokkrum spurningum sem utanríkismálanefnd sendi stofnuninni. Svörin voru birt sem sérfræðiálit 30. apríl 2026. Um matvælaverð á Íslandi í samanburði við meðaltal í löndum ESB er þetta að segja: Árið 2024 var matur að jafnaði 53,5% dýrari á Íslandi en í meða...

Stækkunarstefna

Hver er afstaða til ESB-aðildar innan Tyrklands?

22.7.2011

Afstaða Tyrkja til aðildar að Evrópusambandinu hefur verið mjög breytileg frá árinu 1999 þegar Tyrkland fékk formlega stöðu umsóknarríkis. Stuðningur við aðild meðal almennings var þannig mestur 73% árið 2004 en fór niður í 38% árið 2010. Fleiri stjórnmálaflokkar eru nú á móti aðild en þegar aðildarviðræður hófust...

Fleiri niðurstöður