Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „har��b��l sv����i“

103 svör fundust
Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Hvaða hlutverki gegnir utanríkismálanefnd Alþingis í málefnum sem varða ESB?

4.7.2026

Öll spurningin hljóðaði svona: Hvaða hlutverki gegnir utanríkismálanefnd Alþingis samkvæmt þingskapalögum þegar kemur að meðferð þingsályktunartillagna um Evrópumál á milli fyrri og síðari umræðu? Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis er það utanríkismálanefnd sem fær til umfjöllunar mál sem varða samskipti v...

EES-samningurinn

Standast heilsuræktarstöðvar sem einungis eru ætlaðar öðru kyninu lög og reglur Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna?

20.9.2013

Jafnrétti kynjanna er grundvallarregla í Evrópusambandinu. Mismunun á grundvelli kyns, hvort sem hún er bein eða óbein, er því almennt bönnuð í aðildarríkjum þess. Evrópusambandið hefur samþykkt ýmsar tilskipanir til að berjast gegn mismunun kynjanna og tryggir ein þeirra meðal annars jafna meðferð karla og kvenna...

Ýmislegt

Gæti Evrópusambandið tekið upp á því að breyta umferðarlögum í aðildarríkjunum, til dæmis bannað hringtorg, bannað vinstri beygjur, sett 25 km hámarkshraða og breytt öllum umferðarskiltum?

13.9.2013

Í stuttu máli er svarið nei. Evrópusambandið fer ekki með vald til að breyta umferðarreglum í aðildarríkjum sínum. Hins vegar getur Evrópusambandið mælt fyrir um ráðstafanir til að bæta umferðaröryggi sem heyrir undir stefnu sambandsins í samgöngumálum. Löggjöf ESB á því sviði hefur nánast undantekningarlaust veri...

Umhverfis- og orkumál

Yrðu veiðar á lóu og spóa leyfðar hér á landi í kjölfar inngöngu í ESB?

28.11.2011

Nei, veiðar á lóu og spóa yrðu ekki sjálfkrafa leyfðar þótt Ísland yrði aðili að ESB. Báðar tegundirnar eru á lista yfir þær tegundir sem aðildarríkjunum er heimilt að leyfa veiðar á og eru taldar upp í viðauka við svonefnda fuglatilskipun. Aðildarríkjunum er ætíð heimilt að kveða á um strangari verndarákvæði en t...

EES-samningurinn

Hvar get ég séð hvort og hvernig tiltekin ESB-gerð hafi tekið gildi á Íslandi?

8.12.2014

Upprunalega barst Evrópuvefnum eftirfarandi spurning: Hefur tilskipun 2009/158 tekið gildi á Íslandi og þá hvenær? Er til íslensk þýðing á þeirri tilskipun eða er hún væntanleg? Á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið ber íslenskum stjórnvöldum að taka upp í íslensk lög þann hluta reglna Evrópusa...

Samþykkt gervigreindarsvör

Hvernig takast fylgismenn og andstæðingar ESB-aðildar á um kosti og galla krónunnar?

7.7.2026

Upprunalega spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Hvernig takast fylgismenn og andstæðingar ESB-aðildar á um ágæti krónunnar þegar horft er til þess að verðbólga og hagsveiflur hafa sögulega verið meiri hér á landi en á evrusvæðinu? Þegar rætt er um kosti og galla íslensku krónunnar gagnvart evru, takast...

Umhverfis- og orkumál

Hvernig er staðið að því að veita heimild til veiða á tiltekinni friðaðri fuglategund í ákveðnu ríki? Gætu Bretar til dæmis beitt neitunarvaldi gegn lundaveiðum af tilfinningalegum ástæðum?

15.12.2011

Breytingar á þeim tegundum villtra fugla sem leyfilegt er að veiða í ESB, og taldar eru upp í viðauka II við fuglatilskipunina, hafa oftast verið gerðar á grundvelli aðildarsamninga nýrra ríkja en einu sinni var viðaukanum breytt með sérstakri tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins. Þótt hvert einstakt aðildarríki ge...

Umræðan

Hvaða hag og óhag hefur íslenskur landbúnaður af aðild að Evrópusambandinu? [Umræðusvar B]

14.10.2011

Þótt sérstaða íslensks landbúnaðar sé margvísleg glímir atvinnugreinin samt í grundvallaratriðum við sömu vandamál og allir bændur á Vesturlöndum. Tækniþróun og framfarir í ræktun og kynbótum hafa leitt af sér margfalt meiri afköst en áður hafa þekkst. Það hefur aftur leitt til þess að markaðir hafa ekki getað tek...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Getur verið að umræðan um ESB hafi það markmið að ræna Íslendinga borgaralegum réttindum og gera þá að þegnum í hinu nýja heimsveldi?

13.4.2012

Í fljótu bragði mætti svara þessari spurningu neitandi vegna þess að umræða hafi ekki markmið, heldur fólk. Þar fyrir utan mætti telja hæpið að umræða geti yfirleitt rænt fólk réttindum; það séu réttindi fólks að fá að taka þátt í umræðu og hún sem slík geti naumast gengið svo berlega gegn eðlilegum tilgangi sínum...

Neytendamál

Er það rétt að Evrópusambandið vilji takmarka kanil í sætabrauði og ef það er rétt af hverju vill sambandið gera það?

30.12.2013

Kassíukanill frá Kína er sú kaniltegund sem notuð er hvað mest í matargerð en hún inniheldur töluvert mikið magn af efninu kúmarín sem talið er hafa skaðleg áhrif á starfsemi lifrar sé þess neytt í miklu magni. Evrópusambandið hefur því samþykkt reglugerð sem takmarkar magn kúmaríns í bakstursvörum. Reglugerð E...

Sögulegt efni

Hvernig komust mannréttindi á dagskrá í ESB?

3.11.2011

Evrópusambandið hefur verið í stöðugri þróun frá því það var stofnað fyrir rúmlega hálfri öld með sáttmálanum um Efnahagsbandalag Evrópu. Eins og nafn sáttmálans ber með sér snerist samstarfið upphaflega um efnahagssamvinnu. Hugmyndin var að auka velmegun og hagsæld með því að sameina markaði aðildarríkjanna og ge...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Hver er viðbótarkostnaður ESB-ríkjanna þegar þau fara með formennsku í ráðinu?

11.10.2013

Aðildarríki Evrópusambandsins skiptast á að fara með formennsku í ráðinu á hálfs árs fresti. Formennska í ráðinu er nánar skilgreind í svari við spurningunni Hvað felst í því að fara með formennsku í ráðinu? Aðildarríkin ákveða sjálf hversu miklum fjármunum þau eyða í sinni formennskutíð. Kostnaðurinn er því br...

Evrópuvefurinn

Verða jólin betri ef við göngum í ESB?

21.12.2012

Undanfarna mánuði hefur Evrópuvefurinn staðið fyrir kynningum á vefnum í framhaldsskólum og jafnframt tekið á móti spurningum um Evrópumál frá nemendum. Markmið þessara heimsókna er fyrst og fremst að ræða við nemendur um mikilvægi hlutlægra upplýsinga í tengslum við Evrópusambandið og aðildarviðræðurnar og benda ...

Almenn handbók

Nefnd fastafulltrúa aðildarríkja ESB

30.8.2013

Nefnd fastafulltrúa aðildarríkjanna (fr. Comité des représentants permanents, COREPER) gegnir því hlutverki að undirbúa fundi ráðherraráðsins. Öll mál sem koma fyrir nefndina eru rædd og skjöl yfirfarin áður en þau fara fyrir ráðherraráðið. Nefnd fastafulltrúanna skiptist í tvær aðskildar nefndir sem hvor um sig h...

Sjávarútvegur

Fengju erlendir togarar aðgang að veiðum innan íslenskrar efnahagslögsögu, óháð hugsanlegum útfærslum í aðildarsamningi Íslands og ESB, ef Ísland yrði aðili að ESB?

30.3.2012

Stutta svarið Í þessu svari er gert ráð fyrir því að Ísland gengi í Evrópusambandið án nokkurra undanþága eða sérlausna vegna sérstakra aðstæðna hérlendis í tengslum við sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Við inngöngu á þessum forsendum mundu íslensk stjórnvöld þurfa að hlíta sjávarútvegsreglum ES...

Fleiri niðurstöður