Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „Grikkland“

45 svör fundust
Sögulegt efni 29.11.2013

Hvenær varð Evrópa til?

Þessari spurningu er hægt að svara á nokkra vegu. Ef við lítum til jarðsögunnar má segja að Evrópa hafi myndast einhvern tíma frá lokum trías-tímabilsins, fyrir um 200 milljónum ára, fram til krítar-tímabilsins, fyrir um 65 milljónum ára. Hægt er að sjá ágæta skýringarmynd af myndun meginlandanna í svari við spurn...

Efnahags- og gjaldeyrismál 2.5.2013

Af hverju eru ekki allar þjóðir innan ESB með evru sem gjaldmiðil?

Ellefu af 28 aðildarríkjum Evrópusambandsins eru ekki hluti af evrusamstarfinu eða evruhópnum, eins og evruríkin eru oft nefnd. Tvö þeirra hafa varanlega undanþágu frá upptöku evru en hin níu eru skuldbundin til upptökunnar. Þau eru þó mislangt á veg komin með að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku hins sameiginlega ...

Handbók og sagan 22.6.2012

Norður-Atlantshafsbandalagið, NATO

Norður-Atlantshafsbandalagið (e. North Atlantic Treaty Organisation, NATO) var stofnað árið 1949. Stofnaðilar voru Bandaríkin, Belgía, Bretland, Danmörk, Frakkland, Holland, Ísland, Ítalía, Kanada, Lúxemborg, Noregur og Portúgal; samtals 12 ríki í Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Tilgangurinn var að stemma stigu v...

Handbók og sagan 21.9.2012

Schengen-ríkin

Schengen-samstarfið hófst árið 1995. Markmið samstarfsins er tvíþætt: Annars vegar að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri landamæri samstarfsríkjanna með afnámi vegabréfaskoðana. Hins vegar að styrkja baráttuna gegn alþjóðlegri afbrotastarfsemi með auknu eftirliti á ytri landamærum þátttökuríkjanna. Í da...

Efnahags- og gjaldeyrismál 24.6.2003

Er hægt að nota allar evrur í öllum ríkjum Evrópusambandsins? Líka smápeningana?

Í þeim löndum sem tekið hafa upp evruna (€) eru allir evrupeningar gjaldgengir, bæði seðlar og mynt. Myntirnar eru mismunandi eftir því í hvaða landi þeim er dreift í upphafi, en þær gilda engu að síður í öllum evrulöndum. *** Evruseðlarnir eru allir eins og eru til seðlar með verðgildi frá 5 evrum upp í 50...

Efnahags- og gjaldeyrismál 17.8.2012

Mundi það þýða endalok ESB ef evrusamstarfið liðaðist í sundur - og þá sérstaklega í ljósi fjórfrelsisins?

Stutta svarið er nei – en málið er vitaskuld einnig svolítið flóknara. Myntbandalag Evrópu er rekið sem sérstakt stefnusvið innan Evrópusambandsins og er þannig lagað ekkert ósvipað öðrum stefnumálum þess, á borð við landbúnaðarstefnuna eða Schengen-landamærasamstarfið. Til að svara ofangreindri spurningu er einn...

Handbók og sagan 21.9.2012

Efnahags- og félagsmálanefnd

Efnahags- og félagsmálanefnd Evrópusambandsins (e. European Economic and Social Committee) var sett á fót með Rómarsáttmálanum, árið 1957, í þeim tilgangi að ljá hagsmunahópum rödd á vettvangi sambandsins og styrkja þannig lýðræðislegt lögmæti þess. Nefndin er meðal annars skipuð fulltrúum vinnuveitenda og launþeg...

Almenn handbók 17.2.2012

Efnahags- og myntbandalagið

Efnahags- og myntbandalagið (e. Economic and Monetary Union, EMU) er samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins í efnahags- og peningamálum. Formleg ákvörðun um stofnun EMU var tekin af ráði ESB í lok árs 1991 og voru ákvæði um samstarfið innleidd í sáttmála sambandsins með Maastricht-sáttmálanum árið 1992. Samstarfi...

Efnahags- og gjaldeyrismál 24.5.2013

Hvaða evruríki uppfylla Maastricht-skilyrðin?

Ekkert evruríkjanna 17 uppfyllti öll Maastricht-skilyrðin árið 2011, þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar þáverandi utanríkisráðherra við fyrirspurn á Alþingi í febrúar 2013. Níu ríki uppfylltu skilyrðið um verðstöðugleika og ellefu ríki uppfylltu skilyrðið um vexti. Ívið færri uppfylltu Maastricht- s...

Handbók og sagan 21.9.2012

Svæðanefndin

Svæðanefnd Evrópusambandsins (e. Committee of the Regions) var komið á fót með Maastricht-sáttmálanum árið 1994 í þeim tilgangi að efla aðkomu sveitarstjórna og annarra svæðisbundinna yfirvalda í aðildarríkjunum að ákvarðanatökuferli sambandsins. Svæðanefndin gegnir ráðgefandi hlutverki gagnvart Evrópuþinginu, fra...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi 9.8.2013

Hvaða lög og reglur gilda um vændi í ríkjum Evrópusambandsins?

Í ríkjum Evrópusambandsins gilda ólíkar reglur um vændi enda hefur Evrópusambandið ekki markað sér samræmda stefnu í vændismálum nema hvað varðar þvingað vændi, svo sem mansal. Slíkt er ólöglegt í öllum ríkjum ESB. Aðildarríkjunum er í sjálfsvald sett hvernig þau haga löggjöf sinni um vændi. Sum hafa það að markmi...

Stofnanir 7.3.2013

Af hverju er Ísland ekki aðili að Geimvísindastofnun Evrópu?

Íslendingar eiga ekki aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (e. European Space Agency, ESA) vegna þess að þeir hafa aldrei sóst eftir aðild. Í nóvember árið 2003 kom engu að síður hópur sérfræðinga frá ESA til Íslands til að kynna starfsemi samtakanna fyrir ráðamönnum og fulltrúum vísinda og rannsókna á Íslandi. Ekke...

Stofnanir 5.7.2013

Hverjar eru helstu breytingarnar sem urðu á stofnunum Evrópusambandsins við aðild Króatíu?

Helstu breytingarnar sem urðu á stofnunum Evrópusambandsins við aðild Króatíu eru þær að atkvæðavægi í ráði Evópusambandsins hefur breyst, Evrópuþingmönnum fjölgaði um tólf, framkvæmdastjóri frá Króatíu hefur verið skipaður og skipting á heildarhlutafé Seðlabanka Evrópu hefur verið endurmetin. Upptaka evru og aðil...

Sögulegt efni 16.9.2011

Af hverju voru stofnríki Evrópusamstarfsins ekki fleiri en þessi sex?

Stutta svarið Kola- og stálbandalagið var stofnað árið 1952 en Kjarnorkubandalag Evrópu og Efnahagsbandalag Evrópu voru stofnuð árið 1958. Sex ríki, Belgía, Frakkland, Holland, Ítalía, Lúxemborg og Vestur-Þýskaland, stofnuðu þessi þrjú bandalög sem runnu síðar saman í Evrópusambandið. Þessi sex ríki áttu mar...

Efnahags- og gjaldeyrismál 27.7.2012

Hvenær og hvernig var gjaldmiðlum ESB-ríkja skipt út fyrir evru?

Í janúar árið 1999 hófst þriðji og síðasti áfangi efnahags- og myntbandalagsins með formlegum hætti. Sameiginlegur gjaldmiðill, evran (€), var þá tekinn upp sem opinber gjaldmiðill í þeim ríkjum ESB sem uppfylltu svonefnd Maastricht-skilyrði. Leiðin sem farin var við upptöku evrunnar, Madríd-leiðin, dregur nafn si...

Fleiri niðurstöður