Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „samningur um st����ugleika og v��xt“
716 svör fundustHvað er átt við með heimskautalandbúnaði í umræðunni um ESB?
21.6.2011Orðin heimskautalandbúnaður eða norðurslóðalandbúnaður vísa til þeirrar sérlausnar sem Finnland og Svíþjóð sömdu um í viðræðum sínum við ESB árið 1994. Sérlausnin felst í því að Finnum og Svíum er heimilt að veita sérstaka styrki vegna landbúnaðar á norðurslóðum, það er norðan við 62. breiddargráðu, sem nemur 35% ...
Fyrirlestur: Felur EES-samningurinn í sér reglu um bein réttaráhrif?
28.10.2013Miðvikudaginn 30. október stendur lagadeild Háskólans í Reykjavík fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni Felur EES-samningurinn í sér reglu um bein réttaráhrif? Frummælandi er Kjartan Bjarni Björgvinsson, lögfræðingur við EFTA-dómstólinn. Um efni fundarins segir í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík: Á fu...
Hvað er átt við þegar talað er um vergar þjóðartekjur?
1.4.2004Með vergum þjóðartekjum er einfaldlega átt við allar tekjur þjóðarinnar á tilteknu tímabili, oftast einu almanaksári. Með tekjum er einkum átt við laun, hagnað fyrirtækja og vaxtatekjur. Önnur hugtök sem oft eru notuð til að lýsa svipuðum stærðum eru verg landsframleiðsla og verg þjóðarframleiðsla. Verg landsframl...
Er endurskoðun landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins sem samið var um 1992 enn ólokið?
30.6.2011Stutta svarið er já: Þessari endurskoðun er enn ekki lokið þótt stöðugt hafi mjakast áleiðis í samræmi við stefnuna sem lagður var grunnur að árið 1992. Flest bendir til þess að endurskoðunin haldi áfram enn um sinn, enda tengist hún veigamiklum þáttum í samfélagi okkar og umhverfi, svo sem umhverfismálum og byggð...
Um hvað snýst endurskoðunin á sjávarútvegsstefnu ESB sem nú stendur yfir?
29.7.2011Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nýlega sett fram tillögur um endurskoðun á sjávarútvegsstefnu sambandsins. Í stuttu máli snúast þessar umbótahugmyndir um vistkerfishugsun, sjálfbærni, bann við brottkasti, kvótakerfi sem miðist við veiddan fisk en ekki landaðan eins og nú er, framseljanlegan kvóta innan að...
Hvað kemur fram í norsku skýrslunni um samband Noregs og ESB?
25.1.2012Í liðinni viku fékk utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Störe, afhenta 900 blaðsíðna langa skýrslu um samband Noregs og Evrópusambandsins, Utenfor og innenfor: Norges avtaler med EU. Skýrslan er árangur tveggja ára rannsóknarvinnu tólf fræðimanna, sem skipaðir voru í nefnd af norsku ríkisstjórninni. Nefndinni var...
Hvaða reglur gilda um fjárfestingar borgara frá ESB-ríkjum á Íslandi?
2.12.2011Einstaklingar sem búsettir eru í ríkjum EFTA eða ESB og svonefndir lögaðilar sem stofnaðir eru samkvæmt lögum þessara ríkja, og hafa aðalstöðvar eða heimilsfesti í einhverju þessara ríkja, mega fara með eignarrétt á fasteignum hér á landi á grundvelli reglna EES-samningsins um frjálsa fjármagnsflutninga. Undanþegn...
Að hverju voru Króatar spurðir í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðild að ESB?
24.2.2012Króatar kusu um aðild að Evrópusambandinu þann 22. janúar 2012. Á kjörseðlinum stóð: „Ert þú hlynntur aðild lýðveldisins Króatíu að Evrópusambandinu? Með - Á móti“. Kosningaþátttaka var í kringum 43% og þar af voru 67% kjósenda samþykkir aðild. Stefnt er að formlegri inngöngu Króatíu í sambandið þann 1. júlí 2013,...
Breytast reglur um vaxtabætur og barnabætur ef við göngum í ESB?
1.2.2013Nei, aðild að Evrópusambandinu hefur engin áhrif á íslenskar reglur um vaxta- og barnabætur. Breytingar á reglum um vaxtabætur og barnabætur yrðu eftir sem áður í höndum stjórnvalda á Íslandi. *** Vaxtabætur og barnabætur eru bætur greiddar af ríkinu til einstaklinga, sem eru skattskyldir á Íslandi, á grundv...
Hvaða merkingu hefur það að biðja um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins?
25.10.2013Hinn 8. október 2013 féllst Hæstiréttur Íslands á að óska eftir ráðgefandi áliti frá EFTA-dómstólnum um það hvort verðtryggð lán til neytenda, sem tíðkast hafa á Íslandi, standist Evrópurétt. Innan EES eru tvær stofnanir sem fara með æðsta úrskurðarvald, það eru Evrópudómstóllinn og EFTA-dómstóllinn fyrir þau ...
Hvernig eru tölur um stuðning við íslenskan landbúnað samanborið við ESB?
13.8.2026Stutta svarið Mörg Evrópuríki reistu háa tollmúra gagnvart landbúnaðarvörum á árum heimskreppunnar miklu á fjórða áratug 20. aldar. Seinni heimstyrjöldin dró mjög úr landbúnaðarframleiðslu og mörg ríki brugðust við með því að viðhalda eða auka tollvernd gagnvart innanlandsframleiðslu. Ýmiss konar beinn og óbei...
Gilda sömu reglur um viðurkenningu á menntun í öllum aðildarríkjum ESB? - Myndband
22.6.2012Það gilda ekki sömu reglur um viðurkenningu á menntun í öllum aðildarríkjum ESB. Evrópusambandið fer ekki með valdheimildir til að setja reglur í menntamálum en það hefur heimildir til að stuðla að samvinnu aðildarríkjanna í þeim málaflokki. Viðurkenning menntunar innan Evrópusambandsins byggist á því að aðildarrí...
Hafa þrjú voldugustu ríki Evrópusambandsins farið með friði síðan um aldamótin 1900?
30.11.2012Margir hafa velt fyrir sér spurningum af þessum toga vegna þeirrar ákvörðunar norsku Nóbelsnefndarinnar að veita Evrópusambandinu friðarverðlaun ársins 2012. Vísað er í tilkynningu nefndarinnar í svarinu. Þar kemur fram til dæmis að árið 1945 höfðu Þýskaland og Frakkland háð þrjár styrjaldir á 70 árum, og má bæta ...
Af hverju gerði Ísland fríverslunarsamning við Kína og um hvað snýst samningurinn?
19.4.2013Ísland hefur lengi sóst eftir fríverslunarsamningi við Kína til að afnema viðskiptahindranir milli ríkjanna og bæta aðgang íslenskra fyrirtækja að kínverskum markaði. Við gildistöku samningsins falla niður tollar af mikilvægustu útflutningsvörum Íslendinga til Kína og sömuleiðis af öllum innfluttum vörum frá Kína,...
Hafa öll aðildarríki ESB kosið í lýðræðislegri kosningu um aðild að ESB?
25.5.2012Stutta svarið Þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að Evrópusambandinu hafa verið haldnar í 15 ríkjum. Aðild hefur einnig farið í þjóðaratkvæði í Bretlandi, Grænlandi, Álandseyjum og Noregi (í tvígang). Ekki voru haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur í stofnríkjunum sex né í Grikklandi, Spáni, Portúgal, Kýpur, Búlgaríu og...