Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „sameiginleg sj������var������tvegsstefna ESB“

718 svör fundust
Handbók og sagan

GATT-samkomulagið

13.1.2012

Árið 1947 náðu 23 ríki almennu samkomulagi um tolla og viðskipti með undirritun GATT-samkomulagsins (e. The General Agreement on Tariffs and Trade, GATT). Í samkomulaginu fólst meðal annars takmarkað umboð, lagalegar skuldbindingar og grundvallarkerfi til að setja niður deilur um viðskipti milli aðildarríkjanna. ...

Stofnanir

Hvert er hlutfall kvendómara við Mannréttindadómstól Evrópu?

23.3.2012

Fjörutíu og sex dómarar sitja við Mannréttindadómstól Evrópu þar sem sérhvert aðildarríki Evrópuráðsins skipar eina dómarastöðu við dómstólinn. Aðildarríkin tilnefna þrjá frambjóðendur í sitt sæti og þurfa að uppfylla þá kröfu að dómaraefnin séu af báðum kynjum. Kosning dómara fer fram á þingi Evrópuráðsins þar se...

Almenn handbók

Bolognaferlið

20.12.2013

Bolognaferlið (e. Bologna process) byggir á Bologna-yfirlýsingunni (e. Bologna Declaration) um samanburðarhæfni háskólamenntunar sem var undirrituð af fulltrúum 29 Evrópuríkja, þar á meðal Íslands, 19. júní 1999. Með yfirlýsingunni var miðað að því að skapa evrópskt menntasvæði á háskólastigi til að auðvelda nemen...

Almenn handbók

Doha-samningalotan

28.11.2013

Doha-samningalotan (e. The Doha Development Round) svonefnda voru samningaviðræður sem aðildarríki Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hófu árið 2001. Markmið viðræðnanna var að minnka viðskiptahömlur milli ríkja í alþjóðaviðskiptum og þá einkum á þeim sviðum fríverslunar sem gæti gagnast fátækum ríkjum hvað mest, líkt...

Evrópumál

Hvaða afleiðingar getur það haft fyrir Ísland ef við töpum Icesave-málinu?

24.8.2012

Hinn 15. desember 2011 höfðaði eftirlitsstofnun EFTA mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Dómkröfur eftirlitsstofnunarinnar lúta að því að EFTA-dómstóllinn lýsi því yfir að aðgerðir og aðgerðaleysi íslenska ríkisins vegna svokallaðra Icesave-reikninga í útibúum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi hafi falið í ...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Stenst það 65. gr. stjórnarskrárinnar að sum fyrirtæki fái skattaafslátt umfram önnur?

24.2.2014

65. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands er svohljóðandi: Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. Þe...

Handbók og sagan

EES-ríkin

1.2.2013

EES-ríkin eru þau ríki sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Samningurinn nær til allra 27 aðildarríkja Evrópusambandsins og þriggja aðildarríkja EFTA, Íslands, Liechtenstein og Noregs (EFTA/EES-ríkin). Með EES-samningnum mynda þessi þrjátíu ríki eitt einsleitt efnahagssvæði (innri markaðinn) se...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Af hverju er Ísland í NATO?

1.11.2013

Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO) var stofnað árið 1949 og var Ísland eitt af stofnríkjum þess. Aðild Íslands að bandalaginu má einkum rekja til hernaðarlegs mikilvægis Íslands en landfræðileg lega þess var talin mundu henta vel til árása á Bandaríkin eða Sovétríkin ef til átaka kæmi milli þessara stórvelda. Þá ...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hver hefur mesta valdið í lýðræði?

28.5.2019

Þetta er mjög viðamikil spurning sem best er að svara í nokkrum skrefum. Fyrst er það að segja að lýðræði er stjórnarform sem hvílir á þeirri sannfæringu að valdið til að stjórna ríkinu eigi uppruna sinn hjá almenningi. Það þýðir þó ekki að almenningur fari með stjórn landsins frá degi til dags. Þess í stað veita ...

Ýmislegt

Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin?

5.6.2002

Heimsálfurnar eru sjö talsins samkvæmt þekkingu nútímans: Afríka, Asía, Ástralía, Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka og Suðurskautslandið. Nöfnin Afríka, Asía og Evrópa eru forn og uppruni þeirra ekki fullljós. Hin nöfnin eru nýrri og eiga sér nokkuð skýran uppruna. *** Hér er einnig að finna svar við spu...

Handbók og sagan

Öryggisráð SÞ

19.10.2012

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (e. Security Council of the United Nations) var stofnað á grundvelli stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og hóf störf 17. janúar 1946. Samkvæmt 24. grein stofnsáttmálans ber öryggisráðið ábyrgð á því að viðhalda friði og öryggi á alþjóðavettvangi. Aðildarríki öryggisráðsins eru fimmt...

Handbók og sagan

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

31.8.2012

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (e. International Monetary Fund, IMF), líkt og Alþjóðabankinn (e. World Bank), var stofnaður árið 1944 í kjölfar Bretton Woods fundarins, þar sem 49 af ríkustu löndum heims komu sér saman um leikreglur í alþjóðaviðskiptum. Meginmarkmiðið með stofnun Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyri...

Handbók og sagan

Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna

5.7.2013

Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna (e. Charter of the United Nations) er stofnskrá samtakanna. Ráðstefna um stofnun Sameinuðu þjóðanna var haldin í San Francisco í Bandaríkjunum árið 1945 og lauk henni með undirritun sáttmálans þann 26. júní 1945. Sáttmálinn öðlaðist gildi 24. október sama ár eftir að fastafulltrúar...

EES-samningurinn

Þarf að vera nákvæm innihaldslýsing á efnum í vefnaðarvöru sem seld er á EES-svæðinu? Ef já, hversu nákvæm þarf hún að vera?

2.11.2012

Á Íslandi gilda sömu reglur og í Evrópusambandinu um innihaldslýsingu vefnaðarvara. Þær kveða meðal annars á um hvaða vefnaðarvara megi bera hvaða heiti, í hvaða röð textíltrefjar skuli taldar upp og hvenær þurfi að taka fram upplýsingar um hlutfall tiltekinna trefja miðað við þyngd vöru. – Tilgangur reglnanna er ...

Almenn handbók

Alþjóðavinnumálastofnunin

19.3.2013

Alþjóðavinnumálastofnunin (e. International Labour Organization, ILO) var stofnuð árið 1919 á grundvelli Versalasamningsins sem batt enda á fyrri heimsstyrjöldina. Stofnuninni var komið á fót til að vinna að auknu félagslegu réttlæti og standa vörð um grundvallarréttindi launafólks um heim allan. Frá árinu 1945 he...

Fleiri niðurstöður