Leit á vefnum

Einföld leit

Leitað að Sameiginleg landb��na��arstefna ESB - 579 svör fundust
Niðurstöður

Er rétt að Skotar hefðu þurft að taka upp evru ef þeir hefðu kosið sjálfstæði?

Ef Skotar hefðu kosið sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór 18. september 2014 hefðu komið upp fordæmislausar aðstæður bæði í Bretlandi og í Evrópusambandinu. Engin núgildandi bresk lög eða evrópskar reglur hefðu getað leyst úr öllum þeim úrlausnarefnum sem slík niðurstaða hefði haft í för með sér. Í hön...

Getur evruríki yfirgefið evrusamstarfið?

Aðildarríki Evrópusambandsins sem hefur tekið upp evruna sem gjaldmiðil getur ekki yfirgefið evrusamstarfið einhliða nema ganga úr Evrópusambandinu. Ekki er heldur lagalegur grundvöllur fyrir því í sáttmálum sambandsins að tilteknu evruríki sé vísað úr samstarfinu gegn vilja þess. Eina leiðin til að evruríki hverf...

Hvað eru sanngjörn skil?

Sanngjörn skil (fr. juste retour) er haft í Evrópufræðum um það að hvert ríki fái í sinn hlut sanngjarnan ávinning miðað við framlag þess til ESB. Bretar héldu lengi uppi háværum kröfum í þessum anda en aðrir hafa nú tekið við því hlutverki. Talið er að þessi hugsun verði til þess að erfitt reynist að hækka hlutfa...

Hvað er sveigjanleiki?

Sveigjanleiki (e. flexibility) hefur sérstaka merkingu í samhengi Evrópusamstarfs og aðildar einstakra ríkja að ESB. Þá er einkum átt við það að hvert aðildarríki þurfi ekki að vera aðili að öllum stefnuatriðum sambandsins. Glöggt dæmi um þetta er Hvað er Efnahags- og myntbandalagið? sem ákveðin aðildarríki ESB ta...

Hver er samningsafstaða Íslands í kaflanum um frjálsa vöruflutninga?

Samningskaflinn um frjálsa vöruflutninga fellur að öllu leyti undir EES-samninginn. Ísland hefur því innleitt nær alla löggjöf kaflans og ekki að ætla að aðild mundu fylgja teljandi breytingar á þessu sviði. Í samningsafstöðunni samþykkir Ísland regluverk kaflans en fer jafnframt fram á tvær sérlausnir. Sú fyrri s...

Hvað er frjálslynt lýðræði?

Frjálslynt lýðræði (e. liberal democracy) er haft um þá stjórnskipun sem algengust er á Vesturlöndum nú á dögum. Það einkennist m.a. af skorðum sem ríkisvaldi eru settar með lögum, af fulltrúalýðræði, stjórnarandstöðu með viðurkennd réttindi, markaðshagkerfi og frjálsri fjölmiðlun. Ýmis ríki sem hafa sótt um aðild...

Uppfyllir Ísland Maastricht-skilyrðin núna?

Maastricht-skilyrðin fyrir upptöku evru eru fimm talsins. Samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands frá árinu 2011 uppfyllir Ísland aðeins eitt af Maastricht-skilyrðunum en það er skilyrðið um langtímavexti. Áætlanir gera ráð fyrir því að á allra næstu árum muni Ísland einnig uppfylla skilyrðin um verðstöðugleika og afkom...

Hvað er ráð Evrópusambandsins?

Ráð Evrópusambandsins (e. Council of the European Union, einnig kallað ráðherraráðið (e. Council of Ministers) eða ráðið (e. Council)) fer með löggjafarvald í sambandinu ásamt Evrópuþinginu og samræmir stefnu og aðgerðir aðildarríkjanna í fjölmörgum málaflokkum. Ráðið hefur aðsetur í Brussel þar sem það fundar reg...

Samheldnisjóður

Samheldnisjóðurinn (e. Cohesion Fund) var stofnaður árið 1994 í þeim tilgangi að hjálpa efnahagslega vanþróuðum aðildarríkjum, upphaflega Spáni, Grikklandi, Portúgal og Írlandi, að uppfylla Hvað eru Maastricht-skilyrðin? og fá aðild að myntbandalaginu. Sjóðurinn er einn af uppbyggingarsjóðunum, ásamt Félagsmálasjó...

Hvað er stækkun?

Stækkun (e. enlargement) er haft um þá stefnu ESB að fjölga aðildarríkjum og færa þannig út kvíarnar. Í Kola- og stálbandalaginu frá 1952 og Efnahagsbandalagi Evrópu frá 1957 voru stofnríkin sex en nú eru ríki ESB 27 talsins. Frá sjónarmiði fyrri aðildarríkja er tilgangur stækkunar meðal annars sá að stuðla að fri...

Hvað er Lyfjastofnun Evrópu og hvert er hlutverk hennar?

Lyfjastofnun Evrópu (e. European Medicines Agency, EMA) er sjálfstæð stofnun á vegum Evrópusambandsins með aðsetur í í Amsterdam. Henni var komið á fót árið 1995 undir nafninu Lyfjamálastofnun Evrópu (e. European Medicines Evaluation Agency, EMEA) sem var notað fram til ársins 2004. Lyfjastofnun Evrópu er helsti v...

Hvað gerir eftirlitsstofnun EFTA? - Myndband

Eftirlitsstofnun EFTA hefur eftirlit með framkvæmd og beitingu EES-samningsins af hálfu EFTA/EES-ríkjanna, Íslands, Liechtenstein og Noregs. Eftirlitið snýr bæði að því hvernig EES-reglur eru innleiddar í landsrétt ríkjanna og hvernig þeim er framfylgt af stjórnvöldum. Stofnuninni er þar að auki ætlað að fylgjast ...

Af hverju var Evrópusambandið stofnað? – 1. Jarðvegurinn

Einn af þekktustu sagnfræðingum 20. aldar, sem hafði óvenjulega yfirsýn, sagði að Evrópusambandið væri „barn sérstakra sögulegra aðstæðna sem geta líklega aldrei komið upp aftur“ (Hobsbawm, 1996, 578). Svo mikið er víst að ESB er afar óvenjulegt fyrirbæri í mannkynssögunni. Við höldum nú samt að það sé hægt að var...

Þurfum við að taka upp sumartíma ef við göngum í Evrópusambandið?

Öll aðildarríki Evrópusambandsins eru skyldug til að flýta klukkunni um klukkutíma á tímabilinu frá síðasta sunnudegi í mars til síðasta sunnudags í október. Með aðild að ESB yrði Ísland einnig að hafa sama háttinn á nema ef samningar næðust um annað. Tilskipunin sem kveður á um innleiðingu sumartíma var tekin upp...

Hvaða hugmyndir hafa menn haft um Evrópuhugsjónina og Evrópusamruna frá síðari heimsstyrjöld og til okkar daga?

Auk þessa svars er fjallað um Evrópuhugsjónina í tveimur öðrum svörum eftir sama höfund: Hver er Evrópuhugsjónin og hvaða hugmyndir höfðu menn fyrr á öldum um hana? Hvaða hugmyndir höfðu menn um Evrópuhugsjónina á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar og á millistríðsárunum? Hugmyndir um evrópska samvinnu komust ...

Leita aftur: