Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „stofnun ESB“

594 svör fundust
Sjávarútvegur 27.9.2013

Þurfum við að hætta að veiða hvali ef við göngum í ESB?

Hvalveiðar heyra undir umhverfismál hjá Evrópusambandinu og eru bannaðar samkvæmt svonefndri vistgerðartilskipun. Hið sama gildir um viðskipti með hvalaafurðir innan sambandsins. Nær öll aðildarríkin eru hlynnt banninu og ekkert þeirra stundar hvalveiðar. Það væri því ólíklegt að Ísland fengi undaþágu frá því bann...

Efnahags- og gjaldeyrismál 2.5.2013

Af hverju eru ekki allar þjóðir innan ESB með evru sem gjaldmiðil?

Ellefu af 28 aðildarríkjum Evrópusambandsins eru ekki hluti af evrusamstarfinu eða evruhópnum, eins og evruríkin eru oft nefnd. Tvö þeirra hafa varanlega undanþágu frá upptöku evru en hin níu eru skuldbundin til upptökunnar. Þau eru þó mislangt á veg komin með að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku hins sameiginlega ...

Efnahags- og gjaldeyrismál 11.10.2013

Hver er viðbótarkostnaður ESB-ríkjanna þegar þau fara með formennsku í ráðinu?

Aðildarríki Evrópusambandsins skiptast á að fara með formennsku í ráðinu á hálfs árs fresti. Formennska í ráðinu er nánar skilgreind í svari við spurningunni Hvað felst í því að fara með formennsku í ráðinu? Aðildarríkin ákveða sjálf hversu miklum fjármunum þau eyða í sinni formennskutíð. Kostnaðurinn er því br...

Aðildarviðræður Íslands 28.3.2014

Eru mörg Evrópulönd á móti því að Ísland fái aðild að ESB?

Erfitt er að vita fyrir víst hvort einhver einstök Evrópulönd hafi verið eða séu opinberlega mótfallin aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Móttökur aðildarríkja ESB við umsókn Íslands voru almennt jákvæðar þrátt fyrir deilur Íslands við tiltekin aðildarríki um makrílveiðar og Icesave-reikningana. Þó er vita...

Aðildarviðræður Íslands 8.11.2013

Hvort var gert hlé á aðildarviðræðum Íslands og ESB eða þeim slitið?

Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Var gert hlé á aðildarviðræðum Íslands og ESB eða var þeim slitið? Stundum finnst manni það óljóst í umræðunni. Stutta svarið Stefna ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Evrópumálum 2013-2016 mælti fyrir um að hlé yrði gert á aðildarviðræðum Íslands og ...

Undanþágur og sérlausnir 12.7.2011

Hver er munurinn á varanlegum undanþágum og sérlausnum í samningaviðræðum við ESB?

Öll spurningin hljóðaði svona: Í umræðunni um aðildarsamning hefur annars vegar verið rætt um varanlegar undanþágur frá lögum og reglum ESB og hins vegar um sérlausnir fyrir Ísland. Hver er munurinn á þessu tvennu í lagalegum skilningi? Í stuttu máli eru undanþágur og sérlausnir ekki lagaleg hugtök í sjálfu sé...

Samningsafstaða Íslands 21.2.2013

Hver er samningsafstaða Íslands í kaflanum um orkumál?

Samningskaflinn um orkumál heyrir að hluta til undir EES-samninginn. Í samningsafstöðu sinni samþykkir Ísland regluverk kaflans en sækist jafnframt eftir fimm undanþágum frá löggjöf ESB. Í fyrsta lagi óskar Ísland þess að vera undanskilið skyldum sambandsins um viðhald á lágmarksbirgðum af olíu. Í öðru lagi sækist...

Ýmislegt 11.9.2013

Hver er afstaða ESB til framandi gæludýra eins og gíraffa, rassapa eða bavíana?

Evrópusambandið hefur ekki tekið afstöðu til eignarhalds á framandi gæludýrum eins og gíraffa og bavíana og ekki eru til Evrópureglur um slíkt. Aðildarríkin hafa því ákvörðunarvald um hvaða reglur skuli gilda á þessu sviði og eru reglurnar mjög mismunandi eftir löndum. Mörgum þykir það miður og hafa kallað eftir s...

Aðildarviðræður Íslands 23.5.2013

Hversu leiðinlegt væri það ef við mundum klára aðildarsamning við ESB og þjóðin mundi hafna honum í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Þessari spurningu er hægt að svara á einfaldan hátt: Sitt mundi hverjum sýnast um það hversu leiðinlegt það væri ef fullbúnum aðildarsamningi Íslands að Evrópusambandinu yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sumum þætti það eflaust alveg rosalega leiðinlegt. Einkum þeim sem eru þeirrar skoðunar að aðild að Evróp...

Almenn handbók 1.11.2013

Almenni dómstóllinn

Almenni dómstóllinn (e. General Court, EGC) tilheyrir Dómstól Evrópusambandsins og hefur aðsetur í Lúxemborg. Dómstólnum var komið á fót árið 1989 og hét hann þá fyrsta stigs dómstóllinn (e. Court of First Instance) en skipti um nafn við gildistöku Lissabon-sáttmálans árið 2009. Tuttugu og átta dómarar sitja v...

Sögulegt efni 22.6.2011

Hvernig er tímaás Evrópusambandsins, aðdraganda þess og umhverfis?

1400-1914 Eftir að þjóðríki tóku að myndast í Evrópu á miðöldum háðu þau fjölmargar styrjaldir sín á milli um auð og völd, landamæri, trúarbrögð og fleira. Þetta á ekki síst við um England og þau ríki sem stóðu þar sem nú er Frakkland og Þýskaland. 1648 Friðarsamningurinn í Westfalen, að loknu 30 ára stríðinu, ...

Almenn handbók 30.3.2012

Reglan um hlutfallslegan stöðugleika

Reglan um hlutfallslegan stöðugleika (e. principle of relative stability) er ein af grundvallarreglum sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB (e. Common Fisheries Policy). Henni er beitt við útdeilingu veiðiheimilda til aðildarríkja eftir að ákvarðanir um leyfilegan heildarafla hafa verið teknar í landbúnaðar- og sj...

Almenn handbók 23.6.2011

Amsterdam-sáttmálinn

Amsterdam-sáttmálinn (e. Amsterdam treaty) frá 1997 milli aðildarríkja ESB, fjallar um sitthvað sem vantaði í Maastricht-sáttmálann og eykur til dæmis völd og áhrif Evrópuþingsins frá því sem áður var....

Almenn handbók 4.11.2013

Starfsmannadómstóll Evrópusambandsins

Starfsmannadómstóll Evrópusambandsins (e. Civil Service Tribunal) starfaði á árunum 2005-2016. Hlutverk hans var að leysa ágreining milli starfsmanna og stofnana eða deilda Evrópusambandsins. Dómstólinn skipuðu sjö dómarar sem tilnefndir voru af ráðinu. Hver dómari gegndi embættinu í sex ár í senn, en gat veri...

Sögulegt efni 22.8.2011

Af hverju hafa Þýskaland og Frakkland svona mikið að segja í ESB? [Fréttaskýring]

Þýskaland og Frakkland hafa ávallt verið kjölfestan í Evrópusambandinu og forverum þess, enda liggur ein helsta rót sambandsins í vilja þessara fyrrum óvinaríkja til að koma í veg fyrir stríð þaðan í frá. Þau hafa þó ekki alltaf átt sameiginlegra hagsmuna að gæta. Þegar Efnahagsbandalag Evrópu var stofnað árið 195...

Fleiri niðurstöður