Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „Alþýðusamband Íslands“
301 svar fannstEr rétt að ekki sé leyfilegt að vera á stærri dekkjum en 35" í ESB?
3.5.2013Það er fátt sem bendir til þess að stórir hjólbarðar, sem ætlaðir eru til aksturs utan vega eða í einhvers konar torfæru, verði bannaðir ef til aðildar Íslands að Evrópusambandinu kemur. Tvær ástæður eru fyrir þessu. Sú fyrri er að engar sameiginlegar reglur virðast gilda um stærðartakmarkanir á hjólbörðum innan s...
Hvers vegna eru stýrivextir hér langt yfir meðaltali í Evrópu?
24.10.2022Alþjóðlegi greiðslumiðlunarbankinn (e. Bank of International Settlement, BIS) hefur tekið saman þróun stýrivaxta (e. policy rate) í allmörgum löndum.[1] Fyrsta færslan fyrir Ísland í þeim gagnagrunni er frá 31. mars 1998. Myndin hér að neðan sýnir þróun stýrivaxta í þeim Evrópulöndum sem eru í gagnagrunninum frá á...
Hver er stefna ESB í umhverfismálum?
14.9.2012Stefna Evrópusambandsins í umhverfismálum miðar að því að vernda umhverfið og stuðla að sjálfbærri þróun. Stefnan byggir á fyrirbyggjandi aðgerðum gegn umhverfisspjöllum og styðst við mengunarbótaregluna sem segir að sá sem er ábyrgur fyrir mengun og umhverfisspjöllum skuli greiða kostnaðinn. Löggjöf ESB á sviði u...
Verða jólin betri ef við göngum í ESB?
21.12.2012Undanfarna mánuði hefur Evrópuvefurinn staðið fyrir kynningum á vefnum í framhaldsskólum og jafnframt tekið á móti spurningum um Evrópumál frá nemendum. Markmið þessara heimsókna er fyrst og fremst að ræða við nemendur um mikilvægi hlutlægra upplýsinga í tengslum við Evrópusambandið og aðildarviðræðurnar og benda ...
Af hverju er Ísland ekki aðili að Geimvísindastofnun Evrópu?
7.3.2013Íslendingar eiga ekki aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (e. European Space Agency, ESA) vegna þess að þeir hafa aldrei sóst eftir aðild. Í nóvember árið 2003 kom engu að síður hópur sérfræðinga frá ESA til Íslands til að kynna starfsemi samtakanna fyrir ráðamönnum og fulltrúum vísinda og rannsókna á Íslandi. Ekke...
Sumir segja að Mannréttindasáttmáli Evrópu kunni að vera stjórnarskrárígildi, hvað er átt við með þessu?
21.10.2011Stutta svarið Mannréttindasáttmáli Evrópu, sem Ísland er aðili að, hefur rík túlkunaráhrif á mannréttindaákvæði stjórnarskrár Íslands og því er stundum sagt að Mannréttindasáttmálinn hafi nokkurs konar stjórnarskrárígildi. Dómar Hæstaréttar hafa sýnt að leitast er við að túlka mannréttindaákvæði stjórnarskrárin...
Er Evrópuvefurinn og Evrópustofa sama fyrirbærið?
15.3.2013Á árunum 2012-2013 kom stundum fyrir að sumir rugluðust á á Evrópuvefnum annars vegar og Evrópustofu hins vegar. Evrópuvefurinn og Evrópustofa gegndu á þessum tíma bæði því hlutverki að vera upplýsingaveita um Evrópusambandið en störfuðu algjörlega óháð hvort öðru. Evrópuvefurinn hefur frá upphafi verið rekinn...
Hvað felst í Schengen-samstarfinu og þarf ég vegabréf til að ferðast innan Schengen-svæðisins?
9.2.2012Schengen-samstarfið snýst meðal annars um að tryggja frjálsa för einstaklinga innan Schengen-svæðisins, samráð í eftirliti með ytri landamærum þátttökuríkjanna og í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Ísland er eitt þeirra 26 ríkja sem hafa undirritað Schengen-samninginn. Innanríkisráðherra situr fundi dóm...
Þyrftum við að keyra allt rusl frá Hornafirði til Reykjavíkur og urða það þar ef við göngum í ESB?
20.9.2013Á grundvelli EES-samstarfsins innleiðir Ísland alla löggjöf á sviði umhverfismála sem falla innan sviðs þess. Það á einnig við um úrgangsmál sem lúta algerlega regluverki ESB. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið mundi það eitt ekki leiða til breytinga á reglum um sorpvinnslu á Íslandi þar sem reglurnar eru nú þegar ...
Hver hefur mesta valdið í lýðræði?
28.5.2019Þetta er mjög viðamikil spurning sem best er að svara í nokkrum skrefum. Fyrst er það að segja að lýðræði er stjórnarform sem hvílir á þeirri sannfæringu að valdið til að stjórna ríkinu eigi uppruna sinn hjá almenningi. Það þýðir þó ekki að almenningur fari með stjórn landsins frá degi til dags. Þess í stað veita ...
Getur verið að umræðan um ESB hafi það markmið að ræna Íslendinga borgaralegum réttindum og gera þá að þegnum í hinu nýja heimsveldi?
13.4.2012Í fljótu bragði mætti svara þessari spurningu neitandi vegna þess að umræða hafi ekki markmið, heldur fólk. Þar fyrir utan mætti telja hæpið að umræða geti yfirleitt rænt fólk réttindum; það séu réttindi fólks að fá að taka þátt í umræðu og hún sem slík geti naumast gengið svo berlega gegn eðlilegum tilgangi sínum...
Hver var afstaðan til aðildar að ESB samkvæmt skoðanakönnunum í umsóknarríkjum árin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur, í þeim löndum sem þær voru haldnar?
9.11.2012Þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að Evrópusambandinu fóru fram í 15 af 27 núverandi aðildarríkjum sambandsins. Fjallað er um niðurstöður atkvæðagreiðslnanna í svari við spurningunni Hafa öll aðildarríki ESB kosið í lýðræðislegri kosningu um aðild að ESB? Góðar upplýsingar um afstöðuna til aðildar í umsóknarríkj...
Í reglum ESB um aðild nýrra ríkja stendur feitletrað að ekki sé hægt að semja um lög og reglur sambandsins heldur sé aðeins verið að fara yfir hvernig og hvenær umsóknarríkið muni aðlaga sig að reglum sambandsins. Hefur Ísland fengið undanþágu frá þessari reglu?
12.4.2013Lagaákvæðið í sáttmálanum um Evrópusambandið, sem er grundvöllur samningaviðræðna við umsóknarríki, kveður hvorki á um að ekki sé hægt að semja um lög og reglur sambandsins né að aðildarviðræður snúist aðeins um aðlögun umsóknarríkis að reglum sambandsins. Á heimasíðu stækkunarsviðs framkvæmdastjórnar Evrópusamban...
Hverjir semja reglurnar um flóttamenn?
16.8.2017Mikilvægustu reglurnar um flóttamenn eru alþjóðlegar og samræmdar í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna með svokölluðum flóttamannasamningi. Hann var undirritaður árið 1951 af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og við hann var bætt árið 1967. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1957. Hvert þjóðríki setur sín...
Er hægt að senda kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu á móðurmálinu og hvernig á að standa að kærunni?
4.11.2014Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Er hægt að senda kæru til mannréttindadómstóla á móðurmálinu? Hvernig á að standa að kæru? Sá mannréttindadómstóll sem hefur langmesta þýðingu fyrir okkur á Íslandi er Mannréttindadómstóll Evrópu og er svar þetta því skrifað út frá gildandi reglum hans. Mannréttindadóm...