Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „l������������������ggj������������������f“
31 svar fannstEr íslenska elsta tungumál í Evrópu? Hve gömul er hún?
28.1.2003Í hnotskurn hljóða svörin við spurningunum tveimur þannig: Nei, íslenska er ekki elsta tungumál í Evrópu. Íslensk málþróun er jafngömul byggð norrænna manna á Íslandi en íslenska og norska urðu ekki aðgreind tungumál fyrr en á 14. öld. Þó nokkur tungumál í Evrópu eru eldri en þetta, og eru þau nánar tilgreind í s...
Hvenær varð Evrópa til?
29.11.2013Þessari spurningu er hægt að svara á nokkra vegu. Ef við lítum til jarðsögunnar má segja að Evrópa hafi myndast einhvern tíma frá lokum trías-tímabilsins, fyrir um 200 milljónum ára, fram til krítar-tímabilsins, fyrir um 65 milljónum ára. Hægt er að sjá ágæta skýringarmynd af myndun meginlandanna í svari við spurn...
Hvað er vísitala?
13.6.2001Vísitölur eru eins konar meðaltöl. Þær eru fengnar með því að vega saman margar stærðir til að fá eina tölu. Einna mest áberandi í opinberri umræðu eru ýmsar vísitölur af vettvangi efnahagsmála en vísitölur eru þó notaðar á mörgum öðrum sviðum. Sem dæmi um vísitölur má nefna verðlagsvísitölur. Ein þeirra er vís...
Stjórnartíðindi ESB
15.11.2013Stjórnartíðindi Evrópusambandsins voru fyrst gefin út þann 30. desember 1952. Þá nefndust þau stjórnartíðindi Kola- og stálbandalagsins og síðar stjórnartíðindi Evrópubandalagsins. Núverandi nafn fengu stjórnartíðindin þegar Nice-sáttmálinn gekk í gildi árið 2003. Stjórnartíðindin eru gefin út alla virka daga ...
Gæti Evrópusambandið tekið upp á því að breyta umferðarlögum í aðildarríkjunum, til dæmis bannað hringtorg, bannað vinstri beygjur, sett 25 km hámarkshraða og breytt öllum umferðarskiltum?
13.9.2013Í stuttu máli er svarið nei. Evrópusambandið fer ekki með vald til að breyta umferðarreglum í aðildarríkjum sínum. Hins vegar getur Evrópusambandið mælt fyrir um ráðstafanir til að bæta umferðaröryggi sem heyrir undir stefnu sambandsins í samgöngumálum. Löggjöf ESB á því sviði hefur nánast undantekningarlaust veri...
Er það rétt að Evrópusambandið vilji takmarka kanil í sætabrauði og ef það er rétt af hverju vill sambandið gera það?
30.12.2013Kassíukanill frá Kína er sú kaniltegund sem notuð er hvað mest í matargerð en hún inniheldur töluvert mikið magn af efninu kúmarín sem talið er hafa skaðleg áhrif á starfsemi lifrar sé þess neytt í miklu magni. Evrópusambandið hefur því samþykkt reglugerð sem takmarkar magn kúmaríns í bakstursvörum. Reglugerð E...
Hver er viðbótarkostnaður ESB-ríkjanna þegar þau fara með formennsku í ráðinu?
11.10.2013Aðildarríki Evrópusambandsins skiptast á að fara með formennsku í ráðinu á hálfs árs fresti. Formennska í ráðinu er nánar skilgreind í svari við spurningunni Hvað felst í því að fara með formennsku í ráðinu? Aðildarríkin ákveða sjálf hversu miklum fjármunum þau eyða í sinni formennskutíð. Kostnaðurinn er því br...
Hefur ESB gert eitthvað til þess að bókhald þess verði áreiðanlegra?
5.10.2011Evrópusambandið hefur lengi verið gagnrýnt fyrir óáreiðanlegt bókhald sem valdi spillingu og óráðsíu í fjármálum sambandsins. Um það má lesa nánar í svari við spurningunni Hvers vegna hafa endurskoðendur ESB ekki viljað undirrita bókhald sambandsins? Framkvæmdastjórn ESB, sem ber lagalega ábyrgð á bókhaldi sa...
Ríkir enn eitthvað varnarsamstarf á milli Íslands og Bandaríkjanna eftir brottför varnarliðsins?
6.12.2013Núverandi öryggis- og varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna byggist á tvíhliða varnarsamningi frá árinu 1951 auk sameiginlegrar samstarfsyfirlýsingar sem löndin skrifuðu undir árið 2006 í kjölfar brottfarar varnarliðsins sama ár. Síðan þá hefur þróunin í raun verið sú að varnarsamstarfið tekur til fleiri þátta e...
Hvað merkir orðið Evrópa?
18.10.2013Evrópa er grískt orð sem merkir breiða ásjónu eða andlit en hugtakið á rætur í grískri orðræðu á fornöld. Elsta dæmið um notkun þess sem sérnafns mun vera á læk sem var við véfréttina í Dodona í Epírus, en finna má örnefni skyld því víða á meginlandi Grikklands.[1] Evrópa er grískt orð sem merkir breiða ásjónu...
Hvenær lauk kalda stríðinu?
15.1.2026Kalda stríðinu er almennt talið hafa lokið á tímabilinu 1989 til 1991 og er þá gjarnan miðað við atburði eins og fall Berlínarmúrsins í nóvember árið 1989, sameiningu Þýskalands árið 1990 og svo hrun Sovétríkjanna í desember árið 1991. Síðasti atburðurinn hefur oftast verið hafður til viðmiðs enda var þá annað ...
Hvert er atvinnuhlutfall heyrnarlausra innan ESB í samanburði við Ísland?
24.1.2014Evrópuvefurinn leitaði svara um atvinnuþátttöku heyrnarlausra á Íslandi hjá Félagi heyrnarlausra og fékk þær upplýsingar að það væri um 75-80% í dag. Haldbærar upplýsingar um atvinnuhlutfall heyrnarlausra í Evrópusambandinu er hins vegar hvergi að finna. Ástæðan er sú að flest aðildarríki sambandsins blanda sam...
Er Seðlabanki Evrópu einkabanki?
1.6.2012Nei, Seðlabanki Evrópu er ekki „einkabanki“ samkvæmt almennri skilgreiningu á hugtakinu, það er bankinn er ekki viðskiptabanki í eigu einkaaðila. Seðlabanki Evrópu er ein af stofnunum Evrópusambandsins og þungamiðja seðlabankakerfis Evrópu (e. European System of Central Banks, ESCB), sem er vettvangur samstarfs se...
Hvað gerði andspyrnuhreyfingin í seinni heimsstyrjöldinni?
29.6.2004Í andspyrnuhreyfingunni í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni voru margir og margvíslegir hópar sem beittu mismunandi aðferðum í baráttu sinni gegn nasistum, þýsku hernámi og hernaði, og kynþáttaofsóknum, eftir því við átti á hverjum stað. Hóparnir stunduðu njósnir og skæruhernað, dreifðu upplýsingum og áróðri, hjál...
Af hverju setur Evrópusambandið sérstakar reglur um öryggi leikfanga?
25.10.2011Reglur Evrópusambandsins um öryggi leikfanga eiga að tryggja öryggi og heilsu neytenda. Oftast eru það börn sem leika sér með leikföng og þau þurfa sérstaka vernd. Ekki er þó víst að öryggi sé betur tryggt með sameiginlegri evrópskri löggjöf en með reglum á forræði hvers aðildarríkis um sig. Megintilgangurinn með ...