Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „matvælalöggjöf ESB“

578 svör fundust
Evrópumál 20.1.2012

Hvað er iðnaðarsalt og má nota það í matvæli á Íslandi eða í öðrum Evrópulöndum?

Gerður er greinarmunur á salti sem er framleitt til iðnaðarnota og salti sem ætlað er til manneldis. Salt sem framleitt er til matvælaframleiðslu er undir meira eftirliti og eru gerðar strangari kröfur til meðhöndlunar og geymslu þess. Hin almenna matvælalöggjöf Evrópusambandsins hefur verið innleidd á Íslandi. Þv...

Neytendamál 12.8.2011

Hvaða reglur gilda í ESB um bakstur og aðra matargerð í heimahúsum og sölu á afurðunum til góðgerðarstarfs eða annars?

Um bakstur og matargerð í heimahúsum og sölu á slíkum afurðum gilda engar sérstakar reglur í Evrópusambandinu, nema matvælafyrirtæki sé beinlínis rekið í heimahúsi. Þvert á móti er starfsemi sem hvorki er samfelld né skipulögð, og fer til dæmis fram í tengslum við viðburði eins og þorpshátíðir eða kökubasara kvenf...

Evrópumál 11.10.2013

Njóta Færeyjar einhverra tengsla við ESB gegnum samband sitt við Danmörku?

Færeyjar eru eitt þriggja sjálfstjórnarsvæða á Norðurlöndunum en eyjarnar tilheyra formlega Danmörku. Færeyjar eiga ekki aðild að Evrópusambandinu þar sem Landsþing Færeyja, æðsta stjórnvald landsins, ákvað að standa fyrir utan sambandið þegar Danmörk gekk í það árið 1973. Það voru einkum tveir þættir sem réðu...

Almenn handbók 13.12.2012

Menntaáætlun ESB

Menntaáætlun ESB (e. Life Long Learning Programme) er samstarfsverkefni aðildarríkja ESB á sviði menntamála. Markmið Menntaáætlunarinnar er einkum að hjálpa einstaklingum, grunn-, framhaldsskóla- og háskólanemum, iðnnemum, kennurum og fleirum, að kynnast öðrum ESB-ríkjum og stunda þar nám og störf. Áætlunin nær yf...

Handbók og sagan 6.9.2013

Viðskiptastefnunefnd ESB

Viðskiptastefnunefnd ESB (e. Trade Policy Committee) heyrir undir ráðið og í henni sitja fulltrúar allra aðildarríkjanna og framkvæmdastjórnarinnar. Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að aðstoða framkvæmdastjórn sambandsins í fríverslunarviðræðum við önnur ríki eða ríkjahópa utan sambandsins, innan þess ramma s...

Almenn handbók 15.11.2013

Stjórnartíðindi ESB

Stjórnartíðindi Evrópusambandsins voru fyrst gefin út þann 30. desember 1952. Þá nefndust þau stjórnartíðindi Kola- og stálbandalagsins og síðar stjórnartíðindi Evrópubandalagsins. Núverandi nafn fengu stjórnartíðindin þegar Nice-sáttmálinn gekk í gildi árið 2003. Stjórnartíðindin eru gefin út alla virka daga ...

Handbók og sagan 17.8.2012

Stoðaskipulag ESB

Stoðaskipulaginu (e. pillar structure) var komið á með Maastricht-sáttmálanum sem gekk í gildi árið 1993. Sáttmálinn er stofnsáttmáli Evrópusambandsins sem gegndi til að byrja með hlutverki eins konar þaks í stoðaskipulaginu. Evrópubandalögin, það er Evrópubandalagið, Kjarnorkubandalag Evrópu og Kola- og stálbanda...

Almenn handbók 18.5.2012

Framkvæmdastjórn ESB

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (e. European Commission) hefur frá upphafi verið ein helsta stofnun ESB. Stofnunin er sjálfstæð og á ekki að vera undir áhrifum aðildarríkja sambandsins (3. töluliður 17. gr. sáttmálans um Evrópusambandið (SESB) og 1. mgr. 245. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (SSE...

Almenn handbók 25.5.2012

Utanríkisþjónusta ESB

Utanríkisþjónusta Evrópusambandsins (e. European External Action Service, EEAS) var stofnuð með gildistöku Lissabon-sáttmálans og tók formlega til starfa ári síðar, þann 1. desember 2010. Tilgangurinn með stofnun utanríkisþjónustunnar var að sameina undir einn hatt þau verkefni sem falla undir sameiginlega stefnu ...

Handbók og sagan 21.12.2011

Grænbækur ESB

Skýrslur framkvæmdastjórnar ESB eru kallaðar grænbækur (e. green papers, green books). Þeim er ætlað að örva umræður og hefja samráðsferli innan sambandsins um tiltekið efni. Yfirleitt eru margar hugmyndir settar fram í grænbók og einstaklingum eða samtökum boðið að setja fram sjónarmið og upplýsingar. Stundum kem...

Almenn handbók 5.10.2011

Endurskoðunarréttur ESB

Endurskoðunarréttur ESB (e. European Court of Auditors) var stofnaður árið 1977 í þeirri viðleitni að bæta fjárhagsstjórn sambandsins. Rétturinn starfar í samræmi við staðla Alþjóðlegra samtaka endurskoðenda (e. International Federation of Accountants, IFAC) og Alþjóðlegra samtaka æðstu endurskoðunar meðal stofnan...

Almenn handbók 23.6.2011

Evrópusambandið, ESB

Evrópusambandið eða ESB (e. European Union, EU) eru efnahagsleg og pólitísk samtök 27 Evrópuríkja. Það á rætur að rekja til Kola- og stálbandalagsins frá 1952 og til Efnahagsbandalags Evrópu frá 1958. Í þessum bandalögum voru sex ríki og ESB er því miklu umfangsmeira og hefur einnig miklu fleiri verkefni en þessi ...

Almenn handbók 10.8.2012

ESB-ríkin

Aðildarríki ESB eru 27 talsins. Stofnríki sambandsins voru Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Lúxemborg en við stofnun þess árið 1958 gekk það undir heitinu Efnahagsbandalag Evrópu. Nokkrum árum áður, árið 1952, höfðu sömu ríki einnig stofnað Kola- og stálbandalagið. Á næstu þremur áratugum gengu Bre...

Almenn handbók 5.3.2026

Opinber tungumál ESB

Opinber tungumál ESB eru 24 talsins. Þau eru þessi (í stafrófsröð): búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, gríska, hollenska, írska, ítalska, króatíska, lettneska, litáíska, maltneska, pólska, portúgalska, rúmenska, slóvakíska, slóvenska, spænska, sænska, tékkneska, ungverska og þýska Þrá...

Byggðastefnan 16.11.2012

Hvað eru uppbyggingarsjóðir ESB?

Uppbyggingarsjóðir Evrópusambandsins eru þrír: Byggðaþróunarsjóður, Félagsmálasjóður og Samheldnisjóður. Þeir hafa það hlutverk að styðja við markmið byggðastefnu Evrópusambandsins um að auka efnahags- og félagslega samleitni milli svæða sambandsins. Samanlagt hafa uppbyggingarsjóðirnir yfir að ráða 347 milljörðum...

Fleiri niðurstöður