Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „r��ki utan ESB“

635 svör fundust
Aðildarviðræður Íslands

Er einhver ástæða fyrir því að einstakir kaflar eru opnaðir á undan öðrum í samningaviðræðum ESB og Íslands? Hvers vegna á til dæmis enn eftir að opna veigamikla kafla, svo sem um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál?

26.10.2012

Í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins er ekki samið um alla samningskaflana samtímis heldur er samið sérstaklega um hvern og einn, þótt einhverjir kaflar séu opnaðir eða þeim lokað á sama tíma. Betur hefur gengið að vinna úr þeim köflum sem heyra undir EES-samninginn og Schengen-samstarfið. Þá hefur það t...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Hvað er Hoyvíkursamningurinn og á hvaða hátt er hann frábrugðinn öðrum fríverslunarsamningum Íslands?

14.8.2013

Hoyvíkursamningurinn er fríverslunarsamningur á milli Íslands og Færeyja. Að EES-samningnum undanskildum er hann víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert. Hoyvíkursamningurinn er sérstakur fyrir þær sakir að vera eini fríverslunarsamningur Íslands sem afnemur alla tolla á landbúnaðarafurðum, en almen...

Stækkunarstefna

Hvaða Evrópulönd eru ekki í ESB og hvers vegna?

22.6.2011

Sérhvert evrópskt ríki, sem virðir grundvallargildi réttarríkisins, frelsi, lýðræði og mannréttindi, − þau sameiginlegu gildi, sem Evrópusambandið (ESB) byggist á - getur sótt um aðild að ESB. Ekkert land verður þó aðili að ESB nema með gagnkvæmu samþykki sínu og sambandsins og að uppfylltum ákveðnum skilyrð...

Sögulegt efni

Fengu Norðmenn fullan aðildarsamning í bæði skiptin sem þeir sóttu um og höfnuðu aðild að ESB?

5.10.2012

Stutta svarið Í stuttu máli er svarið já. Í tvö þeirra fjögurra skipta sem Noregur hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu var aðildarviðræðum lokið með undirritun aðildarsamnings. Fullmótaður aðildarsamningur var lagður í þjóðaratkvæði árin 1972 og 1994 og í báðum tilvikum var honum hafnað. Úrslit kosninganna...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Eru til traustar rannsóknir á því hvort efnahagslegur ávinningur hafi verið af evrusamstarfinu?

14.11.2012

Svarið við þessari spurningu fer eftir því hvaða mælikvarði er notaður á „efnahagslegan ávinning“. Hér verður notast við raunhagvöxt á mann, það er breytingar á landsframleiðslu á mann. Síðan evran var tekin upp árið 1999 hefur raunhagvöxtur á mann dregist saman í evrulöndunum. Óvíst er hins vegar hvort evrunni sé...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Njóta fátækustu ríki heims sérstakra tollfríðinda hjá Evrópusambandinu?

7.9.2012

Í stuttu máli er svarið já, fátækustu ríki heims njóta sérstakra tollfríðinda hjá Evrópusambandinu. Allt frá árinu 1971 hefur Evrópusambandið veitt þróunarríkjum aukinn markaðsaðgang að sambandinu, meðal annars með því að veita þeim tollfríðindi við innflutning á vörum á grundvelli almenns tollaívilnanakerfis (e. ...

Umhverfis- og orkumál

Hver er stefna ESB í umhverfismálum?

14.9.2012

Stefna Evrópusambandsins í umhverfismálum miðar að því að vernda umhverfið og stuðla að sjálfbærri þróun. Stefnan byggir á fyrirbyggjandi aðgerðum gegn umhverfisspjöllum og styðst við mengunarbótaregluna sem segir að sá sem er ábyrgur fyrir mengun og umhverfisspjöllum skuli greiða kostnaðinn. Löggjöf ESB á sviði u...

Umræðan

Hver verður framtíð ESB? [Umræðusvar B]

14.10.2011

Það er einkum tvennt sem þarf að hafa í huga þegar menn velta fyrir sér framtíð Evrópusambandsins. Í fyrsta lagi þarf að leita aftur til þeirra hugmynda sem leiddu til samstarfsins og þess jarðvegs sem það spratt upp úr. Í öðru lagi má líta á samstarf Evrópuríkja á vettvangi Evrópusambandsins sem viðbragð við eða ...

Umræðan

Hvaða hag og óhag hefur íslenskur landbúnaður af aðild að Evrópusambandinu? [Umræðusvar A]

14.10.2011

Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að bera saman landbúnaðarstefnu ESB og Íslands með það að markmiði að greina áhrif aðildar að ESB á íslenskan landbúnað. Umfjöllun um efnið hefur þó oft verið lituð því hvað menn telja að fengist út úr aðildarsamningum við ESB á grundvelli sérstöðu landsins svo sem norðlægra...

Stofnanir

Af hverju er Ísland ekki aðili að Geimvísindastofnun Evrópu?

7.3.2013

Íslendingar eiga ekki aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (e. European Space Agency, ESA) vegna þess að þeir hafa aldrei sóst eftir aðild. Í nóvember árið 2003 kom engu að síður hópur sérfræðinga frá ESA til Íslands til að kynna starfsemi samtakanna fyrir ráðamönnum og fulltrúum vísinda og rannsókna á Íslandi. Ekke...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Hvernig er samskiptum ESB og NATO háttað?

18.10.2013

Samningar milli Norður-Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Evrópusambandsins (ESB) um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála voru gerðir undir lok ársins 2002 og í upphafi 2003. Þeir mynda hinn eiginlega ramma Berlín-Plús-fyrirkomulagsins sem veitir Evrópusambandinu aðgang að tækjum og búnaði bandalagsins þegar NAT...

Aðildarviðræður Íslands

Hvaða samningskaflar, í viðræðunum við ESB, heyra undir EES-samninginn og hvað stendur út af?

6.7.2012

Löggjöf ESB skiptist í 35 kafla og er samið um 33 þeirra á meðan aðildarviðræður standa yfir milli Evrópusambandsins og umsóknarríkis. Framkvæmdastjórn ESB hefur metið það svo að 21 kafli af þessum 35 heyri undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið; 10 kaflar að öllu leyti og 11 kaflar að stórum hluta. Samn...

Aðildarviðræður Íslands

Hversu mikið af heimilaðri veiði á ári hverju fengju togarar ESB að veiða í íslenskri landhelgi gengi Ísland í Evrópusambandið?

23.3.2012

Stutta svarið Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB veitir öllum aðildarríkjum jafnan aðgang að hafsvæðum sambandsins. Þessi regla sætir þó takmörkunum og veitir ekki jafnan aðgang að veiðum. Ákvarðanir um heildarafla og veiðiheimildir einstakra aðildarríkja eru teknar af landbúnaðar- og sjávarútvegsráðinu á gru...

Ýmislegt

Hversu mikið af regluverki ESB hefur verið innleitt í EES-landinu Íslandi í samanburði við ESB-landið Svíþjóð?

17.2.2012

Á grunni EES-samningsins hefur Ísland fært regluverk sitt að regluverki Evrópusambandsins. Hlutfall þeirrar löggjafar sem Ísland tekur upp í gegnum samninginn er umdeilt og hafa verið nefndar mjög misháar tölur í því sambandi. Í Svíþjóð er áætlað að 80% af öllum reglum sambandsins hafi verið innleiddar í sænska lö...

EES-samningurinn

Hvað táknar CE-merking á vörum, er það sérstakur evrópskur gæðastimpill?

29.6.2012

CE-merking er skilyrði fyrir markaðssetningu tiltekinna vara á Evrópska efnahagssvæðinu. Merkið er auðkennismerking sem gefur til kynna að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um. CE-me...

Fleiri niðurstöður