Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „e-s������������������garettur“

407 svör fundust
Aðildarviðræður Íslands

Er ekki sanngjarnt að helmingur styrks frá ESB til að kynna sig á Íslandi renni til andstæðinga ESB-aðildar, eða að íslenska ríkið veiti þeim jafnháa fjárhæð, 5,0 milljarða króna á ári?

5.7.2011

Evrópusambandið áætlar að verja 1,4 milljónum evra í kynningarmál hér á landi yfir tveggja ára tímabil, eða rúmum 230 milljónum íslenskra króna á genginu í ágúst 2011. Umsjón verkefnisins var boðin út haustið 2010 og þann 11. ágúst 2011 var tilkynnt að samið hefði verið um verkið við fyrirtækin Media Consulta Inte...

Ýmislegt

Hvernig eru jólin haldin víðs vegar um Evrópu?

23.12.2013

Orðið jól hefur ekki sama uppruna í öllum Evrópuríkjum. Sem dæmi má nefna að hið franska Noël kemur frá latneska orðinu natalis sem merkir fæðing. Enska orðið Christmas vísar til messu Krists sem haldin var af bresku lútherstrúarfólki í desember. Á þýsku er notað orðið Weihnacht sem merkir hin heilaga nótt. Jólin ...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Er mikið vesen að komast í ESB?

16.4.2014

Þessi spurning barst upprunalega til Evrópuvefsins frá nemanda í Háskóla unga fólksins sem skildi ekki allt þetta umstang í kringum Evrópusambandið. Stutta svarið við spurningunni er einfaldlega: Já það er heilmikið vesen að komast í Evrópusambandið! Áður en ríki getur gerst aðili að ESB þarf að fara í gegnum f...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Hvort landið er líklegra til að fara í greiðsluþrot, Ísland eða Grikkland?

2.8.2011

Þegar rætt er um greiðsluþrot lands er jafnan átt við það þegar skuldir ríkissjóðs viðkomandi lands fást ekki greiddar að fullu. Mörgum er enn í fersku minni þegar ríkisstjórn Argentínu lýsti því yfir í desember 2001 að hún gæti ekki staðið við lánaskuldbindingar ríkisins og leiddi þetta til stærsta greiðsluþrots ...

Aðildarviðræður Íslands

Gæti samninganefnd Íslands samið um að hingað yrði ekki flutt inn lambakjöt frá Evrópu gengi Ísland í Evrópusambandið?

22.3.2013

Ólíklegt er að Ísland gæti samið um varanlega undanþágu frá því að heimila innflutning á lambakjöti þar sem það er andstætt meginreglu Evrópuréttar um frjálsa vöruflutninga. – Í nýlegum bráðabirgðaniðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA kemur fram að núgildandi bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti frá aðildarrík...

Aðildarviðræður Íslands

Geta Íslendingar gert sér vonir um styrki frá ESB upp í ferðakostnað milli Íslands og Evrópu sökum fjarlægðar?

7.7.2011

Ekki er ljóst á þessari stundu hvort og þá hvernig Ísland fellur inn í stefnu Evrópusambandsins gagnvart ystu svæðum þess og hvaða styrkir, aðlaganir eða sérlausnir myndu þá standa til boða. Það veltur á samningaviðræðum Íslands við ESB. Þar á meðal eru hugsanlegir styrkir til að lækka ferðakostnað milli Íslands o...

Neytendamál

Yrði ódýrara að fljúga til útlanda ef Ísland gengi í ESB?

8.2.2013

Stutta svarið Nei, samkvæmt því sem Evrópuvefurinn kemst næst þá mundi aðild Íslands að Evrópusambandinu væntanlega hafa lítil sem engin áhrif á verðlag flugfargjalda til útlanda. Helstu breytingar sem fylgt gætu aðild yrðu á sviði loftferðasamninga en Ísland fengi sjálfkrafa aðild að þeim samningum sem framkv...

Stækkunarstefna

Hvaða áhrif gæti það haft á Ísland ef Tyrkland gengi í ESB?

21.6.2011

Stutta svarið Ef Tyrkland yrði aðili að ESB á næstunni en Ísland stæði utan við yrðu áhrifin af aðild Tyrkja einkum tengd innri markaðnum. Tyrkland er stórt og fjölmennt ríki og og ESB-aðild þess mundi fela í sér aukin viðskiptatækifæri fyrir Íslendinga. Breytingin yrði mest á sviði landbúnaðar þar sem fríverslun...

Aðildarviðræður Íslands

Hvað var talið, þegar Ísland var í viðræðum við ESB 2010-2013, að árlegur kostnaður Íslands við aðild að ESB væri mikill?

1.11.2011

Upprunalega spurningin var: Hver yrði árlegur kostnaður Íslands við aðild að ESB? Stutta svarið Þegar Ísland var í aðildarviðræðum við ESB á árunum 2010-2013 var talið að beint framlag íslenska ríkisins til Evrópusambandsins eftir hugsanlega aðild að sambandinu yrði að öllum líkindum á bilinu 13-15 millj...

Schengen og frjáls för

Hverjir semja reglurnar um flóttamenn?

16.8.2017

Mikilvægustu reglurnar um flóttamenn eru alþjóðlegar og samræmdar í öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna með svokölluðum flóttamannasamningi. Hann var undirritaður árið 1951 af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og við hann var bætt árið 1967. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1957. Hvert þjóðríki setur sín...

Almenn handbók

Ráð Evrópusambandsins

9.2.2012

Ráð Evrópusambandsins (e. Council of the European Union, einnig kallað ráðherraráðið (e. Council of Ministers) eða ráðið (e. Council)) fer með löggjafarvald í sambandinu ásamt Evrópuþinginu og samræmir stefnu og aðgerðir aðildarríkjanna í fjölmörgum málaflokkum. Ráðið hefur aðsetur í Brussel þar sem það fundar reg...

Handbók og sagan

Alþjóðaviðskiptastofnunin

13.1.2012

Alþjóðaviðskiptastofnunin (e. World Trade Organization, WTO) var stofnuð árið 1994 á grundvelli hins almenna samnings um tolla og viðskipti (e. General Agreement on Tariffs and Trade, GATT), sem samið var um við lok Úrúgvæviðræðnanna. Stofnunin myndar sameiginlegt þak yfir alþjóðlega samninga eins og GATT-samningi...

Almenn handbók

Hverjir eru helstu sáttmálar ESB?

22.6.2011

Parísar-sáttmálinn (e. Paris Treaty) frá 1952 lagði grunninn að stofnun Kola- og stálbandalagsins. Markmiðið var að koma í veg fyrir hernað og draga úr spennu á milli aðildarríkja þess eftir seinni heimsstyrjöldina. Rómarsáttmálarnir (e. Rome Treaties) frá árinu 1958 lögðu grunninn að stofnun Efnahagsbandalags...

Almenn handbók

Tollabandalag

30.12.2011

Tollabandalag (e. customs union) er annað eða þriðja stig efnahagslegs samruna (e. economic integration). Það er bandalag sem tvö eða fleiri ríki gera með sér um að efla viðskipti sín á milli. Auk niðurfellingar viðskiptahindrana á borð við innflutningstolla felur tollabandalag í sér að komið er á sameiginlegum to...

Almenn handbók

Efnahags- og myntbandalagið

17.2.2012

Efnahags- og myntbandalagið (e. Economic and Monetary Union, EMU) er samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins í efnahags- og peningamálum. Formleg ákvörðun um stofnun EMU var tekin af ráði ESB í lok árs 1991 og voru ákvæði um samstarfið innleidd í sáttmála sambandsins með Maastricht-sáttmálanum árið 1992. Samstarfi...

Fleiri niðurstöður