Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „ESB-reglur“
594 svör fundustHvaða Norðurlönd hafa evru sem gjaldmiðil?
17.2.2012Finnland er eina Norðurlandið sem hefur evru sem gjaldmiðil. Danmörk er undanþegin ákvæði Maastricht-sáttmálans um upptöku evru, þar sem ríkið samdi sérstaklega um það fyrir gildistöku hans. Svíþjóð hefur í raun tekið einhliða ákvörðun um að standa utan evrusvæðisins. Ísland og Noregur, sem ekki eru aðilar að Evró...
Evrópuþingið
2.3.2012Evrópuþingið (e. European Parliament, EP) fer með löggjafarvald í Evrópusambandinu ásamt ráðinu. Vægi þingsins í ákvarðanatöku hefur aukist stig af stigi, meðal annars með Lissabon-sáttmálanum. Samþykki þingsins þarf fyrir fjárlögum Evrópusambandsins og hefur Evrópuþingið nýtt sér völd sín á þessu sviði til að ha...
Byggðaþróunarsjóður Evrópu
5.4.2013Byggðaþróunarsjóður Evrópu (e. European Regional Development Fund, ERDF) er stærstur uppbyggingarsjóða Evrópusambandsins. Honum var komið á fót árið 1975 samfara inngöngu fátækari landa í ESB, eins og Írlands, Spánar, Portúgals og Grikklands. Byggðaþróunarsjóður fjárfestir í smærri og meðalstórum fyrirtækjum með þ...
Af hverju var Evrópusambandið stofnað? – 1. Jarðvegurinn
25.7.2011Einn af þekktustu sagnfræðingum 20. aldar, sem hafði óvenjulega yfirsýn, sagði að Evrópusambandið væri „barn sérstakra sögulegra aðstæðna sem geta líklega aldrei komið upp aftur“ (Hobsbawm, 1996, 578). Svo mikið er víst að ESB er afar óvenjulegt fyrirbæri í mannkynssögunni. Við höldum nú samt að það sé hægt að var...
Suðaustur-Asíubandalagið
23.6.2011Suðaustur-Asíubandalagið (Association of South-East Asian Nations, ASEAN), svæðissamtök ríkja í Suðaustur-Asíu. Hefur ekki jafnöflugar stofnanir og ESB en hefur engu að síður áhrif á alþjóðamál á svæðinu og víðar....
AKK-ríki
23.6.2011Ríkjahópur kenndur við Afríku, Karíbahaf og Kyrrahaf (ACP states, African, Caribbean and Pacific). Í hópnum eru ríki sem voru áður nýlendur ríkja sem nú eru í ESB. AKK-ríkin hafa fengið verulegan hluta af þróunaraðstoð Evrópusambandsins....
Milliríkja-
23.6.2011Milliríkja- (e. intergovernmental) er haft um ákvarðanir, fundi, stofnanir og þess háttar þar sem áherslan er á ríkisstjórnir aðildarríkjanna í stað eigin stofnana ESB. Sameiginlega stefnan í utanríkis- og öryggismálum (SSUÖ) fellur í þennan flokk....
Skilyrðing
23.6.2011Skilyrðing (e. conditionality) í samskiptum ríkja felst í því að aðstoð er því aðeins veitt að viðtökuríkið fallist á tiltekin skilyrði frá þeim sem veitir aðstoðina. Þannig getur hann haft veruleg áhrif á viðtökuríkið. Þessi aðferð er lykilatriði bæði í þróunaraðstoð ESB og eins í stækkunarferli þess....
Milliríkjahyggja
23.6.2011Milliríkjahyggja (e. intergovernmentalism) er sú hugsun að ríkisstjórnir aðildarlandanna hafi eða eigi að hafa tögl og hagldir í ESB og sambandið verði því aldrei neitt annað en tæki ríkjanna til að ná markmiðum sínum. Þannig muni sambandið til dæmis aldrei verða að sambandsríki....
Maastricht-skilyrðin
27.1.2012Maastricht-skilyrðin (e. Maastricht criteria, formlega kölluð convergence criteria eða viðmiðanir um samleitni) eru skilyrðin sem ríki þarf að fullnægja til að geta tekið upp evru sem gjaldmiðil. Þau voru innleidd með Maastricht-sáttmálanum árið 1992. Efnahagsleg samleitni er talin nauðsynleg forsenda þess að u...
Fríverslunarsamningur Norður-Ameríku, NAFTA
23.6.2011Fríverslunarsamningur Norður-Ameríku eða NAFTA (e. North American Free Trade Agreement) var undirritaður 1992 og lagði grunninn að fríverslunarsvæði Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó. Er stundum tekið sem dæmi um óbein áhrif ESB á aðra heimshluta....
Hvaða mál um brot íslenskra stjórnvalda á ríkisaðstoðarreglum EES eru nú til skoðunar hjá eftirlitsstofnun EFTA?
9.8.2011Ísland er hluti af innri markaði Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn frá árinu 1994. Með innri markaði er átt við frjálst flæði á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki. Íslandi ber að fylgja samkeppnisreglum ESB, nema í sjávarútvegi og landbúnaði. Þar á meðal er bann við ríkisstyrkjum sem geta haft áhrif á við...
Lýðræðishalli
23.6.2011Þegar talað er um lýðræðishalla (e. democratic deficit) í ESB er einkum átt við að stefnumótun sambandsins sé ekki eða hafi ekki verið nógu opin, lýðræðisleg og gagnsæ. Einnig að Evrópubúar hafi ekki nóga samkennd með Evrópu í samanburði við upprunasvæði sitt eða þjóðerni. Lýðræðishallinn birtist m.a. þegar tillög...
Af hverju hefur Evrópusambandið bannað hefðbundnar ljósaperur?
14.9.2012Evrópusambandið hefur bannað hefðbundnar ljósaperur í því skyni að draga úr losun koltvíildis (CO2) í andrúmsloftið og vinna þannig gegn gróðurhúsaáhrifum. Reglugerð sem kveður á um bann við gló- og halógenperum tók gildi árið 2009 en ákveðið var að innleiðing bannsins kæmi til framkvæmda í sex áföngum á tímabilin...
Bein réttaráhrif
8.11.2011Bein réttaráhrif (e. direct effect) hafa þær lagagerðir ESB sem eru nægilega skýrar, nákvæmar og óskilyrtar til að einkaaðilar geti byggt réttindi sín á þeim fyrir dómstólum í aðildarríkjunum. Dómstóll Evrópusambandsins tók af skarið um þetta í úrskurði frá árinu 1963 sem kenndur er við Van Gend en Loos....