Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „fulltr��i ESB“
618 svör fundustSumir segja að Mannréttindasáttmáli Evrópu kunni að vera stjórnarskrárígildi, hvað er átt við með þessu?
21.10.2011Stutta svarið Mannréttindasáttmáli Evrópu, sem Ísland er aðili að, hefur rík túlkunaráhrif á mannréttindaákvæði stjórnarskrár Íslands og því er stundum sagt að Mannréttindasáttmálinn hafi nokkurs konar stjórnarskrárígildi. Dómar Hæstaréttar hafa sýnt að leitast er við að túlka mannréttindaákvæði stjórnarskrárin...
Ef Ísland gengur í ESB og tekur upp evru verða þá verð á fatnaði nákvæmlega þau sömu hér og í öðrum evruríkjum?
10.5.2013Stutta svarið er varla. Þótt ekki sé útilokað að verð á fatnaði yrðu í einhverjum tilfellum þau sömu hér og á meginlandi Evrópu, ef Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru, yrði það frekar undantekning en regla. Aðild að Evrópusambandinu og myntbandalagi Evrópu gæti haft margvísleg áhrif á efnahag landsins...
Eru vísitölutengd skuldabréf ekki afleiður og falla þar með undir lög um verðbréfaviðskipti?
16.12.2011Vísitölutenging skuldabréfa breytir þeim ekki í afleiður. Skuldabréf er ein tegund verðbréfa, og verðbréf og afleiður eru ólíkar tegundir fjármálagerninga. Lög um verðbréfaviðskipti ná ekki yfir lán sem veitt eru með þeim hætti að viðskiptavinur gefur út skuldabréf þar sem hann skuldbindur sig til að endurgreiða l...
Hvernig eru ákvarðanir um beitingu refsiaðgerða teknar á vettvangi Evrópusambandsins?
30.8.2013Valdheimildir Evrópusambandsins til að grípa til refsiaðgerða eru skilgreindar í 29. grein sáttmálans um Evrópusambandið og í 75. og 215. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins. Það er ráð Evrópusambandsins sem tekur ákvarðanir um beitingu refsiaðgerða og aukinn meirihluta fulltrúa ráðsins þarf fyrir þe...
Eystrasaltsráðið
28.6.2013Eystrasaltsráðið (e. Council of the Baltic Sea States, CBSS) er samstarfsvettvangur ríkja sem eiga strönd að Eystrasalti, það er Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands, Eistlands, Lettlands, Litháens, Rússlands, Þýskalands og Póllands. Ísland, Noregur og Evrópusambandið eiga þó einnig aðild að ráðinu. Ráðið heldur árlega...
Samvinna Evrópu og Miðjarðarhafslanda
23.8.2013Samvinna Evrópu og Miðjarðarhafslanda (e. Union for the Mediterranean) er samstarfsvettvangur 43 ríkja; Evrópusambandsríkjanna 28 og 15 ríkja í Norður-Afríku, Miðausturlöndum og Balkanskaganum. Þessi ríki eru: Albanía Máritanía Alsír Mónakó Bosnía og Hersegóvína Hernumdu svæðin í Palestínu ...
Mun Ísland þurfa að borga til baka IPA-styrkina eftir að hafa gert hlé á aðildarviðræðunum við Evrópusambandið?
23.8.2013Eftir því sem Evrópuvefurinn kemst næst hafa umsóknarríki aldrei þurft að endurgreiða svonefnda IPA-styrki og hið sama gildir um kostnað Evrópusambandsins af aðildarviðræðunum sjálfum. Nú þegar íslensk stjórnvöld hafa formlega gert hlé á aðildarviðræðum landsins við Evrópusambandið ríkir óvissa um stöðu áætlaðra v...
Er það rétt að Evrópusambandið vilji takmarka kanil í sætabrauði og ef það er rétt af hverju vill sambandið gera það?
30.12.2013Kassíukanill frá Kína er sú kaniltegund sem notuð er hvað mest í matargerð en hún inniheldur töluvert mikið magn af efninu kúmarín sem talið er hafa skaðleg áhrif á starfsemi lifrar sé þess neytt í miklu magni. Evrópusambandið hefur því samþykkt reglugerð sem takmarkar magn kúmaríns í bakstursvörum. Reglugerð E...
Sameiginlegur markaður
30.12.2011Sameiginlegur markaður (e. common market) er þriðja eða fjórða stig efnahagslegs samruna, eftir því hvernig talið er. Það vísar til þess að til viðbótar við afnám hindrana í viðskiptum með vörur (sjá fríverslunarsvæði) kemur samkomulag um frjálst flæði framleiðsluþátta (e. factors of production), það er að segja, ...
Hverjir ákváðu samningsmarkmið Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið sem hófust 2010?
28.6.2011Í desember 2009 skipaði utanríkisráðherra tíu samningahópa til að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB á einstökum samningssviðum. Í hverjum hópi var formaður og auk hans fulltrúar ráðuneyta og stofnana, hagsmunaaðila, félagasamtaka og háskólasamfélagsins, alls yfir 200 manns í þessum 10 hópum. Hlutverk hópa...
Hvað felst í landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, CAP?
30.6.2011Skammstöfunin CAP stendur fyrir Common Agricultural Policy eða Sameiginlega landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Hún var frá upphafi einn af hornsteinum sambandsins og fyrsta stefnumótunarverkefnið sem var alfarið á forsvari þess. Undir hana féll lengi vel mikill hluti af útgjöldum sambandsins. Jafnframt hefur þet...
Hvað er Borgarafrumkvæði Evrópu (ECI) og hvaða breytingar mun það hafa í för með sér?
15.7.2011Með Lissabon-sáttmálanum tóku gildi ákvæði um svonefnt Borgarafrumkvæði Evrópu (European Citizen Initiative; ECI). Samkvæmt þeim getur ein milljón ríkisborgara ESB frá í það minnsta sjö aðildarríkjum sambandsins óskað eftir því við framkvæmdastjórn þess að hún leggi fram, innan ramma valdheimilda sinna, hvers kona...
Hvaða hag og óhag hefur íslenskur landbúnaður af aðild að Evrópusambandinu? [Umræðusvar B]
14.10.2011Þótt sérstaða íslensks landbúnaðar sé margvísleg glímir atvinnugreinin samt í grundvallaratriðum við sömu vandamál og allir bændur á Vesturlöndum. Tækniþróun og framfarir í ræktun og kynbótum hafa leitt af sér margfalt meiri afköst en áður hafa þekkst. Það hefur aftur leitt til þess að markaðir hafa ekki getað tek...
Er eitthvað til í því að í Evrópusambandinu sé bannað að nota kaffi til að drepa snigla?
31.8.2012Í Evrópusambandinu gilda strangar reglur um svonefnd plöntuvarnarefni, sem eru meðal annars notuð til að vernda plöntur gegn skaðlegum lífverum, en þau má hvorki setja á markað né nota nema að fengnu markaðsleyfi í aðildarríkjum ESB. Það er því óheimilt að framleiða vöru sem inniheldur kaffi/kaffikorg/koffín og ma...
Sameiginleg stefna í utanríkis- og öryggismálum
31.5.2013Sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins í utanríkis- og öryggismálum (e. Common Foreign and Security Policy, CFSP) var komið á fót með Maastricht-sáttmálanum árið 1993. Hún myndaði upprunalega aðra stoðina í stoðaskipulaginu þangað til það var afnumið með gildistöku Lissabon-sáttmálans árið 2009. Sameiginlega st...