Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „Sameiginleg landb��na��arstefna ESB“
590 svör fundustMundi aðild Íslands að NAFTA ekki fela í sér framsal á fullveldi rétt eins og aðild að Evrópusambandinu?
12.4.2013Nei. NAFTA er ekki yfirþjóðleg samtök eins og Evrópusambandið heldur einungis hefðbundinn milliríkjasamningur um fríverslun. Aðild að NAFTA felur því ekki í sér fullveldisframsal til yfirþjóðlegra stofnana. *** NAFTA stendur fyrir North-American Free Trade Agreement eða Fríverslunarsamning Norður-Ameríku. N...
Stendur til að hætta með Erasmus-styrki?
30.11.2012Í stuttu máli er svarið nei, það stendur ekki til að hætta með Erasmus-styrki. Aftur á móti er komin upp sú staða að fjárlög Evrópusambandsins fyrir árið 2012 duga ekki til að veita evrópskum landsskrifstofum framlög fyrir öllum útlögðum kostnaði á samstarfsverkefnum á borð við þau sem falla undir Menntaáætlun ESB...
Þyrftum við að keyra allt rusl frá Hornafirði til Reykjavíkur og urða það þar ef við göngum í ESB?
20.9.2013Á grundvelli EES-samstarfsins innleiðir Ísland alla löggjöf á sviði umhverfismála sem falla innan sviðs þess. Það á einnig við um úrgangsmál sem lúta algerlega regluverki ESB. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið mundi það eitt ekki leiða til breytinga á reglum um sorpvinnslu á Íslandi þar sem reglurnar eru nú þegar ...
Fréttamönnum verður tíðrætt um "alþjóðalög". Hvar situr það löggjafarþing er lögin setur? Á orðið sér einhverja stoð?
27.9.2013Með alþjóðalögum er átt við reglur sem gilda í lögskiptum ríkja, það er samskiptum sem lúta ákvæðum laga. Einnig þær réttarreglur sem gilda um starfsemi alþjóðastofnana. Aðallega er því um að ræða ákvæði alþjóðasamninga, venjur og meginreglur. Ekkert eitt löggjafarþing setur reglurnar heldur eru þær settar af þeim...
Hversu sjálfstæð þjóð eru Íslendingar ef litið er til sjálfstæðisbaráttu, inngöngu í EES og hugsanlegrar inngöngu í ESB?
24.6.2011Jón Sigurðsson og aðrir forystumenn í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á nítjándu öld vildu að þjóðin fengi að ráða málum sínum sjálf – yrði fullvalda ‒ þegar hún yrði fær um það. Smám saman unnust áfangasigrar, oftar en ekki í tengslum við þróun mála annars staðar í heiminum. Þannig hlaut Ísland fullveldi ári...
Ef EES-reglugerð er vitlaust þýdd, gildir þá ranga þýðingin?
26.3.2015Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona: Ef EES-reglugerð er innleidd í íslensk lög í rangri þýðingu hvort gildir þá upprunalega reglugerðin eða ranga íslenska þýðingin? Lögfræði, líkt og margar aðrar fræðigreinar, leggur mikið upp úr skýringu hugtaka. Úrlausn dómsmála sem varða mikilsverða hagsmuni getur ...
Hvernig bregst ESB við ef ráðist er á eitt ríki í sambandinu, fara þá öll ríkin í stríð?
4.4.2012Evrópusambandið er ekki hernaðarbandalag og fela sáttmálar þess ekki í sér sameiginlega varnarskuldbindingu álíka og 5. grein stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um að árás á eitt ríki jafngildi árás á þau öll. Aðildarríki Evrópusambandsins eru því ekki skyldug til að fara í stríð ef ráðist er á eitt aðildarríki...
Hvernig beitir ESB sér í refsiaðgerðum gegn Íran vegna meintra tilrauna þarlendra stjórnvalda til að koma upp kjarnorkuvopnum?
2.11.2012Undanfarin ár hefur Evrópusambandið beitt æ harðari refsiaðgerðum gegn Íran. Sambandið beitir alla jafna refsiaðgerðum á grundvelli ályktana sem samþykktar hafa verið á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Evrópusambandið getur þó einnig ákveðið að beita frekari refsiaðgerðum á grundvelli sameiginlegu stefnun...
Hefur almenningur einhver áhrif á samningaviðræðurnar við ESB eða ákveður Alþingi og utanríkisráðherra alfarið hvernig þeim mun ljúka?
19.4.2013Almenningur hefur enga formlega möguleika til að hafa áhrif á samningaviðræðurnar við Evrópusambandið meðan á þeim stendur. Þegar viðræðunum lýkur mun þjóðin hins vegar taka afstöðu til aðildar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ljósi niðurstöðu samningaviðræðnanna, það er að segja þeirra skilyrða sem aðild mundu fylgja. ...
Hvað er tveggja stoða kerfi EES-samningsins?
4.5.2012Stofnanalegum samskiptum fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Evrópusambandsins á grundvelli EES-samningsins er gjarnan lýst sem tveggja stoða kerfi. Önnur stoðin er samsett úr stofnunum EFTA en hin úr stofnunum ESB. Á milli stoðanna tveggja eru sameiginlegar stofnanir samningsaðilanna sem eru vettvangur samstarfs...
Úr hvaða sjóði ESB gæti íslensk björgunarsveit hugsanlega fengið styrk til að halda námskeið fyrir evrópskar björgunarsveitir á Íslandi?
5.6.2013Í fljótu bragði virðast geta verið tveir möguleikar í stöðunni: Almannavarnaáætlun ESB eða Grundtvig hluti menntaáætlunar ESB. Hvort verkefnið uppfylli hin nákvæmu skilyrði áætlananna verður ekki svarað í þessu stutta svari heldur vísað þangað sem nálgast má frekari upplýsingar. *** Það er rétt að styrkjaker...
Hversu margir þingmenn sitja á þingi Evrópusambandsins?
21.6.2011Í sáttmálanum um Evrópusambandið er kveðið á um að þingmenn á Evrópuþinginu skuli ekki vera fleiri en 750, auk forseta. Formlega eru þingsætin því samtals 751. Á grundvelli tímabundinnar aðlögunar að Lissabon-sáttmálanum auk aðildar Króatíu að sambandinu verða þingsætin þó 766 til loka yfirstandandi kjörtímabils, ...
Hvaða réttarstöðu hafa menntaðir nálastungulæknar í Evrópu?
10.2.2012Evrópusambandið hefur gefið út tilskipun um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi og hefur hún verið innleidd í lög hér á landi á grundvelli EES-samningsins. Tilskipuninni er ætlað að tryggja að einstaklingar sem hafa aflað sér sérfræðiþekkingar eigi rétt á að nýta þá þekkingu og að hún sé viðurkennd í öðrum að...
Er einhver ástæða fyrir því að einstakir kaflar eru opnaðir á undan öðrum í samningaviðræðum ESB og Íslands? Hvers vegna á til dæmis enn eftir að opna veigamikla kafla, svo sem um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál?
26.10.2012Í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins er ekki samið um alla samningskaflana samtímis heldur er samið sérstaklega um hvern og einn, þótt einhverjir kaflar séu opnaðir eða þeim lokað á sama tíma. Betur hefur gengið að vinna úr þeim köflum sem heyra undir EES-samninginn og Schengen-samstarfið. Þá hefur það t...
Er Evrópuvefurinn og Evrópustofa sama fyrirbærið?
15.3.2013Starfsmenn Evrópuvefsins verða þess reglulega varir að ekki sé gerður greinarmunur á Evrópuvefnum annars vegar og Evrópustofu hins vegar. Að gefnu tilefni verður því fjallað hér aðeins um muninn á Evrópuvefnum og Evrópustofu. Evrópuvefurinn og Evrópustofa gegna bæði hlutverki upplýsingaveitu um Evrópusambandið...