Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „Varnarmálastofnun Evrópu“
343 svör fundustAf hverju þurfa Íslendingar að fara eftir reglum sem Evrópusambandið setur, þó svo að Ísland sé ekki í ESB?
12.7.2011Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er Ísland skuldbundið til að taka upp í íslensk lög þann hluta í regluverki Evrópusambandsins sem lýtur að innri markaði sambandsins. Þetta gerist með ákveðnum hætti sem lýst er hér á eftir. Íslenska ríkið er skaðabótaskylt gagnvart einstaklingum eða lögaðilum ef það vanræ...
Af hverju sækir Ísland ekki um aðild að NAFTA í staðinn fyrir ESB?
5.4.2013Af tveimur ástæðum er ólíklegt að íslensk stjórnvöld komi til með að sækja um aðild eða einhvers konar aukaaðild að Fríverslunarsamningi Norður-Ameríku. Annars vegar eru það skýrar kröfur Bandaríkjanna um niðurfellingu tolla af landbúnaðarafurðum, sem gera það að verkum að erfitt yrði að ná samningum sem samræmdus...
Mundi aðild Íslands að NAFTA ekki fela í sér framsal á fullveldi rétt eins og aðild að Evrópusambandinu?
12.4.2013Nei. NAFTA er ekki yfirþjóðleg samtök eins og Evrópusambandið heldur einungis hefðbundinn milliríkjasamningur um fríverslun. Aðild að NAFTA felur því ekki í sér fullveldisframsal til yfirþjóðlegra stofnana. *** NAFTA stendur fyrir North-American Free Trade Agreement eða Fríverslunarsamning Norður-Ameríku. N...
Hvað er öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og hver eru markmið þess?
28.11.2013Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var stofnað á grundvelli stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og hóf störf 17. janúar 1946. Samkvæmt 24. grein stofnsáttmálans eru markmið öryggisráðsins að viðhalda friði og öryggi á alþjóðavettvangi. Ráðið gerir tillögur um fyrirkomulag vopnamála, mælir með aðgerðum til lausnar á dei...
Hvað táknar CE-merking á vörum, er það sérstakur evrópskur gæðastimpill? - Myndband
19.10.2012CE-merking er skilyrði fyrir markaðssetningu tiltekinna vara á Evrópska efnahagssvæðinu. Merkið er auðkennismerking sem gefur neytendum til kynna að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á...
Er spilling landlæg í Brussel? - Myndband
27.12.2013Ekki er hægt að gefa neitt einhlítt svar við því hvort spilling sé landlæg í Brussel. Spilling er hvarvetna til og á sér stað á landsvísu í Belgíu sem og í helstu stofnunum Evrópusambandsins, sem staðsettar eru í höfuðborg hennar. Niðurstöður kannana á viðhorfum almennings í Evrópu leiða í ljós að meirihluti svare...
Hvað er tveggja stoða kerfi EES-samningsins?
4.5.2012Stofnanalegum samskiptum fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Evrópusambandsins á grundvelli EES-samningsins er gjarnan lýst sem tveggja stoða kerfi. Önnur stoðin er samsett úr stofnunum EFTA en hin úr stofnunum ESB. Á milli stoðanna tveggja eru sameiginlegar stofnanir samningsaðilanna sem eru vettvangur samstarfs...
Hvernig vitum við að ESB mundi ekki bara ráðast á auðlindir okkar ef við göngum í ESB?
22.2.2013Evrópusambandið og aðildarríkin fara sameiginlega með valdheimildir í orkumálum, sbr. 4. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (SSE), en valdmörkin eru nánar skilgreind í 194. grein SSE. Þar er kveðið á um að Evrópuþingið og ráðið skuli ákveða nauðsynlegar ráðstafanir til að ná markmiðum orkustefnu sam...
Af hverju gekk Úkraína ekki í NATO fyrir löngu?
22.2.2023Útþensla Norður-Atlantshafsbandalagsins (NATO) til austurs var hvorki fyrirsjáanleg né sérstaklega tekin til umræðu þegar samið var um sameiningu Þýskalands árið 1990. Það varð hins vegar fljótlega ljóst, eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur og Rússland tók við hlutverki þeirra og skuldbindingum á alþjóðlegum vet...
Hvað felst í landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, CAP?
30.6.2011Skammstöfunin CAP stendur fyrir Common Agricultural Policy eða Sameiginlega landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Hún var frá upphafi einn af hornsteinum sambandsins og fyrsta stefnumótunarverkefnið sem var alfarið á forsvari þess. Undir hana féll lengi vel mikill hluti af útgjöldum sambandsins. Jafnframt hefur þet...
Hvert er hlutverk Feneyjanefndar Evrópuráðsins?
15.2.2013Feneyjanefnd hefur verið nokkuð í umræðunni að undanförnu eða frá því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis óskaði eftir áliti nefndarinnar á frumvarpi til stjórnskipunarlaga Íslands. Meginhlutverk nefndarinnar er einmitt þetta: að veita ríkjum lögfræðilegt álit sitt á lagafrumvörpum sem eru mikilvæg fyrir...
Hvenær lauk kalda stríðinu?
15.1.2026Kalda stríðinu er almennt talið hafa lokið á tímabilinu 1989 til 1991 og er þá gjarnan miðað við atburði eins og fall Berlínarmúrsins í nóvember árið 1989, sameiningu Þýskalands árið 1990 og svo hrun Sovétríkjanna í desember árið 1991. Síðasti atburðurinn hefur oftast verið hafður til viðmiðs enda var þá annað ...
Hvar finn ég íslenska þýðingu á helstu hugtökum ESB?
19.9.2011Þýðingar á hugtökum tengdum Evrópusambandinu er einna helst að finna á heimasíðu Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins. Þá var orðasafninu Alþjóðastjórnmál og stjórnmálafræði nýverið bætt við orðabanka Íslenskrar málstöðvar. Heildarútgáfa orðasafnsins verður gerð aðgengileg á pdf-formi í október 2011. Þessu til...
Samstarfsvettvangur ESB og nágrannaríkja þess í austri
14.6.2013Samstarfsvettvangur Evrópusambandsins og nágrannaríkja þess í austri (e. Eastern Partnership) var stofnaður á fundi leiðtoga ESB og sex nágrannaríkja þess í Austur-Evrópu og Suður-Kákasus í Prag árið 2009. Samstarfinu er ætlað að efla efnahagslegt og stjórnmálalegt samband ESB og samstarfsríkjanna; Armeníu, Aserba...
Af hverju er Rússland ekki í Evrópusambandinu? - Myndband
28.11.2013Rússland er ekki aðili að Evrópusambandinu og hefur aldrei sýnt því áhuga. Óvíst er að Rússland fengi yfirhöfuð inngöngu í sambandið ef það legði inn umsókn þar sem það uppfyllir ekki Kaupmannahafnarviðmiðin, inngönguskilyrði ESB. Staða mannréttinda í Rússlandi er sérstaklega bágborin, þrátt fyrir að hafa fullgilt...