Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „tólf“

24 svör fundust
Sögulegt efni

Hvað tákna stjörnurnar í fána Evrópusambandsins?

9.6.2004

Á fána Evrópusambandsins eru tólf gull-litaðar stjörnur sem mynda hring á bláum fleti. Það er almennur misskilningur að stjörnurnar tákni aðildarlönd sambandsins en það er ekki rétt enda eru löndin nú 27 talsins. Fáninn á að tákna sameiningu Evrópu en ekki aðeins aðildarlandanna. Hringurinn er tákn einingar og...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Af hverju eru ekki allar þjóðir innan ESB með evru sem gjaldmiðil?

2.5.2013

Ellefu af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins eru ekki hluti af evrusamstarfinu eða evruhópnum, eins og evruríkin eru oft nefnd. Tvö þeirra hafa varanlega undanþágu frá upptöku evru en hin níu eru skuldbundin til upptökunnar. Þau eru þó mislangt á veg komin með að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku hins sameiginlega ...

Aðildarviðræður Íslands

Er ekki sanngjarnt að helmingur styrks frá ESB til að kynna sig á Íslandi renni til andstæðinga ESB-aðildar, eða að íslenska ríkið veiti þeim jafnháa fjárhæð, 5,0 milljarða króna á ári?

5.7.2011

Evrópusambandið áætlar að verja 1,4 milljónum evra í kynningarmál hér á landi yfir tveggja ára tímabil, eða rúmum 230 milljónum íslenskra króna á genginu í ágúst 2011. Umsjón verkefnisins var boðin út haustið 2010 og þann 11. ágúst 2011 var tilkynnt að samið hefði verið um verkið við fyrirtækin Media Consulta Inte...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál

Hvenær og hvers vegna var NATO stofnað og hvaða tilgangi gegnir það í dag?

6.12.2013

Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO) var stofnað árið 1949 af tólf ríkjum í Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Stofnsáttmáli bandalagsins, sem var undirritaður 4. apríl 1949, kveður á um að NATO-ríkin skuldbinda sig til að „standa vörð um frelsi, sameiginlega arfleifð og borgaraleg gildi þjóða sinna, sem byggð eru á ...

Handbók og sagan

Evruríkin

27.7.2012

Evruríkin eru þau aðildarríki Evrópusambandsins sem hafa tekið upp evru (€) sem gjaldmiðil og falið Seðlabanka Evrópu stjórn sameiginlegrar peningamálastefnu. ESB-ríkjum ber að taka upp evru að uppfylltum svokölluðum Maastricht-skilyrðum sem kveða á um tilteknar efnahagslegar viðmiðanir um samleitni. Nánar er fjal...

Handbók og sagan

Evrópska nágrannastefnan

14.6.2013

Evrópsku nágrannastefnunni (e. European Neighbourhood Policy) var komið á fót í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins árið 2004. Hún á að varna því að bilið milli hins stækkaða sambands og nýju nágrannaríkjanna í austri og suðri breikki. Stefnunni er ætlað að styrkja tengslin milli Evrópusambandsins og 16 nánustu ná...

EES-samningurinn

Hvað mundi tapast og hvað ávinnast með því að segja upp EES-samningnum?

10.8.2012

Í þessu svari er annars vegar tæpt á þeim réttindum sem Íslendingar mundu verða af og hins vegar um það sem mætti kalla ávinning af uppsögn EES-samningsins. Miðað er við að samningurinn félli úr gildi og enginn annar samningur kæmi í staðinn fyrir hann, en deila má um hve raunverulegur sá möguleiki er. *** ...

Almenn handbók

Hverjar eru helstu stofnanir ESB

22.6.2011

Leiðtogaráðið (e. European Council) er skipað leiðtogum aðildarríkjanna, yfirleitt forsætisráðherrum en til dæmis er Frakklandsforseti fulltrúi Frakka í ráðinu. Einnig situr í ráðinu sérstakur forseti sem undirbýr fundi þess, stýrir þeim og kemur fram í nafni ráðsins. Leiðtogaráðið heldur fundi allt að fjórum sinn...

Aðildarviðræður Íslands

Er einhverjum fulltrúa í samninganefnd Íslands gert að huga sérstaklega að réttindum minnihlutahópa?

8.2.2013

Nei, engum fulltrúa í samninganefnd Íslands er gert að huga sérstaklega að réttindum minnihlutahópa. Samkvæmt erindisbréfi eiga þeir hins vegar að "gæta að hagsmunum þjóðarinnar í hvívetna". Í samninganefndinni eiga sæti formenn allra samningahópanna tíu ásamt aðalsamningamanni og sjö nefndarmönnum til viðbótar. R...

Almenn handbók

Efnahags- og myntbandalagið

17.2.2012

Efnahags- og myntbandalagið (e. Economic and Monetary Union, EMU) er samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins í efnahags- og peningamálum. Formleg ákvörðun um stofnun EMU var tekin af ráði ESB í lok árs 1991 og voru ákvæði um samstarfið innleidd í sáttmála sambandsins með Maastricht-sáttmálanum árið 1992. Samstarfi...

Almenn handbók

ESB-ríkin

10.8.2012

Aðildarríki ESB eru 27 talsins. Stofnríki sambandsins voru Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Belgía, Holland og Lúxemborg en við stofnun þess árið 1958 gekk það undir heitinu Efnahagsbandalag Evrópu. Nokkrum árum áður, árið 1952, höfðu sömu ríki einnig stofnað Kola- og stálbandalagið. Á næstu þremur áratugum gengu Bre...

EES-samningurinn

Hvað kemur fram í norsku skýrslunni um samband Noregs og ESB?

25.1.2012

Í liðinni viku fékk utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Störe, afhenta 900 blaðsíðna langa skýrslu um samband Noregs og Evrópusambandsins, Utenfor og innenfor: Norges avtaler med EU. Skýrslan er árangur tveggja ára rannsóknarvinnu tólf fræðimanna, sem skipaðir voru í nefnd af norsku ríkisstjórninni. Nefndinni var...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Hvenær og hvernig var gjaldmiðlum ESB-ríkja skipt út fyrir evru?

27.7.2012

Í janúar árið 1999 hófst þriðji og síðasti áfangi efnahags- og myntbandalagsins með formlegum hætti. Sameiginlegur gjaldmiðill, evran (€), var þá tekinn upp sem opinber gjaldmiðill í þeim ríkjum ESB sem uppfylltu svonefnd Maastricht-skilyrði. Leiðin sem farin var við upptöku evrunnar, Madríd-leiðin, dregur nafn si...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hver var afstaðan til aðildar að ESB samkvæmt skoðanakönnunum í umsóknarríkjum árin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur, í þeim löndum sem þær voru haldnar?

9.11.2012

Þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að Evrópusambandinu fóru fram í 15 af 27 núverandi aðildarríkjum sambandsins. Fjallað er um niðurstöður atkvæðagreiðslnanna í svari við spurningunni Hafa öll aðildarríki ESB kosið í lýðræðislegri kosningu um aðild að ESB? Góðar upplýsingar um afstöðuna til aðildar í umsóknarríkj...

Evrópumál

Í hvaða samningsköflum fer Ísland hvorki fram á aðlögun, undanþágur né sérlausnir?

18.1.2013

Í fjórtán samningsköflum, sem taldir eru upp hér að neðan, er opinber samningsafstaða Íslands sú að regluverk Evrópusambandsins er samþykkt án óska um undanþágur, sérlausnir eða aðlögun. *** Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í 35 kafla og er samið um 33 þeirra meðan á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusamba...

Fleiri niðurstöður