Leit á vefnum
Niðurstöður leitar: „ESB-reglur“
621 svar fannstHvað eru TAIEX-styrkir og hverjir geta sótt um þá?
24.8.2012Síðan sumarið 2010 hefur Íslandi staðið til boða svokölluð TAIEX-aðstoð Evrópusambandsins. Hún gengur fyrst og fremst út á að aðstoða umsóknarríki ESB við að undirbúa sig undir þær skuldbindingar sem aðild að Evrópusambandinu felur í sér. TAIEX snýst um að miðla starfsmönnum í stjórnsýslu umsóknarríkja nauðsynlegr...
Hvað teljið þið helst til tíðinda í yfirlýsingu Merkel og Sarkozys frá 16. ágúst? [Fréttaskýring]
22.8.2011Í fyrsta lagi gefur yfirlýsing Merkel og Sarkozys tilefni til að hugleiða stöðu smáríkja sem hafa barist í bökkum að undanförnu. Í öðru lagi förum við nokkrum orðum um stöðu evrukerfisins, kosti þess og galla. Þá ræðum við hugmyndir um samræmdan fyrirtækjaskatt í Þýskalandi og Frakklandi, og að lokum er hér fjalla...
Njóta fátækustu ríki heims sérstakra tollfríðinda hjá Evrópusambandinu?
7.9.2012Í stuttu máli er svarið já, fátækustu ríki heims njóta sérstakra tollfríðinda hjá Evrópusambandinu. Allt frá árinu 1971 hefur Evrópusambandið veitt þróunarríkjum aukinn markaðsaðgang að sambandinu, meðal annars með því að veita þeim tollfríðindi við innflutning á vörum á grundvelli almenns tollaívilnanakerfis (e. ...
Getur almenningur einhvers staðar fylgst með samningaferlinu við Evrópusambandið?
19.4.2013Á heimasíðu utanríkisráðuneytisins um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið, viðræður.is, er að finna margvíslegan fróðleik tengdan samningaferlinu. Á meðal þess efnis sem þar ber hæst eru: Formleg gögn eins og umsókn Íslands og álit meiri hluta utanríkismálanefndar Alþingis á umsókninni. Ýmis gögn Evrópusamban...
Hefur Ísland tekið þátt í efnahagslegum refsiaðgerðum gegn ríkjum sem hafa brotið alþjóðleg lög?
27.11.2013Já, Ísland hefur innleitt allar þvingunaraðgerðir og efnahagslegar refsiaðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þar að auki hefur Ísland innleitt flestar þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins en ítarlegri umfjöllun um efnahagslegar refsiaðgerðir ESB er að finna í svari vefsins við spurningunni Beitir Evrópusambandi...
Hvað hefði gerst ef Evrópusambandið hefði ekki verið stofnað?
8.11.2013Síðla árs 2012 hlaut Evrópusambandið friðarverðlaun Nóbels. Það val vakti víða undrun. Ekki hafði sambandinu tekist að stilla til friðar á Balkanskaga, í eigin bakgarði, þegar blóðug átök blossuðu þar upp eftir hrun kommúnismans 1989. Ekki hafði sambandið haft úrslitaáhrif um þau straumhvörf, þegar helmingur Evróp...
Hvaða fríverslunarsamninga hefur Ísland gert og eru þeir allir af sama tagi?
16.8.2013Stutta svarið Ísland er aðili að fríverslunarsamningum við um áttatíu ríki. Samningarnir eru í meginatriðum byggðir eins upp og hafa flestir þeirra komið til með samstarfi EFTA-ríkjanna. Mikilvægasti samningur Íslands og jafnframt sá víðtækasti er EES-samningurinn. Lengra svar Ísland hefur gert fríve...
Hver voru tíu vinsælustu svörin á Evrópuvefnum í september 2012?
1.10.2012Samkvæmt vefmælingu Modernus voru þetta tíu vinsælustu svör septembermánaðar árið 2012 á Evrópuvefnum: Af hverju hefur Evrópusambandið bannað hefðbundnar ljósaperur? Ættu Íslendingar að taka upp evruna? Er eitthvað til í því að í Evrópusambandinu sé bannað að nota kaffi til að drepa snigla? Hverjar yrðu hels...
Hvernig hefur landbúnaðarstefna Evrópusambandsins þróast í tímans rás?
14.10.2011Landbúnaður sem atvinnugrein hefur allnokkra sérstöðu þegar horft er á hagsögu 20. aldar. Vegna tæknivæðingar hefur framleiðsla á starfsmann margfaldast langt umfram eftirspurn eftir vörunni á flestum markaðssvæðum. Landbúnaður er oft nátengdur staðbundinni menningu, þjóðerni og þess háttar, og jafnframt reynir þa...
Geta ríki utan Evrópu sótt um aðild að Evrópusambandinu?
15.6.2012Í stuttu máli er svarið nei. Ríki utan Evrópu geta ekki sótt um aðild að Evrópusambandinu þar sem 49. gr. sáttmálans um Evrópusambandið kveður á um að: „Sérhvert Evrópuríki, sem virðir þau gildi sem um getur í 2. gr. [sáttmálans um ESB] og einsetur sér að stuðla að þeim, getur sótt um að gerast aðili að sambandinu...
Sameiginleg stefna í öryggis- og varnarmálum
7.6.2013Sameiginleg stefna í öryggis- og varnarmálum (e. Common Security and Defence Policy, CSDP) er óaðskiljanlegur hluti sameiginlegrar stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum. Fyrri stefna, Evrópska stefnan í öryggis- og varnarmálum (e. European Security and Defence Policy, ESDP), var samþykkt á leiðtogafundi í Köln á...
Hvað mundi breytast við aðild að Evrópusambandinu varðandi póstverslun?
26.10.2012Helstu breytingarnar sem aðild að Evrópusambandinu hefði í för með sér varðandi póstverslun lúta að tollum annars vegar og fyrirkomulagi virðisaukaskattsinnheimtu hins vegar. – Núverandi umhverfi póstverslunar á Íslandi býður upp á ýmsa möguleika til einföldunar óháð aðild að ESB og hefur Alþingi nýverið ákveðið a...
Sérstök lagasetningarmeðferð
12.10.2012Flestar lagagerðir Evrópusambandsins eru samþykktar með almennri lagasetningarmeðferð þar sem Evrópuþingið og ráðið hafa sama vægi í löggjafarferlinu. Í sérstökum tilvikum er afleidd löggjöf ESB hins vegar samþykkt af hálfu ráðsins með þátttöku Evrópuþingsins eða, í örfáum tilfellum, af hálfu Evrópuþingsins með þá...
Hvenær var Evrópusambandið stofnað og hvaða lönd eru í því núna?
29.1.2009Fyrsta bandalagið sem yfirleitt er talið til fyrirrennara ESB var Kola- og stálbandalag Evrópu (KSB; European Coal and Steel Community, ECSC) frá 1952. Í því voru sex ríki í Vestur-Evrópu: Frakkland, Vestur-Þýskaland, Ítalía, Belgía, Holland og Lúxemborg. Árið 1958 stofnuðu sömu ríki tvö bandalög til viðbótar: Efn...
Er fiskurinn ekki okkar mest selda vara til útlanda og þá mikið til Evrópu?
25.1.2013Hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi Íslands hefur lækkað á undanförnum árum á meðan hlutfall iðnaðarvara hefur hækkað. Árið 2011 var fjórða árið í röð þar sem meira var flutt út af iðnaðarvörum en sjávarafurðum. Útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2011 var 251,6 milljarður króna eða 40,6% af heildarverðmæti ...