Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „ESB-ríkin“

596 svör fundust
Handbók og sagan 8.11.2011

Bein lagaáhrif

Bein lagaáhrif (e. direct applicability) hafa lagagerðir sem verða hluti af landslögum aðildarríkja án sérstakrar innleiðingar í landsrétt. Meginmunurinn á reglugerðum og tilskipunum er að reglugerðir hafa bein lagaáhrif en tilskipanir almennt ekki....

Efnahags- og gjaldeyrismál 2.8.2011

Hvort landið er líklegra til að fara í greiðsluþrot, Ísland eða Grikkland?

Þegar rætt er um greiðsluþrot lands er jafnan átt við það þegar skuldir ríkissjóðs viðkomandi lands fást ekki greiddar að fullu. Mörgum er enn í fersku minni þegar ríkisstjórn Argentínu lýsti því yfir í desember 2001 að hún gæti ekki staðið við lánaskuldbindingar ríkisins og leiddi þetta til stærsta greiðsluþrots ...

Neytendamál 25.10.2011

Er það rétt að Evrópusambandið banni börnum að leika sér með segulstál, leikfangavaraliti, partýflautur og blöðrur?

Svarið við þessari spurningu er nei. Evrópusambandið hefur ekki sett neinar reglur sem banna börnum að leika sér með leikföng. Sambandið hefur hins vegar samræmt reglur aðildarríkjanna um öryggiskröfur sem leikföng í verslunum verða að uppfylla. Þessar reglur gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, þar með einnig á...

Handbók og sagan 21.9.2012

Efnahags- og félagsmálanefnd

Efnahags- og félagsmálanefnd Evrópusambandsins (e. European Economic and Social Committee) var sett á fót með Rómarsáttmálanum, árið 1957, í þeim tilgangi að ljá hagsmunahópum rödd á vettvangi sambandsins og styrkja þannig lýðræðislegt lögmæti þess. Nefndin er meðal annars skipuð fulltrúum vinnuveitenda og launþeg...

Utanríkis-, öryggis- og varnarmál 13.4.2012

Hver er samningsafstaða Íslands í utanríkis, öryggis- og varnarmálum?

Viðræðum Íslands og ESB um samningskaflann um utanríkis-, öryggis- og varnarmál er lokið. Í opinberri samningsafstöðu Íslands, sem mótuð var af samningahópnum um utanríkisviðskipti, utanríkis- og öryggismál, kemur fram að Ísland sé tilbúið að taka þátt í sameiginlegri stefnu ESB í utanríkis-, öryggis- og varnarmál...

Stækkunarstefna 24.8.2012

Hvað eru TAIEX-styrkir og hverjir geta sótt um þá?

Síðan sumarið 2010 hefur Íslandi staðið til boða svokölluð TAIEX-aðstoð Evrópusambandsins. Hún gengur fyrst og fremst út á að aðstoða umsóknarríki ESB við að undirbúa sig undir þær skuldbindingar sem aðild að Evrópusambandinu felur í sér. TAIEX snýst um að miðla starfsmönnum í stjórnsýslu umsóknarríkja nauðsynlegr...

Evrópuvefurinn 1.10.2012

Hver voru tíu vinsælustu svörin á Evrópuvefnum í september 2012?

Samkvæmt vefmælingu Modernus voru þetta tíu vinsælustu svör septembermánaðar árið 2012 á Evrópuvefnum: Af hverju hefur Evrópusambandið bannað hefðbundnar ljósaperur? Ættu Íslendingar að taka upp evruna? Er eitthvað til í því að í Evrópusambandinu sé bannað að nota kaffi til að drepa snigla? Hverjar yrðu hels...

Evrópuvefurinn 3.9.2013

Hver voru tíu vinsælustu svörin á Evrópuvefnum í ágúst 2013?

Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru þetta tíu vinsælustu svör ágústmánaðar árið 2013 á Evrópuvefnum: Hvað eru IPA-styrkir og hverjir geta sótt um þá? Í hvaða ESB-löndum er vændi leyfilegt og hefur ESB markað sér einhverja stefnu í vændismálum? Hvað táknar CE-merking á vörum, er það sérstakur evrópskur gæðasti...

Handbók og sagan 6.7.2012

Sambandsborgari

Orðið sambandsborgari (e. citizen of the Union) er notað um ríkisborgara aðildarríkja Evrópusambandsins. Sambandsborgararéttur kemur til viðbótar við ríkisborgararétt í aðildarríki; einstaklingar sem hafa ríkisfang í aðildarríki ESB eru því einnig sambandsborgarar. Samkvæmt 2. mgr. 20 gr. sáttmálans um starfsh...

Sögulegt efni 14.10.2011

Hvernig hefur landbúnaðarstefna Evrópusambandsins þróast í tímans rás?

Landbúnaður sem atvinnugrein hefur allnokkra sérstöðu þegar horft er á hagsögu 20. aldar. Vegna tæknivæðingar hefur framleiðsla á starfsmann margfaldast langt umfram eftirspurn eftir vörunni á flestum markaðssvæðum. Landbúnaður er oft nátengdur staðbundinni menningu, þjóðerni og þess háttar, og jafnframt reynir þa...

Almenn handbók 7.6.2013

Sameiginleg stefna í öryggis- og varnarmálum

Sameiginleg stefna í öryggis- og varnarmálum (e. Common Security and Defence Policy, CSDP) er óaðskiljanlegur hluti sameiginlegrar stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum. Fyrri stefna, Evrópska stefnan í öryggis- og varnarmálum (e. European Security and Defence Policy, ESDP), var samþykkt á leiðtogafundi í Köln á...

Handbók og sagan 12.10.2012

Sérstök lagasetningarmeðferð

Flestar lagagerðir Evrópusambandsins eru samþykktar með almennri lagasetningarmeðferð þar sem Evrópuþingið og ráðið hafa sama vægi í löggjafarferlinu. Í sérstökum tilvikum er afleidd löggjöf ESB hins vegar samþykkt af hálfu ráðsins með þátttöku Evrópuþingsins eða, í örfáum tilfellum, af hálfu Evrópuþingsins með þá...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi 14.9.2012

Hafa oft verið haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur í tengslum við Evrópusambandið?

Stutta svarið Allt í allt er Evrópuvefnum kunnugt um að 44 ESB-tengdar þjóðaratkvæðagreiðslur hafi farið fram í samtals 24 löndum, aðildarríkjum ESB og öðrum Evrópuríkjum. Flestar ESB-tengdar þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar í Írlandi, 9 talsins, og í Danmörku, 7 talsins. Í átta aðildarríkjum hafa ald...

Almenn handbók 23.6.2011

Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA

Fríverslunarsamtök Evrópu (e. European Free Trade Association, EFTA) voru stofnuð með Stokkhólms-samningnum árið 1960. Stofnríkin voru sjö: Austurríki, Bretland, Danmörk, Noregur, Portúgal, Sviss og Svíþjóð. Ísland varð aðili að samtökunum árið 1970. Síðan þá hafa samtökin dregist verulega saman en fimm af stofnrí...

Almenn handbók 1.6.2012

Nettógreiðendur og nettóþiggjendur

Nettógreiðendur (e. net contributors) eru þau aðildarríki ESB kölluð sem greiða meira í sjóði ESB en þau fá til baka úr þeim. Að sama skapi eru nettóþiggjendur (e. net beneficiaries) þau ríki sem fá meira úr sjóðum ESB en þau greiða í þá. Tekjur Evrópusambandsins samanstanda að langmestum hluta af framlögum frá...

Fleiri niðurstöður