Spurning

EFTA/EES-ríkin

Spyrjandi

Evrópuvefur

Svar

EFTA/EES-ríkin eru Ísland, Liechtenstein og Noregur, en það eru þau EFTA-ríki sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Með samningnum urðu EFTA/EES-ríkin hluti af innri markaði Evrópusambandsins, sem grundvallast á reglunum um svonefnt fjórfrelsi, og skuldbundu sig jafnframt til að taka upp í innlenda löggjöf þann hluta í regluverki ESB sem lýtur að innri markaði sambandsins.

Stofnanaleg samskipti EFTA og ESB gegna mikilvægu hlutverki við að ná markmiðum EES-samningsins og tryggja samráð um þróun sameiginlegra reglna. Um stofnanauppbyggingu EES-samstarfsins er fjallað í svari við spurningunni Hvað er tveggja stoða kerfi EES-samningsins?

Ólíkt tollabandalagi Evrópusambandsins er efnislegt gildissvið EES-samningsins takmarkað, til að mynda falla viðskipti með fiskafurðir að mestu utan samningsins. Nánari upplýsingar um EES-samninginn er að finna í svari við spurningunni Hvert er eðli EES-samningsins?

Sviss er eina EFTA-ríkið sem ekki er aðili að EES-samningnum. Þess í stað hefur Sviss gert tvíhliða samninga við Evrópusambandið en um þá má lesa í svari við spurningunni Hvað er átt við með svissnesku leiðinni í samskiptum ríkja við ESB?
Við þetta svar er engin athugasemd Fela