Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
EFTA/EES-ríkin eru Ísland, Liechtenstein og Noregur, en það eru þau EFTA-ríki sem eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Með samningnum urðu EFTA/EES-ríkin hluti af innri markaði Evrópusambandsins, sem grundvallast á reglunum um svonefnt fjórfrelsi, og skuldbundu sig jafnframt til að taka upp í innlenda löggjöf þann hluta í regluverki ESB sem lýtur að innri markaði sambandsins.

Stofnanaleg samskipti EFTA og ESB gegna mikilvægu hlutverki við að ná markmiðum EES-samningsins og tryggja samráð um þróun sameiginlegra reglna. Um stofnanauppbyggingu EES-samstarfsins er fjallað í svari við spurningunni Hvað er tveggja stoða kerfi EES-samningsins?

Ólíkt tollabandalagi Evrópusambandsins er efnislegt gildissvið EES-samningsins takmarkað, til að mynda falla viðskipti með fiskafurðir að mestu utan samningsins. Nánari upplýsingar um EES-samninginn er að finna í svari við spurningunni Hvert er eðli EES-samningsins?

Sviss er eina EFTA-ríkið sem ekki er aðili að EES-samningnum. Þess í stað hefur Sviss gert tvíhliða samninga við Evrópusambandið en um þá má lesa í svari við spurningunni Hvað er átt við með svissnesku leiðinni í samskiptum ríkja við ESB?

Höfundur

Útgáfudagur

20.7.2012

Síðast uppfært

25.2.2026

Spyrjandi

Evrópuvefur

Tilvísun

Evrópuvefur. „EFTA/EES-ríkin.“ Evrópuvefurinn, 20. júlí 2012, sótt 27. mars 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=62957.

Evrópuvefur. (2012, 20. júlí). EFTA/EES-ríkin. Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=62957

Evrópuvefur. „EFTA/EES-ríkin.“ Evrópuvefurinn. 20. júl. 2012. Vefsíða. 27. mar. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=62957>.

Chicago | APA | MLA