Leit á vefnum

Niðurstöður leitar: „ESB-reglur“

617 svör fundust
Landbúnaður

Er það satt sem sagt er að við inngöngu í ESB mundi matvælaverð að líkindum lækka um 18-25%?

26.4.2013

Nei, matvælaverð er ekki líklegt til að lækka svo mikið við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ef litið er til beinna áhrifa af ódýrari innflutningi búvara frá aðildarríkjum ESB, vegna niðurfellingar tolla við aðild, má gróflega áætla að búvörur gætu lækkað um á bilinu 7 til 15%. Það mundi þýða um það bil 3,5 til ...

Almenn handbók

Hverjar eru helstu stofnanir ESB

22.6.2011

Leiðtogaráðið (e. European Council) er skipað leiðtogum aðildarríkjanna, yfirleitt forsætisráðherrum en til dæmis er Frakklandsforseti fulltrúi Frakka í ráðinu. Einnig situr í ráðinu sérstakur forseti sem undirbýr fundi þess, stýrir þeim og kemur fram í nafni ráðsins. Leiðtogaráðið heldur fundi allt að fjórum sinn...

Almenn handbók

Hverjir eru helstu sáttmálar ESB?

22.6.2011

Parísar-sáttmálinn (e. Paris Treaty) frá 1952 lagði grunninn að stofnun Kola- og stálbandalagsins. Markmiðið var að koma í veg fyrir hernað og draga úr spennu á milli aðildarríkja þess eftir seinni heimsstyrjöldina. Rómarsáttmálarnir (e. Rome Treaties) frá árinu 1958 lögðu grunninn að stofnun Efnahagsbandalags...

Almenn handbók

Innri markaður ESB og EES

13.4.2012

Innri markaður (e. internal market, single market) Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins (EES) grundvallast á reglunum um fjórfrelsið eða hið fjórþætta frelsi (e. the four freedoms), sem er hugtak sem vísar til frjáls flæðis vöru, launþega, þjónustu og fjármagns. Stofnun innri markaðarins átti sér l...

Stofnanir

Í hvað fara útgjöld ESB?

7.7.2026

Í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu (18. maí 2026) er greinargóð lýsing á skiptingu útgjalda Evrópusambandsins. Þar er tilgreint hvernig útgjöld sambandsins skiptast samkvæmt langtímafjárhagsáætlun ESB fyrir árin 2021–2027....

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hvað eru hagsmunasamtök og hvaða hlutverki gegna þau í lýðræðisríkjum?

2.5.2025

Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona: Hvernig geta hagsmunasamtök haft áhrif á ríkisvaldið? Er æskilegt í lýðræðisþjóðfélagi að hagsmunasamtök hafi áhrif stjórnvöld? Hagsmunasamtök (e. interest groups) eru skipulögð félagasamtök eða hópar sem leitast við að hafa áhrif á opinbera stefnumótun í þágu tilte...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hafa einhver aðildarríki ESB haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort sækja ætti um aðild að ESB?

8.6.2012

Eftir því sem Evrópuvefurinn kemst næst hefur ekkert ríki, hvorki aðildarríki ESB né annað, efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort það ætti að sækja um aðild að ESB eða ekki. Á Íslandi er stefnt að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda skuli aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið áfram eða...

EES-samningurinn

Tengist Icesave ESB á einhvern hátt?

30.8.2012

Icesave-deilan er á milli Íslands og Bretlands annars vegar og Íslands og Hollands hins vegar. Í þröngum skilningi snýst Icesave-deilan um þá kröfu Breta og Hollendinga að íslenska ríkið beri ábyrgð á innlánum sem voru á Icesave-reikningum Landsbankans í útibúum bankans í Bretlandi og Hollandi þegar íslenska ríkið...

Efnahags- og gjaldeyrismál

Eru íslensk fyrirtæki samkeppnishæf innan ESB?

30.11.2012

Ef marka má mælikvarða Alþjóðaefnahagsráðsins og IMD viðskiptaháskólans í Sviss þá er Ísland yfir meðallagi í samkeppnishæfni á alþjóðlegum mörkuðum í samanburði við aðildarríki ESB. Í mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins árið 2012 er Ísland í 12. sæti ef staða Íslands er skoðuð í samanburði við 27 aðildarríki ESB. Í ...

Sögulegt efni

Er hugmyndafræði ESB byggð á sósíalisma?

19.8.2011

Stutta svarið Ef hægt er að tala um sérstaka hugmyndafræði Evrópusambandsins þá er hún varla byggð á einni tiltekinni stjórnmálastefnu því að helstu áhrifavaldar hennar eru ríkisstjórnir sem skipaðar eru flokkum með mismunandi hugmyndafræði. Ekki má heldur gleyma sérstökum hagsmunum aðildarríkja sem þau beita s...

Aðildarviðræður Íslands

Geta aðildarríki ESB gengið úr sambandinu?

7.7.2011

Einfalda svarið við þessari spurningu er já. Í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór 23. júní 2016 kaus meirihluti Breta að segja sig úr Evrópusambandinu. Lengi vel var deilt um það hvort aðildarríkjum Evrópusambandsins væri heimilt að ganga úr sambandinu eða ekki. Með Lissabon-sáttmálanum frá 2009 voru hins vegar te...

Stofnanir

Hver er staða smáríkja innan ESB?

27.1.2012

Stutta svarið Geta smáríkja til að hafa áhrif innan Evrópusambandsins er umdeild en uppbygging sambandsins veitir aðildarríkjunum ólíka möguleika. Stærri aðildarríkin hafa fleiri atkvæði í ráðinu og fleiri fulltrúa á Evrópuþinginu en þar að auki búa þau yfir meira fjármagni, mannauði og viðameiri stjórnsýslu. Sm...

Aðildarviðræður Íslands

Þjónar innganga Íslands mikilvægum hagsmunum ESB?

18.10.2011

Aðild Íslands að Evrópusambandinu þjónar ákveðnum hagsmunum sambandsins. Ísland er þó bæði lítið ríki og auk þess þegar í innri markaði ESB með EES-samningnum frá árinu 1994, og því má ætla að beinir efnahagslegir hagsmunir séu takmarkaðir. ESB gæti þó haft hag af aðild Íslands að Sameiginlegri fiskveiðistefnu sam...

Fullveldi, lýðræði og mannréttindi

Hvað er lýðræði?

27.2.2009

Orðið lýðræði getur annars vegar snúið að því hvernig grunnstofnunum er fyrir komið í samfélaginu og hvernig fólk velur valdhafa eða skiptir um þá. Einnig getur lýðræði snúist um það hvernig taka skuli ákvarðanir í hópi fólks. Í svarinu er einnig fjallað um svonefnt fulltrúalýðræði í samanburði við beint lýðræði. ...

Landbúnaður

Er ríkisaðstoð til landbúnaðar leyfileg innan ESB?

18.8.2011

Regluverk Evrópusambandsins bannar að mestu ríkisstyrki, það er að segja styrki frá aðildarríkjunum sjálfum, sem geta haft áhrif á viðskipti milli ríkjanna með því að ívilna ákveðnum ríkjum eða svæðum, fyrirtækjum eða framleiðslu ákveðinna vara. Markmiðið er að stuðla að virkri samkeppni á innri markaði ESB. Ákveð...

Fleiri niðurstöður