Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,9% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,9% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB

Hver ræður yfir auðlindum þjóða sem eru í ESB?

Þegar rætt er um ESB og náttúruauðlindir þarf að greina á milli tveggja ólíkra atriða. Annars vegar er um að ræða forræði ríkisins yfir náttúruauðlindum sínum og skipan eignarréttar. Hins vegar eru heimildir ESB til að setja reglur um atvinnustarfsemi og viðskipti sem byggjast á nýtingu þessara auðlinda.

Grundvallarreglan um forræði aðildarríkja

Meginreglan er sú að aðildarríki ESB fara sjálf með ákvörðunarvald um eignarfyrirkomulag og nýtingu náttúruauðlinda sinna. Sú regla á sér stoð í almennum þjóðarétti, einkum reglunni um varanlegt fullveldi ríkja yfir náttúruauðlindum (e. Permanent Sovereignty over Natural Resources). Samkvæmt henni hefur sérhvert ríki rétt til að stjórna, nýta og ráðstafa náttúruauðlindum innan síns yfirráðasvæðis í þágu þjóðarinnar. Helsta heimild reglunnar er ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 1803 (XVII) frá árinu 1962. Reglan á jafnframt rætur í sjálfsákvörðunarrétti þjóða og telst nú hluti af þjóðaréttarvenju.

Í ESB-rétti kemur reglan fram í 345. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins, þar sem segir að samningarnir hafi ekki áhrif á reglur aðildarríkjanna um eignarfyrirkomulag. Aðildarríkin ákveða því sjálf hvort náttúruauðlindir eru nýttar, hvaða auðlindir eru teknar til nýtingar og hvernig eignarhaldi þeirra er háttað, nema að því marki sem þau hafa með sáttmálunum framselt tilteknar valdheimildir til ESB. Auðlindir geta þannig verið í opinberri eigu, einkaeigu eða sætt sérstöku eignar- eða stjórnskipulagi samkvæmt landslögum. Þessar ákvarðanir verða þó eftir atvikum að samrýmast öðrum reglum ESB-réttar, svo sem reglum um frjálst flæði, samkeppni og bann við mismunun.

Þetta þýðir þó ekki að nýting auðlinda sé undanþegin reglum ESB. Þegar ríki hefur ákveðið að nýta tiltekna auðlind sem hluta af atvinnustarfsemi getur sú starfsemi fallið undir reglur innri markaðarins. ESB hefur meðal annars heimildir til að samræma reglur um frjálsa vöruflutninga, þjónustu, stofnsetningu, fjármagnsflutninga, samkeppni og umhverfisvernd.

Ísland tekur nú þegar þátt í innri markaði ESB á grundvelli EES-samningsins. Fjölmargar reglur um starfsemi fyrirtækja, vöruflutninga, matvælaöryggi, samkeppni, umhverfismál og ýmsa þætti auðlindanýtingar gilda því þegar hér á landi. Meginmunurinn við fulla aðild væri ekki að Ísland færi úr einu regluumhverfi í annað, heldur að Ísland tæki þátt í mótun reglnanna og ákvörðunum innan stofnana sambandsins.

Af grundvallarreglunni um forræði ríkja yfir auðlindum sínum leiðir að ESB hefur almennt ekki heimild til að skylda aðildarríki til að nýta tiltekna náttúruauðlind, svo sem með því að byggja virkjanir eða leggja raforkusæstreng. Sambandið getur heldur ekki ákveðið að ríki verði að nýta tiltekna auðlind eða bannað slíka nýtingu nema það leiði af skuldbindingum sem aðildarríkin hafa sjálf samþykkt.

Reglur innri markaðarins geta hins vegar haft áhrif á hvernig slík starfsemi er skipulögð. Aðildarríkin geta þó réttlætt frávik frá almennum reglum með vísan til almannahagsmuna, svo sem umhverfisverndar eða verndar auðlinda, enda séu slík frávik málefnaleg og í samræmi við meðalhófsregluna.

Mynd:

Höfundur

Davíð Þór Björgvinsson

hæstaréttarlögmaður á Thales lögfræðiþjónustu og fyrrv. dómari við mannréttindadómstól Evrópu

Útgáfudagur

21.10.2026

Spyrjandi

NN.

Tilvísun

Davíð Þór Björgvinsson. „Hver ræður yfir auðlindum þjóða sem eru í ESB?“ Evrópuvefurinn, 21. október 2026, sótt 21. október 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=89853.

Davíð Þór Björgvinsson. (2026, 21. október). Hver ræður yfir auðlindum þjóða sem eru í ESB? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=89853

Davíð Þór Björgvinsson. „Hver ræður yfir auðlindum þjóða sem eru í ESB?“ Evrópuvefurinn. 21. okt. 2026. Vefsíða. 21. okt. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=89853>.

Chicago | APA | MLA