Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB

EES-samningurinn

Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, eða EES-samningurinn, er fyrst og fremst fríverslunarsamningur milli Evrópusambandsins annars vegar og þriggja aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) hins vegar.

Samningurinn var undirritaður árið 1992 og með honum fengu EFTA/EES-ríkin aðgang að innri markaði Evrópusambandsins gegn því að skuldbinda sig til að innleiða í landslög þær grundvallarreglur sem markaðurinn byggist á sem og þær afleiddu reglur sem settar í þeim tilgangi að mynda einsleitt efnahagssvæði.

Efnislegt gildissvið EES-samningsins er mun takmarkaðra en samstarf aðildarríkja Evrópusambandsins. Þannig falla stefnur sambandsins á sviði sjávarútvegs-, landbúnaðar- og byggðamála utan EES-samningsins, sem og samstarf ESB-ríkjanna í utanríkis-, öryggis- og gjaldmiðilsmálum.

Höfundur

Útgáfudagur

21.4.2026

Síðast uppfært

28.4.2026

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Evrópuvefur. „EES-samningurinn.“ Evrópuvefurinn, 21. apríl 2026, sótt 28. apríl 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=88620.

Evrópuvefur. (2026, 21. apríl). EES-samningurinn. Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=88620

Evrópuvefur. „EES-samningurinn.“ Evrópuvefurinn. 21. apr. 2026. Vefsíða. 28. apr. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=88620>.

Chicago | APA | MLA