Spurning

Eineðli

Spyrjandi

Evrópuvefur

Svar

Svonefnd eineðlisríki líta svo á að reglur landsréttar og þjóðaréttar séu eitt og sama fyrirbærið, en í tvíeðlisríkjum eru reglurnar aðskildar. Af því leiðir að reglur þjóðréttarsamninga eineðlisríkja verða sjálfkrafa hluti landsréttar um leið og þeir eru fullgiltir líkt og um innlenda löggjöf væri að ræða. Reglurnar þarf ekki að innleiða sérstaklega inn í landsrétt. Einnig er litið á þjóðréttarvenjur sem hluta landsréttar. Dómarar geta byggt beint á reglum þjóðréttarsamnings í störfum sínum. Einnig geta einstaklingar og lögaðilar notið réttinda og borið skyldur þegar þjóðréttarsamningur er fullgildur.

Dæmi um eineðlisríki eru Þýskaland og Frakkland. Það er misjafnt eftir eineðlisríkjum hver rétthæð þjóðréttarsamninga er. Oft er þeim gefin sú staða að vera æðri en lög en ekki æðri en stjórnarskrá.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur 4.10.2013

Tilvísun

Evrópuvefur. „Eineðli“. Evrópuvefurinn 4.10.2013. http://evropuvefur.is/svar.php?id=65943. (Skoðað 19.4.2024).

Höfundur

Evrópuvefur

Við þetta svar er engin athugasemd Fela