Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB

Hvað er átt við með gullhúðun þegar EES-reglur eru innleiddar?

Íslenska ríkinu ber að innleiða í íslenskan rétt EES-gerðir (það er reglugerðir og tilskipanir) sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn. Almennt séð fela reglugerðir ekki í sér svigrúm í innleiðingu en tilskipanir veita hins vegar yfirvöldum samningsaðila „val um form og aðferð“, samanber 7. gr. EES-samningsins. Tilskipun kann að byggja á svokallaðri lágmarkssamræmingu sem felur í sér að í henni eru settar lágmarkskröfur eða staðlar sem öllum aðildarríkjum ber að innleiða. Aðildarríkjunum er hins vegar heimilt að gera ríkari kröfur í innleiðingarlöggjöfinni en felst í lágmarkskröfunum.

Hugtakið gullhúðun (e. gold-plating) er notað um það þegar stjórnvöld einstakra ríkja nýta ofangreint svigrúm og ganga lengra og setja íþyngjandi ákvæði umfram þær lágmarkskröfur sem gerðar eru í EES-gerðum (yfirleitt tilskipanir) við innleiðingu. Þannig hefur það til dæmis verið talið fela í sér gullhúðun þegar gildissvið EES-gerðar er víkkað við innleiðingu; bætt er við kröfum eða notuð eru lagaleg hugtök sem eru víðari en í gerðinni sjálfri.[1]

Á undanförnum árum hafa íslensk stjórnvöld og Alþingi endurtekið verið gagnrýnd fyrir að beita gullhúðun í ríkum mæli við innleiðingu EES-gerða í landsrétt.[2] Kjarni þeirrar gagnrýni snýr að því að með því að gera íslenskum fyrirtækjum að fara eftir strangari reglum heldur en almennt tíðkast á hinu Evrópska efnahagssvæði sé dregið verulega úr samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á innri markaði EES.[3] Sem dæmi um beitingu gullhúðunar við innleiðingu EES-gerðar í íslenskan rétt má nefna eftirfarandi dæmi:
Tilskipun Evrópusambandsins um upplýsingagjöf fyrirtækja um ófjárhagslega þætti (NFDR) nr. 2014/94 var innleidd með lögum nr. 3/2006 um ársreikninga. Í innleiðingarlögunum var skyldan til að birta skýrslur yfir ófjárhagsleg atriði látin ná yfir fyrirtæki með 250 starfsmenn en ekki 500 starfsmenn eins og lágmarkið er í tilskipuninni.

Þetta hafði í för með sér að mun fleiri fyrirtæki hér á landi féllu undir skylduna til að veita upplýsingar um ófjárhagsleg atriði heldur en skylt er samkvæmt Evrópulöggjöfinni. Viðskiptaráð benti á að þetta hefði í för með sér mikinn viðbótarkostnað fyrir íslenskt atvinnulíf og drægi þar með úr samkeppnishæfni þess þar sem einstaklingar og fyrirtæki hér á landi þyrftu að búa við strangari kröfur en alla jafna eru gerðar í öðrum ríkjum á hinu Evrópska efnahagssvæði.

Gullhúðun er þó alls ekki óheimil og getur verið fullkomlega málefnaleg og skynsamleg (til dæmis strangar kröfur varðandi matvælaöryggi, félagsleg réttindi o.fl.). Var Alþingi því heimilt að leggja þá skyldu á smærri fyrirtæki en 500 manna að skila inn skýrslum um ófjárhagsleg atriði. Eins og nánar verður fjallað um hér á eftir átti löggjafinn hins vegar að „tilgreina“ og „rökstyðja“ af hverju slík leið var farin.[4]

Gullhúðun er ekki íslenskt fyrirbæri heldur er einnig þekkt innan ESB. Fyrstu heimildir um notkun þess eru frá Bretlandi á árinu 1973, það er sama ár og Bretlandi gerðist aðili að Evrópubandalaginu (síðar ESB).[5] Mörg ríki innan ESB hafa sett sér reglur um beitingu gullhúðunar í landsrétti sínum.[6] Það sama á við um Ísland sem hefur sett beitingu gullhúðunar ákveðin skilyrði, sem mælt er fyrir um í bæði 1. mgr. 37. gr. laga nr. 55/1991 um þingsköp Alþingis og b. lið 8. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála en ákvæðin eru efnislega sambærileg. Samkvæmt síðargreinda ákvæðinu skulu í greinargerð við lagafrumvarp sem innleiðir EES-gerð eftirfarandi efnisatriði koma fram:
b. Að hvaða marki frumvarpið hafi að geyma frávik frá upphaflegu ESB-gerðinni. Sérstaklega skal tilgreint ef gengið er lengra en lágmarksákvæði viðkomandi gerðar kveður á um og skal rökstuðningur fylgja slíkri ákvörðun. Tilgreina ber sérstaklega ef svigrúm er til staðar við innleiðingu. [leturbr. höf].

Þess má að lokum geta að utanríkisráðherra skipaði starfshóp um aðgerðir gegn gullhúðun EES-reglna þann 24. janúar 2024. Helstu tillögur hópsins miðuðu að því að tryggt yrði með ýmsum leiðum að ef vilji löggjafans eða framkvæmdarvaldsins (við setningu reglugerða) stæði til þess að beita gullhúðun yrði að greina frá slíku með skýrum og aðgengilegum hætti og það rökstutt. Nánar er hægt að lesa um tillögur starfshópsins á vefslóðinni: https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/2024/06/18/Skyrsla-starfshops-um-adgerdir-gegn-gullhudun-EES-gerda/

Tilvísanir:
  1. ^ Sjá nánari skilgreiningu á hugtakinu í Neil Davidson: Davidson Review, Final Report (Her Majesty´s Stationery Office nóvember 2006), bls. 17 og skýrslu umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytisins um innleiðingu EES-gerða í landsrétt: Hefur „gullhúðun“ átt sér stað á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á tímabilinu 2010 til 2022? Útg. janúar 2024.
  2. ^ Sjá til dæmis Skýrslu starfshóps um EES-samstarfið 2019, bls. 68, ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins 2015-2016 og yfirlýsingu birta á vefsíðu Samtaka iðnaðarins 10. apríl 2018.
  3. ^ Ábendingar Samtaka iðnaðarins um gullhúðun EES-reglna. (Samtök iðnaðarins, febrúar 2024)
  4. ^ Sbr. b. liður 8. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
  5. ^ Squintani, Lorenzo: Beyond Minimum Harmonisation: Gold-Plating and Green-Plating of European Environmental Law. Cambridge University Press, 2019, bls. 14.
  6. ^ Sjá nánari umfjöllun í ML-ritgerð Sigrúnar Önnu Gísladóttir: Gullhúðun EES-reglna: skoðun á innleiðingarfrumvörpum EES-gerða í landsrétt á málefnasviði fjármála- og efnahagsráðuneytisins með tilliti til gullhúðunar, 28. maí 2024.

Mynd:

Höfundur

Margrét Einarsdóttir

prófessor við lagadeild HR

Útgáfudagur

18.3.2026

Spyrjandi

Þóra

Tilvísun

Margrét Einarsdóttir. „Hvað er átt við með gullhúðun þegar EES-reglur eru innleiddar?“ Evrópuvefurinn, 18. mars 2026, sótt 18. mars 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=88538.

Margrét Einarsdóttir. (2026, 18. mars). Hvað er átt við með gullhúðun þegar EES-reglur eru innleiddar? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=88538

Margrét Einarsdóttir. „Hvað er átt við með gullhúðun þegar EES-reglur eru innleiddar?“ Evrópuvefurinn. 18. mar. 2026. Vefsíða. 18. mar. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=88538>.

Chicago | APA | MLA