Spurning

Um hvað snúast deilurnar á Norður-Írlandi?

Spyrjandi

Halldór Meyer
Styrmir Barkarson

Svar

Annars staðar á Vísindavefnum er svarað spurningunni Af hverju er Norður-Írland ekki sjálfstætt? og er þar farið yfir þær sögulegu aðstæður sem valdið hafa því að átök hafa undanfarin tæp fjörutíu ár sett svip sinn á líf íbúa Norður-Írlands.

Þegar spurt er um hvað deilurnar á Norður-Írlandi snúast er því fyrst til að svara að deilurnar eru ekki trúarlegar í eðli sínu, þó svo að skipta megi deilendum í grófum dráttum í tvær fylkingar; annars vegar kaþólikka og hins vegar mótmælendur. Ekki er nefnilega tekist á um trúarleg atriði, hér er semsé fyrst og fremst um einkenni þess klofnings sem ríkir í samfélaginu á Norður-Írlandi, ekki ástæðu.

Eyjunni Írlandi var skipt í tvö ríki árið 1920 sem höfðu fullveldi innan breska heimsveldisins. Á Írlandi voru sjálfstæðissinnaðir kaþólikkar í meirihluta og þeir notuðu fullveldið til þess að ná fram fullu sjálfstæði (lýðveldi var stofnað á Írlandi 1949) en á Norður-Írlandi, sem til varð í nyrstu sýslum Írlands, voru mótmælendur í meirihluta, mótmælendur sem varðveita vildu konungssambandið við Bretland. Meirihluti þeirra var nokkuð naumur – nú er raunar svo komið að nýjustu mannfjöldatölur sýna að 53,1% íbúa Norður-Írlands eru mótmælendatrúar en 43,8% kaþólskrar trúar (3,1% eru einhverrar annarrar trúar eða trúlausir) – og þeir sáu því ástæðu til að tryggja völd sín í héraðinu, sjá til þess að kaþólikkar kæmust ekki að valdataumunum. Trúðu mótmælendur því að kaþólikkar myndu nota fyrsta tækifæri til að sameina Norður-Írland Írlandi á ný og rjúfa þannig sambandið við Bretland.



Þær aðferðir sem mótmælendur beittu til að halda kaþólikkum niðri stuðlaði að klofningi samfélagsins og reiði meðal kaþólikka vegna þess misréttis sem þeir voru beittir; reiði sem kom upp á yfirborðið er allt fór í bál og brand á Norður-Írlandi eftir miðjan sjöunda áratug síðustu aldar.

Áhersla mótmælenda á sambandið við Bretland skýrir hvers vegna þeir hafa alla tíð verið nefndir sambandssinnar. Á sama tíma hafa kaþólikkar verið kallaðir þjóðernissinnar eða lýðveldissinnar, er um leif að ræða frá þeim tíma sem kaþólskir þjóðernissinnar á Írlandi háðu sjálfstæðisbaráttu sína. Hafa þessir merkimiðar verið notaðir jöfnum höndum, það er mótmælendur eru ekki síður þekktir sem sambandssinnar, á meðan kaþólikkar eru kallaðir þjóðernissinnar.

Hitt er þó, að hvor hópanna um sig er í reynd þjóðernishópur; sambandssinnar/mótmælendur eru semsé ekki síður þjóðernissinnaðir heldur en þjóðernissinnar/kaþólikkar. Þeirra þjóðernislega sjálfsmynd er bara önnur en sú sem þjóðernissinnar/kaþólikkar hafa. Og að mörgu leyti snúast deilurnar á Norður-Írlandi um þá togstreitu sem ríkt hefur á milli þessara tveggja hópa, þessara tveggja sjálfsmynda ólíkra hópa.

Birtingarmynd togstreitunnar hefur síðan verið fólgin í blóðugum átökum – talið er að um 3.500 manns hafi fallið í valinn á meðan vargöldin á Norður-Írlandi stóð sem hæst, 1968-1998 – og blóðug átök í jafnlitlu samfélagi og hér er um að ræða (um tvær milljónir manna búa á Norður-Írlandi og Norður-Írland er aðeins 14.148 ferkílómetrar að stærð, til samanburðar má nefna að Ísland er ríflega 100.000 ferkílómetrar) hafa óhjákvæmilega orðið til að festa klofninginn milli kaþólikka og mótmælenda í sessi og valda enn frekara vantrausti og hatri þar á milli. Deilurnar snúast því í reynd um það vantraust sem ríkir milli mótmælenda og kaþólikka.

En auðvitað snúast deilurnar öðrum þræði um völd – og með gerð friðarsamkomulags á Norður-Írlandi 1998 var vonast til að tekist hefði að skapa grundvöll að sáttum í héraðinu. Fól samkomulagið meðal annars í sér skilmála þess efnis að mótmælendur og kaþólikkar skildu deila völdum á Norður-Írlandi, hvor hópur um sig átti að koma að stjórn landsins. Ekki verður sagt skilið við Bretland (og sameining við Írland er því ekki á döfinni) fyrr en meirihluti íbúa Norður-Írlands lýsir yfir áhuga á slíku; og það gerist væntanlega ekki á meðan mótmælendur eru í meirihluta.

Framkvæmd friðarsamkomulagsins hefur ekki gengið sem skyldi. Brothættur friður hefur þó ríkt á Norður-Írlandi frá 1998. Vantrausti milli mótmælenda og kaþólikka verður ekki eytt á einni nóttu en telja verður líklegt að stöðugur friður sé grundvallarforsenda þess að það takist. Á meðan til staðar eru hópar sem beita sér fyrir ólíkum pólitískum markmiðum – annars vegar áframhaldandi sambandi við Bretland og hins vegar sameiningu við Írland – verður þó vart hægt að binda enda á deilur í eitt skipti fyrir öll; vonin er hins vegar sú að um slík deilumál verði framvegis tekist á pólitískum vettvangi en ekki með vopnaskaki og ódæðisverkum.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.1.2005

Flokkun:

Evrópumál > ýmislegt

Tilvísun

Davíð Logi Sigurðsson. „Um hvað snúast deilurnar á Norður-Írlandi?“. Evrópuvefurinn 25.1.2005. http://evropuvefur.is/svar.php?id=4725. (Skoðað 25.4.2024).

Höfundur

Davíð Logi SigurðssonMA í írskum fræðum

Við þetta svar er engin athugasemd Fela