Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB

Er Ísland ekki á milli meginlandsflekanna og telst því hvorki til Evrópu né Ameríku, jarðfræðilega?

Réttara er að Ísland er á mótum Evrasíu- og Ameríkuflekanna og telst því jarðfræðilega til beggja álfa fremur en hvorugrar — austurhlutinn til Evrópu, vesturhlutinn til Ameríku. Í öllu öðru náttúrufari er Ísland tengdara og líkara Evrópu en Ameríku.

***

Að því er varðar náttúrufar að öðru leyti á Ísland fleira sameiginlegt með Evrópu en Ameríku. Jurtaríkið líkist Evrópu meira, ef til vill að hluta vegna áhrifa frá landnáminu.

Eina villta spendýrið sem var hér við landnám er refurinn sem finnst á stóru svæði allt í kringum Norðurheimskautið. En til dæmis er athyglisvert að ísbjörninn þrífst ekki hér eins og í Grænlandi og Norður-Kanada.

Fuglalíf hér er miklu skyldara Evrópu en Ameríku. Meðal fuglategunda sem koma frá Vesturálfu má þó nefna til dæmis himbrima og straumönd.

Þessi munur á dýra- og jurtaríki stafar af því meðal annars að veðurfarið hér er „evrópskt“ ef svo má segja. Loftslag á svipuðum breiddargráðum á austurströnd Ameríku er allt annað en hér og á vestanverðu meginlandi Evrópu fyrir austan okkur. Vetur eru miklu harðari fyrir vestan, sumrin hlýrri en ársmeðalhiti þó lægri. Það er auðvitað Golfstraumurinn og ríkjandi suðvestanvindar sem valda þessum mun. Norrænir Vínlandsfarar tóku glöggt eftir honum fyrir 1000 árum.

Þannig er það engan veginn að ástæðulausu sem línan milli Evrópu og Ameríku er venjulega dregin milli Íslands og Grænlands, enda svipar Grænlandi á hinn bóginn miklu meira til landanna þar fyrir vestan. En meðan Grænland er í konungssambandi við Danmörku tilheyrir það Evrópu í pólitískum skilningi, svipað og Síbería tilheyrir Rússlandi og þar með Evrópu í þeim skilningi.

Sjálfsagt spillir það ekki fyrir að þær þjóðir sem við erum skyldust eru á meginlandi Evrópu. En ef til vill er sá skyldleiki þó ekki meiri en skyldleikinn hefur verið á sínum tíma milli íbúa á tilteknum svæðum í Ameríku annars vegar og ákveðnum svæðum austan hafs hins vegar. Sem dæmi um það má taka íbúa Nýja-Englands og Bretlands eða Quebec-búa og Frakka á sautjándu og átjándu öld.

Mynd:

Höfundar

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

10.2.2003

Síðast uppfært

23.2.2026

Spyrjandi

Atli Aðalsteinsson

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Er Ísland ekki á milli meginlandsflekanna og telst því hvorki til Evrópu né Ameríku, jarðfræðilega?“ Evrópuvefurinn, 10. febrúar 2003, sótt 15. mars 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=3124.

Sigurður Steinþórsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. (2003, 10. febrúar). Er Ísland ekki á milli meginlandsflekanna og telst því hvorki til Evrópu né Ameríku, jarðfræðilega? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=3124

Sigurður Steinþórsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Er Ísland ekki á milli meginlandsflekanna og telst því hvorki til Evrópu né Ameríku, jarðfræðilega?“ Evrópuvefurinn. 10. feb. 2003. Vefsíða. 15. mar. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=3124>.

Chicago | APA | MLA