Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 3,3% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 3,3% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB

Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB?

Í umræðum um hugsanlega aðild Íslands að ESB er fullveldishugtakið fyrirferðarmikið. Ýmsir telja að með aðild tapist eða minnki fullveldi Íslands. Í fullveldi ríkja felst réttur þeirra til að koma fram á alþjóðavettvangi, meðal annars að gerast aðili að alþjóðasamningum við erlend ríki og gerast aðili að alþjóðastofnunum.

Ákvörðun ríkis um að taka á sig alþjóðlegar skuldbindingar felur í sér beitingu fullveldisréttar og er því einn af eiginleikum fullveldisins. Að þjóðarétti hefur það engin áhrif á fullveldi ríkja að ganga í ESB þó í slíkri aðild felist viðamiklar skuldbindingar svo sem breytingar á stjórnlögum. Í þessu samhengi verður að benda á að það er jafnframt beiting fullveldisréttarins að ganga úr alþjóðastofnunum eins og Bretlandseyjar gerðu með BREXIT. Fullvalda ríki geta því gengið úr og í ESB.

Fullveldishugtakið er í þessum skilningi eins og lögræðishugtakið. Lögráða einstaklingur sem ræður sig í vinnu eða tekur fasteignalán hjá lánastofnun framselur ekki lögræði sitt eða afsalar sér því, heldur nýtir hann það. Vissulega geta alþjóðlegar skuldbindingar verið viðamiklar, krafist stjórnlagabreytinga og haft afgerandi áhrif á framtíð ríkis og borgara þess. Til þeirra er hins vegar gengið af fúsum og frjálsum vilja og er það lykilatriði. Ef til aðildar Íslands að ESB kemur hafa kjósendur haft aðkomu að þeirri ákvörðun í þrennum kosningum og ætti því viljinn að vera nokkuð skýr um þau mál.

Mynd:

Höfundur

Bjarni Már Magnússon

lögmaður og doktor í hafrétti

Útgáfudagur

29.6.2026

Spyrjandi

Sigurður Sigurðsson

Tilvísun

Bjarni Már Magnússon. „Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB?“ Evrópuvefurinn, 29. júní 2026, sótt 29. júní 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=88798.

Bjarni Már Magnússon. (2026, 29. júní). Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=88798

Bjarni Már Magnússon. „Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB?“ Evrópuvefurinn. 29. jún. 2026. Vefsíða. 29. jún. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=88798>.

Chicago | APA | MLA