Í desember 2025 fékkst styrkur frá stjórnvöldum til að uppfæra Evrópuvefinn og bæta við hann gervigreindarvirkni. Hver sem er getur nú spurt mállíkan á forsíðu vefsins spurninga um Evrópumál og myndar líkanið svar með hliðsjón af gagnasafni Evrópuvefsins. Lesendur eru hvattir til að meta gæði gervigreindarinnar með því gefa svarinu þumal upp eða niður.
Hægt er að spyrja gervigreindina á því sem næst hvaða tungumáli sem er. Fyrirmæli líkansins eru að svara á því máli sem spyrjandi notar. Þannig gagnast Evrópuvefurinn einnig þeim landsmönnum sem vilja fræðast meira um Evrópusambandið og Evrópumál - en hafa ef til vill ekki náð fullum tökum á íslensku.
Að sjálfsögðu er einnig hægt að leita á hefðbundinn hátt í svörum vefsins.
Ef framhald verður á starfsemi Evrópuvefsins eftir 29. ágúst 2026 verður kappkostað að fá svör fræðafólks við brýnustu spurningum sem notendur spyrja gervigreindina um sumarið 2026. Þess háttar svör eru áreiðanlegri og þau bæta einnig svörin sem gervigreindin býr til.
Sérstakur undirbúningshópur vann að uppfærslu vefsins. Hópurinn mun áfram hafa umsjón með verkefninu og vera til ráðgjafar um hugsanlegt framhald þess í haust.
Hægt er að fræðast meira um Evrópuvefinn og undirbúningshópinn á síðunni Um Evrópuvefinn.
Frekari upplýsingar um notkun gervigreindar á Evrópuvefnum er að að finna í svari við spurningunni Hvernig er gervigreind notuð á Evrópuvefnum?
Mynd:
Hjálpaðu okkur að greina gæði gervigreindarinnar með því að segja okkur hvort svarið var gott eða slæmt.
Takk fyrir þátttökuna!