Hér er að finna svör við ýmsum spurningum sem tengjast notkun gervigreindar á Evrópuvefnum.
Af hverju sé ég þessa síðu en ekki svar við spurningu?
Gervigreindarsvör Evrópuvefsins eru bara sýnileg þeim sem biður gervigreindina um svarið - og þau eru aðeins aðgengileg í tiltekinn tíma.
Annað hvort hefur þú farið inn á svar sem annar notandi lét búa til eða þá að svarið sem þú baðst um er ekki lengur sýnilegt.
Sum gervigreindarsvör eru þó aðgengileg öllum. Það eru svör sem sérfræðingur er búinn að fara yfir. Þessi svör birtast í sérstökum flokki á Evrópuvefnum sem kallast „samþykkt gervigreindarsvör“.
Hvaða mállíkan er notað á Evrópuvefnum og af hverju?
Eins og er notum við mállíkan frá Google sem kallast Gemini 3.1 flash. Ástæðan er einfaldlega sú að það er besta líkanið í íslensku sem getur svarað tiltölulega hratt.
Er eitthvað hámark á fjölda spurninga sem ég get sent inn?
Já, hver notandi (IP-tala) getur aðeins sent inn tiltekinn fjölda spurninga á hverjum 24 klukkustundum. Einnig er hámark á því hversu mörgum spurningum líkanið getur svarað frá öllum notendum daglega.
Ef hámarki fyrirspurna er náð þá er engu að síður hægt að leita í svörum vefsins á hefðbundinn hátt - en gervigreindarvirknin sést ekki.
Hvar finnur gervigreindin efni til að svara spurningunum?
Gervigreindin leitar í gagnasafni Evrópuvefsins og myndar svör með hliðsjón af heimildum þaðan. Þannig tryggjum við svörin séu eins áreiðanleg og hægt er.
Gerið þið eitthvað við spurningarnar sem sendar eru inn?
Já, við könnum hvort einhver efni eru vinsælli en önnur. Ef slíkt kemur í ljós stefnum við að því að fá svör fræðafólks við þeim spurningum. Þess háttar svör eru áreiðanlegri og bæta líka gæði gervigreindarsvaranna.
Hjálpaðu okkur að greina gæði gervigreindarinnar með því að segja okkur hvort svarið var gott eða slæmt.
Takk fyrir þátttökuna!