Hvernig geta hagsmunasamtök haft áhrif á ríkisvaldið? Er æskilegt í lýðræðisþjóðfélagi að hagsmunasamtök hafi áhrif stjórnvöld?Hagsmunasamtök (e. interest groups) eru skipulögð félagasamtök eða hópar sem leitast við að hafa áhrif á opinbera stefnumótun í þágu tiltekins málefnis, hóps eða atvinnugreinar. Þau gegna lykilhlutverki í lýðræðislegum stjórnmálum með því að veita stjórnvöldum upplýsingar, koma sjónarmiðum samfélagshópa á framfæri og skapa vettvang fyrir borgaralega þátttöku. Hagsmunasamtök eru fjölbreytileg að gerð og tilgangi og þau eru gjarnan flokkuð eftir eðli þeirra hagsmuna sem þau verja. Ein helsta gerð hagsmunasamtaka eru efnahagsleg samtök, svo sem verkalýðsfélög, atvinnurekendasamtök og samtök tiltekinna atvinnugreina sem hafa það að markmiði að bæta efnahagslega stöðu félagsmanna sinna. Þá eru til svokölluð almannaheillasamtök (e. public interest groups) sem beita sér fyrir hagsmunum sem taldir eru varða samfélagið í heild, til dæmis á sviði mannréttinda, umhverfisverndar eða lýðheilsu. Einnig má nefna staðbundin hagsmunasamtök, svo sem íbúasamtök, og hugmyndafræðileg samtök sem byggja starfsemi sína á tilteknum siðferðilegum, trúarlegum eða pólitískum gildum. Hagsmunasamtök beita fjölbreyttum aðferðum, svo sem hagsmunagæslu (e. lobbying), þátttöku í stefnumótunarferlum, söfnun og miðlun upplýsinga og stuðningi við frambjóðendur og stjórnmálaflokka. Þá ráðast þau oft í upplýsinga- og auglýsingaherferðir, boða til mótmæla og leitast við að hafa áhrif í gegnum fjölmiðla.

Ein helsta gerð hagsmunasamtaka eru efnahagsleg samtök, svo sem verkalýðsfélög, atvinnurekendasamtök og samtök tiltekinna atvinnugreina.

Amnesty International er dæmi um almannaheillasamtök.
- Yfirlitsmynd: Roger Blackwell. (2008, 19. mars). GMB water workers lobby of the Environment Agency. Flickr. Birt undir CC BY 2.0 leyfi. https://www.flickr.com/photos/rogerblackwell/2345445674
- Nick Efford. (2011, 30. nóvember). Leeds public sector pensions strike in November 2011 9.jpg. Wikipedia. Birt undir BY-SA 2.0 leyfi. https://en.wikipedia.org/wiki/File:Leeds_public_sector_pensions_strike_in_November_2011_9.jpg
- Actua Litté (2015, 17. október). Amnesty International - Frankfurt Buchmesse 2015.jpg. Wikimedia Commons. Birt undir CC BY-SA 2.0 leyfi. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Amnesty_International_-_Frankfurt_Buchmesse_2015.jpg