Spurning

Hvaða fornu heimildir segja frá goðsögunni um Evrópu?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Vísað er til goðsagnar um Evrópu í elstu varðveittu hetjuljóðum Grikkja, sem eignuð eru hinum fornu höfuðskáldum Hómer og Hesíodosi.1 Í varðveittu kvæði um uppruna guðanna telur Hesíodos Evrópu meðal afkvæma guðsins Okeanosar. 2 Þau voru sett skör lægra en Ólympsguðir í stigveldi grískrar goðafræði. Þessi hugmynd virðist hafa notið nokkurrar hylli. Í riti fræðimannsins Androns frá Halikarnassos frá 4. öld f.Kr. eru nefndar fjórar dætur Okeanosar, Asía, Lybía, Evrópa og Þraike. Tengingin við lönd heimsins er greinileg en þó virðist fremur vísað til smærri landa heldur en heimshluta. Elstu heimildir um hugtakið Asíu í grískum heimildum gera til dæmis ráð fyrir að það sé land sem lúti einum konungi. 3

Í Ilionskviðu Hómers er Evrópa ekki nefnd en þó er þar vísað í dóttur Fönix konungs sem ól Seifi Mínos og hinn goðumlíka Rhadamanþys. 4 Sú sögn er til í broti sem mun vera úr öðru riti eftir Hesíodos, Kvennaskrá (Τυναικων Κατάλογος).5 Samkvæmt þessari sögn var Evrópa dóttir konungsins Fönix. Seifur brá sér í nautslíki og rændi Evrópu og flutti hana til álfunnar sem fékk nafn hennar. Síðan nauðgaði hann henni og voru synir þeirra Mínos, Rhadamanþys og Sarpedon. Eftir það var hún gift Asteriosi konungi á Krít. 6 Nafn Fönix virðist vísa til Fönikíu fyrir botni Miðjarðarhafsins (þar sem nú er Líbanon) en það svæði er þó ekki nefnt í þessum elstu heimildum.


Evrópa og nautið á grískum vasa frá því um 480 f.Kr. Vasinn er varðveittur er á Tarquinia-safninu á Ítalíu.

Kunnasta endursögn goðsagnarinnar um Evrópu er í hinu latneska epíska kvæði Ummyndanir (Metamorphoses) eftir Publius Ovidius Naso (43 f.Kr. – 17 e.Kr.). Evrópa er þar sögð dóttir Agenors, konungs í borginni Tyros í Fönikíu. Seifur í nautslíki rændi henni og meðal sona hennar var Mínos sem síðar varð konungur á Krít. Sá „sonur Evrópu“ kemur einnig töluvert við sögu í Ummyndunum.7 Ekki er ljóst hversu forn sú birtingarmynd sögunnar er sem finna má í kvæði Ovidiusar en einhvern tíma frá því á 7. öld f.Kr. hefur Fönix breyst í Agenor. Þá virðist staðsetningin í Fönikíu vera allforn og má ætla af sagnaritum frá 5. öld að hún hafi þá þegar verið hluti af sögunni.

Tilvísanir:

1 Hesíodos mun hafa verið uppi einhvern tíma á milli 750 og 650 f.Kr; sjá Martin L. West; „Prolegomena“, í Hesiod, Theogony, bls. 1-107, hér bls. 40. Hómerskviður munu vera nokkru yngri í sinni varðveittu mynd (en sennilega eldri að stofna til), frá 6. eða 7. öld f.Kr. Sjá Jan Paul Crielaard, „Homer, History and Archaelogy: Some remarks on the Date of the Homeric World“, Homeric Questions: Essays in Philology, Ancient History and Archaeology, ritstj. J.P. Crielaard, Amsterdam: Stichting Archeologische School der Nederlanden te Athene, 1995, bls. 201-288.

2 Hesiod, Theogony, bls. 125.

3 Sama rit, bls. 266-267.

4 Homer, The Iliad, ritstj. Walter Lead, Cambridge: Cambridge University Press, 2010 [1888], II, Bók 13-24, bls. 189.

5 Sjá Gynaikōn Katalogos und Megalai Ēhoiai. Ein Kommentar zu den Fragmenten zweier besiodeischer Epen, ritstj. Martina Hirschberger, München: Saur, 2004, bls. 115-116 og 308-312.

6 Sú sögn er ekki nefnd í Kvennaskrá heldur í skýringargreinum við Hómerskviðu, sbr. Gynaikōn Katalogos, bls. 309. Í brotinu sem er varðveitt er einungis Rhadamanþys nefndur af sonum Evrópu en þó tekið fram að þeir hafi verið þrír, sbr. Gynaikōn Katalogos, bls. 310-311.

7 P. Ovidi Nasonis Metamorphoses, ritstj. Richard J. Tarrant, Oxford: Clarendon Press, 2004, bls. 62-63 og 216.

Mynd:


Þetta svar er fengið úr greininni „Hugmyndin um Evrópu fyrir 1800“, Ritið 3/2011, bls. 9-23 og birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.10.2013

Tilvísun

Sverrir Jakobsson. „Hvaða fornu heimildir segja frá goðsögunni um Evrópu?“. Evrópuvefurinn 25.10.2013. http://evropuvefur.is/svar.php?id=66131. (Skoðað 29.3.2024).

Höfundur

Sverrir Jakobssonprófessor í miðaldasögu við HÍ

Frekara lesefni á Evrópuvefnum:

Við þetta svar er engin athugasemd Fela