Spurning

Fær Evrópuvefurinn framlög frá ríkinu eða einhverjum öðrum til þess að halda úti vefnum?

Spyrjandi

Pétur Már Jónsson

Svar

Já, Evrópuvefurinn er alfarið rekinn fyrir fjárframlag frá Alþingi. Stofnað var til Evrópuvefsins með þjónustusamningi milli Alþingis og Vísindavefsins og starfar hann í nánum tengslum við Vísindavefinn. Evrópuvefurinn opnaði með formlegum hætti þann 23. júní 2011 og hefur því verið starfræktur í eitt og hálft ár þegar þetta er skrifað í árslok 2012.

Tilgangur Evrópuvefsins er að veita hlutlægar, málefnalegar og trúverðugar upplýsingar, meðal annars um:

  1. Aðdraganda og sögu Evrópusambandsins og undanfara þess.
  2. Löggjöf og réttarframkvæmd í ESB.
  3. Skipulag og stjórnsýslu ESB.
  4. Stefnu og áætlanir ESB.
  5. Aðildarríki ESB og afstöðu þeirra til einstakra málaflokka.
  6. Aðildarumsókn Íslands, sbr. þingsályktun Alþingis frá 16. júlí 2009, og hugsanleg áhrif aðildar ef Ísland gengur í Evrópusambandið.

Í áliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er fjallað í sérstökum kafla um upplýsingagjöf. Þar er tekið fram að áhersla skuli vera lögð á upplýsingamiðlun til almennings, félagasamtaka og fjölmiðla og að sérstökum hópi verði komið á fót sem annist það hlutverk að miðla upplýsingum um Evrópusambandið almennt, áhrif aðildar að sambandinu og um stöðu aðildarviðræðna. Evrópuvefnum var falið það hlutverk.

Af þessu leiðir að Evrópuvefnum ber að starfa sem frjáls og óháð upplýsingaveita og hann mun því ekki þiggja neina fjárhagslega eða fémæta aðstoð frá aðilum máls, hvort sem þeir heita Evrópusambandið sjálft eða samtök sem berjast með eða móti aðild að sambandinu.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur 7.12.2012

Tilvísun

Evrópuvefur. „Fær Evrópuvefurinn framlög frá ríkinu eða einhverjum öðrum til þess að halda úti vefnum?“. Evrópuvefurinn 7.12.2012. http://evropuvefur.is/svar.php?id=63940. (Skoðað 20.4.2024).

Höfundur

Evrópuvefur

Við þetta svar er engin athugasemd Fela