Spurning

Í hvaða heimsálfu er Rússland?

Spyrjandi

Árni Arent

Svar

Rússland er eitt af fáum löndum í heiminum sem er í tveimur heimsálfum. Eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin? eru mörkin milli Evrópu og Asíu yfirleitt talin liggja um Úralfjöll. Þannig lendir sá hluti Rússlands sem er vestan Úralfjalla í Evrópu en austurhlutinn í Asíu.

***

Af öðrum ríkjum sem teljast þannig til tveggja heimsálfa má nefna Tyrkland en skiki af því er fyrir norðan Bosporus-sund og tilheyrir Evrópu en að öðru leyti telst landið til Asíu. Egyptaland er annað dæmi um land sem telst til tveggja heimsálfa þar sem Sínaí-skagi, norðaustasti hluti landsins, er austan við Súes-skurðinn sem venjulega er talinn skilja á milli Afríku og Asíu. Landfræðilega er því Sínaí-skaginn í Asíu þó að Egyptaland sé í Afríku.

Þá má nefna Spán vegna Kanaríeyja sem teljast landfræðilega til Afríku en heyra stjórnarfarslega undir Spánarkonung. Svo getum við líka litið okkur nær og nefnt konungsríkið Danmörku sem á land í Ameríku, gríðarlegt flæmi sem nefnist Grænland. Á sama hátt munu nokkur önnur fyrrverandi nýlenduveldi í Evrópu enn eiga land í öðrum heimsálfum.

Heimild:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur28.9.2002

Flokkun:

Evrópumál > ýmislegt

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Í hvaða heimsálfu er Rússland?“. Evrópuvefurinn 28.9.2002. http://evropuvefur.is/svar.php?id=2743. (Skoðað 19.4.2024).

Höfundar

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttirlandfræðingur og starfsmaður VísindavefsinsÞorsteinn Vilhjálmssonprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Við þetta svar er engin athugasemd Fela