Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 24,5% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 2,2% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 5,9% Í ESB

Í hvaða heimsálfu er Rússland?

Rússland er eitt af fáum löndum í heiminum sem er í tveimur heimsálfum. Eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin? eru mörkin milli Evrópu og Asíu yfirleitt talin liggja um Úralfjöll. Þannig lendir sá hluti Rússlands sem er vestan Úralfjalla í Evrópu en austurhlutinn í Asíu.

***

Af öðrum ríkjum sem teljast þannig til tveggja heimsálfa má nefna Tyrkland en skiki af því er fyrir norðan Bosporus-sund og tilheyrir Evrópu en að öðru leyti telst landið til Asíu. Egyptaland er annað dæmi um land sem telst til tveggja heimsálfa þar sem Sínaí-skagi, norðaustasti hluti landsins, er austan við Súes-skurðinn sem venjulega er talinn skilja á milli Afríku og Asíu. Landfræðilega er því Sínaí-skaginn í Asíu þó að Egyptaland sé í Afríku.

Þá má nefna Spán vegna Kanaríeyja sem teljast landfræðilega til Afríku en heyra stjórnarfarslega undir Spánarkonung. Svo getum við líka litið okkur nær og nefnt konungsríkið Danmörku sem á land í Ameríku, gríðarlegt flæmi sem nefnist Grænland. Á sama hátt munu nokkur önnur fyrrverandi nýlenduveldi í Evrópu enn eiga land í öðrum heimsálfum.

Heimild:

Yfirlitsmynd:

Höfundar

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

28.9.2002

Síðast uppfært

2.2.2026

Spyrjandi

Árni Arent

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Í hvaða heimsálfu er Rússland?“ Evrópuvefurinn, 28. september 2002, sótt 15. mars 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=2743.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. (2002, 28. september). Í hvaða heimsálfu er Rússland? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=2743

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. „Í hvaða heimsálfu er Rússland?“ Evrópuvefurinn. 28. sep. 2002. Vefsíða. 15. mar. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=2743>.

Chicago | APA | MLA