Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 3,3% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB
Mannfjöldi MANNFJÖLDI Um 450 MILLJÓNIR Í ESB
Aðildarríki AÐILDARRÍKI 27 Í ESB
Orka og sjálfbærni ORKA ENDURNÝJANLEG 25,2% Í ESB
Verðbólga VERÐBÓLGA 3,3% Í ESB
Atvinnuleysi ATVINNULEYSI 6% Í ESB

Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á viðskiptakjör með gjaldeyri?

Umræðan um kosti og galla evrunnar fyrir Íslendinga hefur mikið snúist um vexti. Þeir skipta auðvitað máli en það eru fleiri fletir á málinu. Kostnaður við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vegur líka þungt en er ekki jafnsýnilegur því greiðendur fá ekki reikning um hver mánaðamót.

Kostnaður við greiðslumiðlun er hár á Íslandi, talsvert hærri en í nágrannalöndunum. Það á sér án efa margar skýringar, ekki bara sjálfstæði gjaldmiðilsins, en engu að síður má reikna með að kostnaðurinn myndi lækka eitthvað við að taka upp evru enda þá hægt að njóta hagkvæmni stórrekstrar á þessu sviði í ríkari mæli hérlendis.

Eitt er alveg víst að myndi lagast verulega og það eru viðskiptakjör með gjaldeyri hérlendis, sérstaklega þegar greiðslukort eru notuð. Álagning á því sviði er himinhá, þótt það sé komið eitthvað lífsmark með samkeppni þar vegna nýrra aðila á markaðinum, sérstaklega Indó.

Stóru bankarnir eru með þetta 5-6% mun á kaup- og sölugengi evru og dollars þegar kort eru notuð (og meiri mun fyrir sjaldgæfari gjaldmiðla). Þannig gæti þýskur ferðamaður á Íslandi fengið 122,40 krónur fyrir evru í dag en Íslendingur á Tenerife greitt 128,90 krónur fyrir evruna.

Viðskiptakjör með gjaldeyri hérlendis, sérstaklega þegar greiðslukort eru notuð, mundu lagast verulega við upptöku evru. Miðað við hátt í 6% mun á kaup- og sölugengi skilar kortavelta fjármálafyrirtækjum líklega ríflega 20 milljörðum króna í gengismun.

Viðskiptakjör með gjaldeyri hérlendis, sérstaklega þegar greiðslukort eru notuð, mundu lagast verulega við upptöku evru. Miðað við hátt í 6% mun á kaup- og sölugengi skilar kortavelta fjármálafyrirtækjum líklega ríflega 20 milljörðum króna í gengismun.

Þegar horft er til þess hve kortaveltan er mikil þá eru háar upphæðir undir. Síðustu 12 mánuði hafa erlend greiðslukort verið straujuð (eða þannig) fyrir 359 ma. á Íslandi og íslensk kort verið straujuð fyrir 402 ma. erlendis. Miðað við hátt í 6% mun á kaup- og sölugengi skilar þetta fjármálafyrirtækjum líklega ríflega 20 milljörðum króna í gengismun - fyrir utan aðrar þóknanir.

Upptaka evru myndi ekki alveg eyða þessu, enda viðskiptin í fleiri myntum, sérstaklega dollar, en lækka kostnaðinn til muna. Það væri bæði til hagsbóta fyrir Íslendinga, hvort heldur á ferðalagi í útlöndum eða þegar þeir skipta við netverslanir, og gott fyrir erlenda ferðamenn - sem myndi án efa bæta hag ferðaþjónustunnar.

Myndir:

Höfundur

Gylfi Magnússon

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

9.7.2026

Spyrjandi

N.N.

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á viðskiptakjör með gjaldeyri?“ Evrópuvefurinn, 9. júlí 2026, sótt 9. júlí 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=89053.

Gylfi Magnússon. (2026, 9. júlí). Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á viðskiptakjör með gjaldeyri? Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=89053

Gylfi Magnússon. „Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á viðskiptakjör með gjaldeyri?“ Evrópuvefurinn. 9. júl. 2026. Vefsíða. 9. júl. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=89053>.

Chicago | APA | MLA