Til að reikna út áætlaðan kostnað Íslands við aðild að ESB er yfirleitt miðað við greiðslu helstu nágrannaþjóða, eins og Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands. Þegar Ísland átti í viðræðum við ESB á árunum 2010-2013 gáfu útreikningar til kynna að nettóframlag Íslands, það er greiðslur til ESB að frádreginni heildarfjárhæð styrkja, gæti orðið á bilinu 3-6 milljarðar á ári. Til samanburðar var áætlað að nettóframlag Íslands til EES-samstarfsins árið 2010 hafi verið um 2,9 milljarðar íslenskra króna árið 2010.
Þegar þetta svar er skrifað, í júlí 2026, er miðað við að nettóframlag Íslands til ESB, ef til aðildar kæmi, gæti verið á bilinu 2-8,5 milljarðar. Munurinn skýrist aðallega eftir því við hvaða aðrar þjóðir er miðað.
Hallgrímur Oddsson hagfræðingur, sem heldur úti hugveitunni Evrópustraumar, metur nettóframlag Íslands á bilinu 6-8,5 milljarða.[1] Talan er lægst í hans mati ef miðað er við Finnland en hæst ef miðað er við Svíþjóð.
Í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu (18. maí 2026) er nettóframlagið metið á bilinu 2-7 milljarðar. Þar er kostnaðurinn metinn með hliðsjón af greiðslum Finna.
Um kostnaðinn segir þetta í nefndarálitinu:
Verg landsframleiðsla Íslands nam um 5.000 milljörðum kr. árið 2025. Miðað við framangreindar forsendur má ætla að nettóframlög Íslands til ESB gætu numið um 10–15 milljörðum kr. Við aðild myndi ýmis kostnaður vegna samstarfs Íslands á grundvelli EES-samningsins falla niður, svo sem framlög til reksturs stofnana EFTA og þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins. Sá kostnaður hefur verið áætlaður um 8 milljarðar kr. á ári. Að teknu tilliti til þessara niðurfellinga má ætla að raunaukning útgjalda við aðild yrði um 2–7 milljarðar kr. á ári.
Rétt er að taka fram að hér er aðeins verið að fjalla um beinan kostnað og tekjur íslenska ríkisins af hugsanlegri aðild en ekki kostnað eða hagnað þjóðarbúsins í heild sinni.
Tilvísun:
Heimildir og mynd:
Hjálpaðu okkur að greina gæði gervigreindarinnar með því að segja okkur hvort svarið var gott eða slæmt.
Takk fyrir þátttökuna!