| Leikur 1. Tuddi og skræfa - með jafn þungum leikendum | |||
|---|---|---|---|
| Ökumaður B/land B | |||
| Víkja | Víkja ekki | ||
| Ökumaður A/land A | Víkja | 0,0 | -1,+1 |
| Víkja ekki | +1,-1 | -3,-3 | |
| Leikur 2. Tuddi og skræfa - með misþungum leikendum | |||
|---|---|---|---|
| Fíat-lús/smáríki | |||
| Víkja | Víkja ekki | ||
| Trukkur/stórveldi | Víkja | 0,0 | -5,+1 |
| Víkja ekki | +1,-1 | -1,-10 | |

Nærtækast er að líta á tollastríð sem eitt form svokallaðs skræfuleiks, þar sem tveir bílstjórar nálgast hvor úr sinni áttinni á einbreiðum vegi. Sá sem víkur er talinn skræfa og verður fyrir álitshnekki. Ef annar bíllinn (eða landið) er risatrukkur en hitt ekki breytist svokallað Nash-jafnvægi í leiknum verulega.

Í kjölfar olíuverðhækkana og olíuskorts árið 1980 jókst mjög eftirspurn bandarískra kaupenda eftir sparneytnum japönskum bílum. Háværar kröfur voru um að bandarísk stjórnvöld kæmu bandarískum bílaframleiðendum til bjargar og gæfu þeim svigrúm til að þróa neyslugrennri bíla, til dæmis með því að leggja tolla á japanska bíla. Þetta var í forsetatíð Ronalds Reagans.
- ^ Leikjafræðingar segja að ekki sé neitt Nash-jafnvægi í þessum leik í hreinum leikbrögðum. Nash-jafnvægi í blönduðum leikbrögðum er til. Þá láta leikendur hendingu ráða hvaða leikbragð er valið. Ekki er líklegt að stjórnvöld í löndunum 2 vinni með þeim hætti að kasta tengingum upp á hvaða stefna skuli mörkuð í utanríkisviðskiptum.
- ^ Berry, Steven, James Levinsohn, & Ariel Pakes. (1999). Voluntary Export Restraints on Automobiles: Evaluating a Trade Policy. American Economic Review 89 (3): 400–430. https://www.jstor.org/stable/117026
- ^ Hass, Ryan & Abraham Denmark. (2020, 7. ágúst). More pain than gain: How the US-China trade war hurt America, Brookings Institution. https://www.brookings.edu/articles/more-pain-than-gain-how-the-us-china-trade-war-hurt-america/
- Yfirlitsmynd: Free Speeding Muscle Car Image | Download at StockCake. (Sótt 11.02.2025).
- Free Truck Dust Explosion Image | Download at StockCake. (Sótt 11.02.2025).
- Reaganomics - Wikipedia. (Sótt 11.02.2025).