David Lidington, Evrópumálaráðherra Bretlands, verður framsögumaður á opnum umræðufundi í Hátíðasal Háskóla Íslands, fimmtudaginn 20. júní nk. kl. 12.00–13.15. Erindi Lidingtons ber titilinn „The UK and Europe – our road ahead“. Í framhaldi af erindi ráðherrans munu fara fram pallborðsumræður. Þátttakendur í pallborði, auk Lidingtons, verða: Guðni Th. Jóhannesson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, Sigrún Davíðsdóttir, fréttamaður á RÚV, og Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins. Umræðustjórn verður í höndum Ólafs Þ. Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins. Fundurinn er haldinn á vegum Háskóla Íslands og breska sendiráðsins á Íslandi og fer fram á ensku.David Lidington hefur setið á breska þinginu fyrir Íhaldsflokkinn frá árinu 1992 en hann tók við embætti Evrópumálaráðherra í maí 2010.
Opinn umræðufundur með David Lidington
Útgáfudagur
20.6.2013
Spyrjandi
Ritstjórn
Tilvísun
Evrópuvefur. „Opinn umræðufundur með David Lidington.“ Evrópuvefurinn, 20. júní 2013, sótt 2. mars 2026, https://evropuvefur.is/svar.php?id=70944.
Evrópuvefur. (2013, 20. júní). Opinn umræðufundur með David Lidington. Evrópuvefurinn. https://evropuvefur.is/svar.php?id=70944
Evrópuvefur. „Opinn umræðufundur með David Lidington.“ Evrópuvefurinn. 20. jún. 2013. Vefsíða. 2. mar. 2026. <https://evropuvefur.is/svar.php?id=70944>.