Spurning
Hvaða áhrif hefur verðbólga í framtíðinni á þann sem kaupir fasteign á lánum?
Spyrjandi
Kristinn Skúlason
Svar
Verðbólga hefur ýmiss konar áhrif á þá sem taka lán til húsnæðiskaupa. Langtímalán vegna húsnæðiskaupa eru undantekningalítið verðtryggð á Íslandi. Því hefur verðbólga bein áhrif á þann fjölda króna sem greiða þarf í afborganir og vexti af húsnæðislánum í mánuði hverjum. Húsnæðislán eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs sem er mælikvarði á almennt verðlag á Íslandi. Áhrifin eru einföld, ef vísitalan mælir til dæmis að verðlag hefur hækkað um einn hundraðshluta þá hækka greiðslur af láni um sama hundraðshluta. Verðbólga hefur þó áhrif á fleira, verð á húsnæði og vinnu breytist alla jafna líka. Hækki verð á neysluvörum er líklegt að verð á húsnæði og laun hækki einnig. Því fer þó fjarri að þetta fylgist fullkomlega að. Stundum hækkar verð húsnæðis hraðar en verð á öðrum vörum og stundum hægar, jafnvel lækkar, eins og gengur. Hið sama má segja um verð á vinnuafli eða laun. Undir eðlilegum kringumstæðum hækka laun þó hraðar en verðlag þegar til langs tíma er litið. Allt skiptir þetta máli fyrir húskaupanda. Ef laun, húsnæðisverð og vísitalan sem húsnæðislán taka mið af hækka öll í takt þá hefur verðbólga lítil áhrif á hag húskaupanda. Hann greiðir sama hlutfall af launum sínum í afborganir og vexti af húsnæðislánum sínum óháð því hver verðbólgan er og lánin lækka jafnhratt í hlutfalli við verðgildi hússins með hverri afborgun. Ef verðlag hækkar hraðar en laun húskaupandans verður hann hins vegar að verja stærri hluta launa sinna til að greiða afborganir og vexti af láninu. Það er því skynsamlegt að hafa borð fyrir báru, kaupa ekki það dýrt húsnæði að ekkert megi út af bregða án þess að kaupandi lendi í vandræðum með að greiða af lánum. Aðrar skuldbindingar en húsnæðislán skipta vitaskuld líka máli í þessu samhengi. Ef verð á húsnæði hækkar örar en vísitalan sem húsnæðislán eru miðuð við eykst hrein eign húseiganda, það er verðmæti hússins að frádregnum áhvílandi lánum. Það er visst öryggi í því og kemur sér vel ef húsnæðið er selt. Þetta hefur þó ekki bein áhrif á það hve auðvelt er að standa undir greiðslum af lánum vegna húsnæðiskaupanna. Hið öfuga gildir ef verð á húsnæði heldur ekki í við verð á öðrum vörum. Ef vísitalan sem húsnæðislán miða við hækkar mun örar en fasteignaverð og stór hluti kaupverðs húss var fenginn að láni getur svo farið að markaðsverð hússins dugi ekki til að greiða upp lánin.Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur12.2.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Gylfi Magnússon. „Hvaða áhrif hefur verðbólga í framtíðinni á þann sem kaupir fasteign á lánum?“. Evrópuvefurinn 12.2.2000. http://evropuvefur.is/svar.php?id=49. (Skoðað 13.10.2024).
Höfundur
Gylfi Magnússonprófessor í hagfræði við HÍ
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Við þetta svar er engin athugasemd
Fela